Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 56
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 31. MARS 20124 Ferðin er ætluð konum á öllum aldri og boðið verður upp á mjög fjölbreytta dagskrá sem hentar öllum aldri. „Tilgangurinn er að vinda ofan af sér eftir veturinn og endurhlaða batteríin fyrir sum- arið,“ segir Anna Borg, fararstjóri ferðarinnar, sem einnig er sjúkra- þjálfari hjá Heilsuborg. Með henni verður Sigríður Arnardóttir, Sirrý, fararstjóri en hún var að senda frá sér bókina Blómstraðu í lífi og starfi - Laðaðu fram það góða. Allir sem skrá sig í ferðina fá eintak af bók- inni. Hollur lífsstíll „Í ferðinni tvinnast saman hreyf- ing, gleði, dekur og fræðsla. Við viljum stuðla að þeim þáttum sem snúa að betri heilsu. Á hverj- um morgni hreyfum við okkur og teygjum síðan á ströndinni. Boðið verður upp á heilsusamlegan mat en hálft fæði er innifalið. Okkar markmið er að innleiða heilbrigðar venjur án öfga. Við viljum sem sagt finna hinn gullna meðalveg,“ segir Anna. „Sirrý verður með frábæra dagskrá sem byggir á nýju bókinni hennar. Sjálf starfa ég sem sjúkra- og einkaþjálfari hjá Heilsuborg og mun hafa alla þjálfun einstaklings- miðaða. Það ættu því allir að geta tekið þátt í því sem fram fer. Ég vil gjarnan hjálpa konunum að finna sitt jafnvægi og tileinka sér holl- ari lífsstíl án skyndilausna. Það er betra að finna sér réttan farveg til að árangurinn verði varanlegur,“ segir Anna. „Fyrir utan hreyfingu og hollt mataræði bjóðum við upp á dekur, enda er þetta spa-hótel. Leirböð eru í boði, við förum í vínsmökk- unarferð og við kíkjum í verslan- ir. Það verður boðið upp á eitthvað skemmtilegt alla dagana,“ segir Anna og bætir því við að öll þátt- taka í dagskránni er frjálst val. Dekur og lúxus Hótelið sem dvalið verður á er sunnan við Alicante. Það er fjög- urra stjörnu og heitir Costa Nar- ejos. Það er í Los Alcazares sem er 100 metrum frá stærsta innhafi Evrópu, Mar Menor. Strandlengj- an einkennist öll af miklum hrein- leika og góðri aðstöðu. Á hótelinu er líkamsræktarsalur og heilsu- lind þar sem boðið er upp á nudd og snyrtimeðferðir. Golf er innan seilingar frá hótelinu. Þetta er í annað sinn sem Anna og Sirrý fara með hóp í heilsuferð til Spánar og segja þær að mjög skemmtileg stemning hafi skap- ast í fyrra. Engin einmana „Það sem mér finnst svo gott við þessar ferðir er að konurnar koma á sínum forsendum. Þær velja úr dagskránni sem hentar þeim en þetta eru konur á öllum aldri,“ segir Sirrý. „Margar eru þreyttar eftir veturinn og vilja fá sól, hvíld og dekur á meðan aðrir vilja taka sig í gegn. Ég býð upp á samveru- stundir úti við sundlaugina þar sem ég spjalla um samskiptafærni og að laða til okkar það góða. Það má kannski segja að við Anna bætum hvor aðra upp, þar sem hún sér um líkamlega hlutann á meðan ég er með þann andlega. Ég hef haldið mörg námskeið fyrir hópa og er vön að passa upp á að öllum líði vel. Sumar konur koma einar í ferðina en það er engin einmana í þessari ferð. Mæðgur koma saman eða vin- konur eða heill saumaklúbbur. Á hótelinu er boðið upp á allan mat en kokkurinn útbýr hlaðborð með hollusturéttum að auki fyrir okkur. Konurnar ráða því þó alveg sjálfar hvað þær velja,“ segir Sirrý. „Við byrjum hvern dag á vatni og ávöxtum og förum svo í gönguferð. Ef dagurinn er tekinn snemma fær maður miklu meira út úr vikunni. Svo má fá sér blund við sundlaug- ina ef einhver er þreyttur. Það er samt mjög gott að koma blóðinu á hreyfingu og fá smá orku snemma dags,“ segir Sirrý. Fyrir þá sem vilja fá frekari upp- lýsingar má hafa samband á net- fangið: heilsuborg@heilsuborg.is eða sirry@sirry.is Ferðina þarf að panta hjá ferða- skrifstofunni Vita og kostar hún frá 164.900 krónum miðað við að nýta 15.000 vildarpunkta en verð án vildarpunkta er 174.900 krónur. Heilsuferð til Spánar þar sem konur blómstra Heilsuborg efnir til kvennaferðar til Spánar 23.-30. maí þar sem áhersla verður lögð á heilbrigðan lífsstíl, gleði, dekur og fræðslu. Teygjur á ströndinni eftir hressandi morgungöngu. Anna Borg og Sirrý Arnar gæta þess að allar konur blómstri á Spánarströndinni. MYND/VALLI GRANNASTRÍÐ Í SKANDINAVÍU Það eru ekki allir sáttir við að Svíar skuli auglýsa Stokkhólm sem höfuðstað Skandinavíu, „Capital of Scandinavia“. Nú hefur norskur ferðamálastjóri kvartað formlega yfir þessu slagorði og segir það misvísandi. „Stokkhólmur liggur í útjaðri Skandinavíu og er með þriðja stærsta flugvöllinn á Norðurlöndum. Það getur því ekki verið rétt að kalla borgina þessu nafni,“ segir Norðmaðurinn. Frá árinu 2005 hefur Stokkhólmur markaðssett sig undir þessu slagorði sem hefur vakið talsverða reiði íbúa hjá grannþjóðunum, Noregi og Danmörku. Margir Kaupmannahafnarbúar hafa sent kvörtunarbréf til markaðsstofunnar. Svíarnir svara með því að vísa til þess að borgin sé miðsvæðis, íbúar séu 3,5 milljónir og að þeir fái um 40% ferðamanna sem heimsækja Skandinavíu. Auk þess benda þeir á að í Stokkhólmi séu Nóbelsverðlaunin afhent. Norðmaðurinn kaupir ekki þessa skýringu. Hann telur að Ósló, Kaupmannahöfn og Gautaborg séu mun meira miðsvæðis en Stokkhólmur. Einnig bendir hann á að bæði Kastrup-flugvöllur og Gardermoen séu stærri en Arlanda. Þá minnir hann á að friðarverð- launin séu veitt í Ósló. Loks bendir norski ferðamála- stjórinn á að Skandinavía sé hvorki ríki eða land og geti því ekki haft eigin höfuðborg. „Stokkhólmur er ekkert betri en aðrar höfuðborgir í Skandinavíu,“ skrifar Norðmaðurinn. Aftonbladet.se og vg.no greina frá þessu. LAXNESS YFIR SÆNSKUM KJÖTBOLLUM Stokkhólm er gaman að heim- sækja allan ársins hring og borða góðan mat. Í borginni er fjöldi veitingastaða þar sem huggulegt er að tylla sér með góða bók, eftir Laxness til dæmis. Þeir sem vilja kynnast ekta sænskum mat og eiga náðuga stund með góða bók yfir sænskum kjötbollum, skel- fiski eða laxi ættu að kíkja á Den Gyldene Freden en staðurinn er í eigu Sænsku akademíunnar sem velur Nóbelsverðlaunahafa í bók- menntum. Segir sagan að við eitt ákveðið borð í matsalnum hafi ákvarðanir um Nóbelsverðlauna- hafa verið teknar í gegnum tíðina. Því má vel ímynda sér að Halldór Laxness hafi eitt sinn verið til umræðu við borðið í kjallaranum meðan Nóbelsnefndin gæddi sér á kjötbollum. Veitingastaðurinn er í elsta hverfi borgarinnar, Gamla Stan, í kjallara gamallar byggingar en á vefsíðunni www.visitstock- holm.com er að finna upplýsingar um staðinn auk fjölda annarra áhugaverðra staða, hótela og afþreyingar í borginni. HELLA Í EYRUM Hella í eyrum er hvimleiður fylgikvilli flugferða en af hverju fáum við hellu? Eyrað skiptist í þrjá hluta, úteyra og hlust, miðeyra eða hljóðhol og innra eyra. Úteyrað og hljóð- holið eru fyllt lofti og skilur hljóð- himnan á milli. Hellan stafar af þrýstingsmun yfir hljóðhimnuna og myndast þegar skyndileg breyting verður á innri eða ytri þrýstingi. Kokhlustin, sem er mjög grönn pípa, tengir mið- eyrað við kokið og þegar hún opnast kemst auka loft út og þrýstingurinn jafnast. Þess vegna má reyna að geispa eða kyngja til að losna við helluna. Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.