Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 79

Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 79
LAUGARDAGUR 31. mars 2012 17 Bæjarsjóður Seltjarnarness óskar eftir tilboðum í sorphreinsun á Seltjarnarnesi 2012-2017. Í verkinu felst tæming á sorp- og endurvinnsluílátum á Seltjar- narnesi, ásamt fl utningi á sorpi í sorpmóttökustöðvar. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar www.vso.is/utbod þriðjudaginn 3.apríl 2012. Tilboðum skal skila fyrir kl: 14:00, mánudaginn 21.maí 2012 á skrifstofu VSÓ Ráðgjafar Borgartúni 20, 105 Reykjavík. Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í maí 2012, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið mun hefjast mánudaginn 21.maí 2012. kl. 08:00 – 16.00 og standa dagana 21.,- 22., 23.,- 24. maí 2012 og lýkur með prófi laugar- daginn 2. júní 2012. Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 57.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til upprifjunar. Upplýsingar og umsóknareyðublað fást hjá IÐUNNI- fræðslu- setri, Skúlatúni 2, Reykjavík eða vefsetrinu www.idan.is. Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR útfylltum ásamt 1) afriti af prófskírteini umsækjanda, 2) vottorði frá iðnaðarráðuneyti um réttindi til starfsheitis, 3) vottorði faglegs yfirmanns um starfsreynslu, sbr. 1.mgr. 26.gr. laga um mannvirki, eigi síðar en mánudaginn 7. maí 2012. Nánari upplýsingar í síma 590 6434. Mannvirkjastofnun. Skúlagötu 21, 101 Reykjavík. Frá Alþingi Styrkir til að stuðla að umræðu og fræðslu um Evrópusambandið. Samkvæmt ákvörðun á fjárlögum Alþingis er auglýst eftir styrkumsóknum til að stuðla að opinberri og upplýstri umræðu og fræðslu um Evrópusambandið, stefnu þess og áhrif hugsanlegrar aðildar Íslands að sambandinu. Að þessu sinni er úthlutunarfé til ráðstöfunar allt að 19 milljónir króna. Styrkir eru veittir til íslenskra félaga og félagasamtaka sem, samkvæmt tilgangi sínum, fjalla um málefni Evrópusambandsins og lýsa sjónarmiðum sínum með eða móti hugsanlegri aðild að sambandinu. Hlutlausri upplýsingamiðlun er sinnt með samstarfs- verkefni Alþingis og Vísindavefs Háskóla Íslands um Evrópuvefinn. Styrkir eru eingöngu veittir til skýrt afmarkaðra verkefna, svo sem til þess að: a. útbúa efni og birta það í blöðum, ritum eða með öðrum hætti, b. halda opna fundi og ráðstefnur, c. standa fyrir fyrirlestrum sérfræðinga, d. standa fyrir ýmiss konar fræðslustarfsemi. Ekki er heimilt að veita styrki til eiginlegs reksturs, m.a. rekstur skrifstofu, þ.m.t. húsaleigugreiðslur og launagreiðslur til starfsfólks. Ekki eru veittir styrkir til einstaklinga. Hægt er að sækja um styrki til fleiri en eins verkefnis í sömu umsókn. Vakin er athygli á reglum úthlutunarnefndar, sem nálgast má á vefslóðinni: www.althingi.is/s1 Styrkhafar skulu fyrir lok árs og við lok styrkts verk- efnis skila skýrslu til úthlutunarnefndar um ráðstöfun styrkjanna. Umsóknarfrestur um styrki er til þriðjudagsins 1. maí 2012. Umsóknir skulu berast skrifstofu Alþingis, merktar: ESB fræðslu- og umræðustyrkir Jörundur Kristjánsson, ritari úthlutunarnefndar Skrifstofa Alþingis 150 Reykjavík Umsóknareyðublöð er að finna á vefslóð Alþingis (www.althingi.is) og allar frekari upplýsingar veitir Jörundur Kristjánsson, ritari úthlutunarnefndar, netfang: jorundurk@althingi.is Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun liggi fyrir í maímánuði. ÚTBOÐ Raforkukaup Hafnarfjarðarbæjar Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í raforku fyrir sveitarfélagið til næstu 4 ára. Um er að ræða alla raforkunotkun sveitarfélagsins og stofnanna þess auk götulýsingar. Útboðið er auglýst á EES svæðinu. Útboðsgögn verða afhent á tölvutæku formi hjá Helgu Stefánsdóttur á Umhverfis- og framkvæmdasvið Hafnarfjarðarbæjar frá og með mánudeginum 2. apríl 2012 í gegnum netfangið Helgas@hafnarfjordur.is Tilboðum skal skilað í móttöku Umhverfis- og fram- kvæmdasviðs Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, fyrir klukkan 13:00 mánudaginn 21. maí 2012 þar sem þau verða í kjölfarið opnuð og lesin upp að viðstödd- um þeim bjóðendum sem þess óska. ÚTBOÐ FRAMHALDSSKÓLINN Í MOSFELLSBÆ ÚTBOÐ NR. 15293 Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. mennta- og mennin- garmálaráðuneytis og Mosfellsbæjar, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við nýbyggingu framhaldsskóla í Mosfellsbæ á lóð við Háholt ( Bjarkarholt ) í Mosfellsbæ. Haldin var arkitektasamkeppni um hönnun skólans og er það vinningstillagan sem á að byggja. Skólinn er ætlaður fyrir 400 til 500 nemendur og heildarstærð hússins 4.100 m². Húsið er byggt úr staðsteyptri steinsteypu og klætt að utan með lerki annars vegar og sjónsteypu hins vegar. Á þaki verður gróður- þekja. Húsið er byggt í tveimur 3. hæða álmum, sem ýmist eru með sjónsteypu eða klæddar með lerkiviði. Tengibygging milli álmanna er úr gleri. Frágangur lóðar er hluti verksins. Byggingin er hönnuð skv. BIM aðferðarfræðinni og með það að markmiði að fá alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt BREEAM. Vettvangsskoðun verður haldin á verkstað þann 12. apríl 2012, kl. 13:00 - 14:00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa. Helstu magntölur eru áætlaðar: Vegg og bitamót 8.400 m² Plötumót 4.100 m² Bendistál 244.000 kg Steinsteypa 2,500 m³ Stálvirki 29.000 kg Málun innanhúss 9.200 m² Dúkalögn 2.500 m² Álundirkerfi og einangrun 1.700 m² Timburklæðning á álkerfi 1.650 m² Viðsnúið þak 1.700 m² Þökulagning og sáningar 9.000 m² Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 16. nóvember 2013. Nánari upplýsingar er að finna finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, 10. maí 2012 kl.11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. ÚTBOÐ Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verkþætti. 1. Vélsópun gatna í Hafnarfirði 2012 Opnun tilboða þriðjudaginn 17. apríl kl. 11:20 Óskað eftir tilboði til 1, 3 eða 5 ára 2. Viðgerðir á steyptum gangstéttum í Hafnarfirði 2012 Opnun tilboða þriðjudaginn 17. apríl kl. 11:00 Áætlað magn ca 350 m² Útboðsgögn verða seld hjá Framkvæmdasviði Hafnarfjarðar, Norðurhellu 2 frá og með mánudeginum 2.april á kr. 2.000.- fyrir hver tilboðsgögn. Tilboð verða opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Framkvæmdasvið Hafnarfjarðar. The Clone Wars Stjörnustríð á Cartoon Network CARTOON NETWORK ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.