Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 111
LAUGARDAGUR 31. mars 2012 71
hvernig ævintýrinu lýkur – upp-
haflega áttu bækurnar aðeins að
vera þrjár en eru nú sagðar eiga að
verða sjö. Stefnir sú saga í að verða
um margt jafndramatísk og fantasía
George R. R. Martin.
Beðið eftir sögulokum
„Togaðu ritvélina út úr rassgatinu
á þér og haltu áfram að skrifa,“
voru skilaboð til Martin frá að-
dáenda sem orðinn var langeygður
eftir nýrri bók í flokknum sem nú
þegar telur um 5000 blaðsíður, 1,7
milljón orð og meira en 1000 nafn-
greindar persónur. Aðrir hafa sett
upp heilu vefsíðurnar helgaðar, að
þeim finnst, seinagangi Martin.
Þar núa þeir höfundi vinnulagi
hans um nasir og saka hann um leti
þegar kemur að skrifunum. „Fyrst
við vitum öll að [Martin] getur ekki
skrifað nema hann sé staddur á sér-
staka rit-staðnum sínum, íklæddur
sérstöku rit-stígvélunum sínum,
með hitann nákvæmlega stilltan á
20 gráður og sólina í Vatnsberanum
geri ég ráð fyrir að sá stóri hafi ekki
komið einu einasta orði niður á blað
í dag.“
Hvað sem öðru líður hljóta
úthrópanir fólks, sem kveðst vera
aðdáendur bókanna, að bera vott
um hve sterkar tilfinningar lesenda
eru í garð sagna Martin. Weiss og
Benioff var mjög í mun að þættir
þeirra höfðuðu til fleiri en aðdá-
enda bókanna. En óttuðust þeir
aldrei að reita til reiði þessa sömu
áhangendur og verða fyrir orð-
skárri heift þeirra?
Weiss skellir hvellt upp úr en
þagnar jafnharðan aftur. Báða setur
hljóða góða stund.
„Nei,“ segir Weiss loks. Neitunin
er þó langt frá því að hljóma sann-
færandi. Flöktandi fljóta augu hans
með drapplituðum veggjum hótel-
herbergisins skreyttum doppum í
öðru blæbrigði af drapplit. Þau stað-
næmast að endingu rétt fyrir ofan
hausamót viðmælanda. Augnsam-
band er ekki veitt.
„Ég held að upp til hópa hafi að-
dáendurnir reynst mjög áhuga samir
um þættina,“ heldur Weiss áfram.
Hörku gætir í röddinni. Andrúms-
loft herbergisins virðist hafa snar-
kólnað. Hafði ég komið við við-
kvæman blett? „Og mjög kurteisir
…“ Þögn. Skyndilega færist skakkt
bros yfir varirnar. „Og næstum því
aldrei hrottalegir.“ Það harðnar yfir
svipnum á ný. „Ég myndi ekki segja
að við værum hræddir við þá því
það væri ekki mjög gagnlegt sam-
band.“
Benioff tekur af honum orðið.
Djúpgrá augun virðast hvassari en
fyrr. „Við getum ekki skrifað út frá
ótta. Við værum stöðugt að ritskoða
sjálfa okkur. Það er ekki hægt að
gera öllum til geðs. Það verða alltaf
einhverjir sem kvarta yfir hinum
ýmsu hlutum. Auk þess eru aðdá-
endurnir ekki einn einsleitur hópur.
Þeir eru ekki sammála um allt. Þá
greinir á. Við reynum að búa til eins
góða þætti og við getum – þætti sem
í fyrsta lagi okkur líkar við og í öðru
lagi George líkar við. Við getum
aldrei gert öllum milljónum lesenda
bókanna til geðs.“
Þeim Weiss og Benioff tókst ætl-
unarverk sitt. Þeir frelsuðu fantasíu
George R. R. Martin – og kannski
grein fantasíunnar í heild sinni – úr
greipum nördanna. Hve uppnæmir
þeir virðast hins vegar þegar þann
hóp ber á góma kann þó að benda
til þess að sjálfir séu þeir í heljar-
greipum álits þessara sömu nörda.
„Ég elska landið þitt!“ hrópar leikarinn Kit
Harington upp yfir sig er blaðamaður kveðst
vera frá Íslandi og vilja fá að ræða við hann um
tökur þáttanna Game of Thrones sem fram fóru á
Vatnajökli í nóvember síðastliðnum. „Það er einn
af þessum stöðum sem ég myndi vilja flytja til. Ég
elska það í alvöru! Ísland á sérstakan stað í hjarta
mér.“
Ákafi Kit er svo dásamlega einlægur að blaða-
maður þarf að hafa sig allan við að teygja ekki
fram armana og klípa í rjóðar, tuttugu og fimm
ára kinnarnar á honum og segja „gútsí-gú“. Kit
er nýútskrifaður úr leiklistarskóla. Engu að síður
hafa honum hlotnast tvær stórar rullur á síðustu
misserum: Annars vegar aðalhlutverkið í leikritinu
War Horse sem sýnt var í breska Þjóðleikhúsinu
og nú síðast hlutverk geðþekka bastarðsins Jon
Snow í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones.
„Við dvöldum á Íslandi í um fjórar vikur við
tökur,“ segir Kit. „Við tókum upp á þremur
mismunandi stöðum á jöklinum. Og það var
kalt.“ Hann hlær. „Skeggið á okkur fraus.“ Rakað
virðist bústið andlit hans barnslegt. Ungæðis-
legur glampi er í koparbrúnum augunum. Þetta
er tæpast ásjóna manns sem maður fæli það
torvelda verkefni að verja heimsálfuna Vesturás
fyrir ágangi lifandi dauðra ófreskja sem kallast
Hvítgöngurnar (White Walkers).
„Ísland tók vel á móti okkur. Við vorum mjög
heppin með veður. Dagarnir voru heiðskírir
og vetrarsólin skein á okkur. Einn myndatöku-
mannanna sagðist hafa skotið magnaðasta
myndskeið ferils síns á jöklinum. Allt í einum
heyrðum við einhvern hrópa: „JESS!““
Kit segist nýverið hafa fengið að horfa á brot úr
senum sem teknar voru upp á Íslandi. „Þær eru
svo fallegar og framandi. Þær líta út eins og tölvu-
grafík. Við fórum til Íslands til að forðast að nota
tölvugrafík en furðulegt nokk varð niðurstaðan í
raun óraunverulegri en grafík.“
Persóna Kit í þáttunum er send til hins kalda
Norðurs þar sem hann gengur til liðs við varðlið
Næturvarðanna. Hjálpaði kuldinn á Íslandi
honum að komast í karakter?
„Sem leikari er engu líkt að vera staddur í
umhverfi eins og því sem karakterinn á að vera
staddur í. Og Ísland er eins nálægt Norðrinu
og hægt er að hafa það. Það er kalt, hrjóstrugt,
landslagið er framandi og á sinn eigin hátt er það
gríðarlega fallegt. Aðstæðurnar hjálpuðu okkur
leikurunum mjög.“
Áætlað er að tökur á þriðju seríu Game of
Thrones hefjist í júlí. Kit segist vona að þær fari
aftur fram á Íslandi.
ÍSLAND EINS OG TÖLVUGRAFÍK
Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut
Nýtt bakarí Jóa Fel við Hringbraut
Nú hefur Jói Fel opnað nýtt og glæsilegt bakarí við Hringbraut (JL húsinu).
Um helgina verður mikið úrval af góðum brauðum og kökum í boði.
Bakaríð er opið alla virka daga frá kl. 7 - 18
og frá kl. 8 - 17 allar helgar.
Verið hjartanlega velkomin.
Jói Fel notar eingöngu
Odense marsípan.
Bjóðum gestum upp á
rjúkandi heitt Illy kaffi.