Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 78
31. mars 2012 LAUGARDAGUR16
Rafstrengir til sölu
Landsvirkjun óskar eftir kauptilboðum í 36 kV rafstrengi.
Strengirnir eru framleiddir árið 2003, eru ónotaðir og verða
seldir á trékeflum sem geymd eru í Hafnarfirði.
Lengd Leiðari Lýsing
1. 416 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 4
2. 416 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 1
3. 414 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 3
4. 420 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 3
5. 415 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 3
6. 415 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 3
7. 290 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 3
8. 290 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 4
9. 290 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 4
10. 1000 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 1
11. 1000 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 1
12. 1000 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 1
13. 1000 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 1
14. 1000 m 1X240q AL 36kV TSLE w/extra sheath 2,3mm 1
Rafstrengirnir verða til sýnis að Fornubúðum 1, Hafnarfirði,
miðvikudaginn 11.apríl n.k. frá 9-12 f.h.
Allar nánari upplýsingar veitir Dagur Georgsson, sími 515-
9191.
Kaupandi skal fjarlægja strengina frá núverandi
geymslustað fyrir 1. maí 2012.
Brottflutningur og öll gjöld sem þarf að greiða vegna
þessa verks eru á kostnað kaupanda og skulu innifalin í
tilboðsfjárhæð.
Tilboðsverð skal miðast við staðgreiðslu.
Tilboðum, merkt ”innkaupadeild – rafstrengir”, skal skila í
móttöku Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, í
síðasta lagi kl. 12:00 þriðjudaginn 17. apríl 2012.
Landsvirkjun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Starfsmannasjóðs SPRON ehf.,
kt. 700702-2430 verður haldinn á skrifstofu KPMG ehf.,
að Borgartúni 27, Reykjavík, 11. apríl 2012, kl. 16:30.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf, skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um leiðréttingu á skráningu nafnverðs stofnhlutafjár.
3. Tillaga um hækkun hlutafjár með útgáfu nýrra hluta.
4. Tillaga um lækkun hlutafjár, til jöfnunar taps.
5. Breytingar á samþykktum og lögheimili félagsins.
6. Önnur mál.
Framangreind dagskrá verður afgreidd í þeirri röð sem að ofan
greinir nema annað verði ákveðið af fundarmönnum. Tillögur
stjórnar og önnur fundargögn munu verða hluthöfum til sýnis
á skrifstofu KPMG ehf., að Borgartúni 27, Reykjavík, viku fyrir
boðaðan fundartíma.
Athygli er vakin á því að tillaga um hækkun hlutafjár felur í sér
að vikið verði frá forkaupsrétti hluthafa, á grundvelli 3. mgr.
24. gr. laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög, á þann hátt að
hluthafar hafa ekki rétt til að skrá sig fyrir nýjum hlutum. Til-
lagan er liður í ákvörðun stjórnar um að leitast við að einfalda
slitaferli félagsins. Tillaga um lækkun hlutafjár felur í sér að
hlutafé núverandi hluthafa verður fært niður að fullu.
fyrir hönd stjórnar
Jónas Rafn Tómasson, hdl.
Ört vaxandi félag í ferðaþjónustu í
Reykjavík sem meðal annars rekur
gististarfsemi í miðborginni leitar
að 50% meðeiganda.
Félagið er með sterkan efnahag og er í góðum rekstri.
Fyrir liggja plön um stækkun gistirýmis félagsins.
Áhugasamir fjárfestar þurfa að geta sýnt fram á
fjárfestingargetu yfir 70 milljónir kr.
Nánari upplýsingar fást í síma 571-5040.
Veritas Lögmenn & Veritas Ráðgjöf
Borgartúni 28, 105 Reykjavík
www.kopavogur.is
KÓPAVOGSBÆR
Kópavogsbær auglýsir eftir annars vegar verkstjóra og
hins vegar trésmiðum í viðhaldsverkefni og endurbætur á
húsnæði Kópavogsbæjar.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni og menntunar- og
hæfniskröfur er að finna á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um störfin
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2012.
Upplýsingar veitir Gunnar Már Karlsson, deildarstjóri eignadeildar, í
síma 570-1550 eða á netfanginu gunnarka@kopavogur.is
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef
Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Verkstjóri og trésmiður
Vakin er athygli á að öll laus störf hjá bænum
eru auglýst á www.kopavogur.is
Náttúrufræðikennari og
stærðfræðikennari
óskast við Varmárskóla
Varmárskóli auglýsir eftir náttúrufræði- og stærðfræðikennara við
unglingadeild skólaárið 2012-2013. Meðal kennslugreina er efnafræði,
eðlisfræði og stærðfræði á unglingastigi. Leitað er eftir kröftugum
einstaklingi með góða samskiptahæfileika og færni til að miðla efni og
kveikja áhuga nemenda á vísindum og raungreinum.
Skólinn leitar eftir einstaklingi sem væri til í að þróa raungreinakennslu
við skólann og vera leiðbeinandi fyrir aðra kennara í kennslu þessara
greina á yngra stigi í teymi með öðrum raungreinakennurum.
Deildarstjóri í sérkennslu
Varmárskóli auglýsir eftir deildarstjóra sérkennslu við Varmárskóla.
Starfið felst í 50% stjórnun og 50% sérkennslu. Viðkomandi aðili
sér um skipulagningu sérkennslu frá 5.-10.bekk, yfirumsjón með
stuðningsúrræðum og stefnumótandi vinnu í sérkennslumálum
skólans. Leitað er eftir einstaklingi með reynslu í stjórnun og góða
samskiptafærni. Æskilegt er að viðkomandi sé með framhaldsnám í
sérkennslufræðum..
Bókasafnsfræðingur
Varmárskóli auglýsir eftir bókasafnsfræðingi í 100% á starfstíma skóla í
starf á bókasafn eldri deildar.
Leitað er eftir einstaklingi með góða samskiptahæfni sem hefur gaman
að því að umgangast börn.
Viðkomandi þarf að hafa umsjón með safninu, sjá um skipulagningu,
skjalastjórnun og skráningu bóka, auk þess sem samstarf við kennara er
lykilatriði.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Góð íslenskukunnátta
skilyrði. Frekari upplýsingar veita skólastýrur Þórhildur Elfarsdóttir
s. 863- 3297 og Þóranna Rósa Ólafsdóttir s. 899-8465
Umsóknir með ferilsskrá sendist á netfangið:
varmarskoli [hjá] varmarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2012
sími: 511 1144
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur