Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 94

Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 94
ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is REYNSLA UMHYGGJA TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta VIÐ ERUM NÚNA Á 4 STÖÐUM! STÆRRI PIZZA AF MATSEÐLI 1.990 KR. MINNI PIZZA AF MATSEÐLI 1.490 KR. 8 – Margt smátt ... Þegar herðir að hjá fjölskyldum leiðir það stundum til þess að það sem áður var eðlilegt og auðvelt verður nær ómögulegt. Þetta getur t.d. átt við skólagöngu ungmenna í framhaldsskóla. Þröngur fjárhagur fjölskyldu getur leitt til þess að ekki er til peningur til að greiða skólagjöld, námsgögn og annað sem fylgir námi í framhaldsskóla. Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar styður ungmenni 16-2O ára til stúdentsprófs, sveinsprófs eða annars sem leiðir til starfsréttinda eða opnar leið til háskólanáms. Nemendur fá aðstoð við að greiða námsgögn, skólagjöld, kaupa tölvu eða greiða annað sem gæti orðið efnaminni nemendum hindrun í að ljúka námi. Menntun eykur líkur á öruggri framfærslu og farsælu lífshlaupi. Stuðningur sem ræður úrslitum Þau eru orðin mörg ungmennin sem haf tjáð þakklæti fyrir stuðninginn, sem gerði gæfumuninn. Komið stolt á skrifstofu Hjálparstarfsins með útskriftarskírteinin með bros á vör og von í brjósti um góða framtíð í starfi eða áframhaldandi námi. Þetta á við um strákinn sem lauk námi í bifvélavirkjun og fékk vinnu á verkstæði og stúlkuna sem hóf nám í háskólanum í læknisfræði sem hafði verið hennar draumur frá barnæsku. Það eru líka ófá dæmi um einstaklinga sem hafa komið og viljað leggja sitt af mörkum í Framtíðarsjóðinn sem þeir nutu stuðnings úr þegar á þurfti að halda. Virkjum unga fólkið Aðstæður eru ólíkar og lausnir Hjálparstarfsins því mjög einstaklingsbundnar. Enn allar miða að því að hjálpa ungu fólki að ljúka námi. Þannig virkjum við hæfileika og vilja ungs fólks til að vera nýtir samfélags- þegnar sem skapa sér eigin framtíð. Þú getur styrkt þennan þátt í starfi okkar til dæmis með gjafabréfi í Framtíðarsjóðinn á gjofsemgefur.is. Þú getur stutt innanlandsaðstoð okkar með því að greiða valkröfu í heimabankanum þínum eða leggja inn á reikning O334-26-886, kt. 45O67O-O499. Hjálparstarf kirkjunnar veitir ungmennum um allt land stuðning til að ljúka framhaldsnámi til starfsréttinda eða lánshæfs náms. Það er ein leið til að rjúfa vítahring lítillar menntunar, lágra launa og fátæktar. Ekki sjálfsagt fyrir alla að ljúka námi í framhaldsskóla Framtíðarsjóður styður ungmenni til náms sem leiðir til starfsréttinda. Mynd: Þorkell Þorkelsson. Að eiga ekki fyrir lyfjum Ein afleiðing efnahagslegra þrenginga og niðurskurðar á Íslandi er að sumir þeirra sem eru svo ólánsamir að þurfa lyf eiga í erfileikum með að standa undir kostnaði. Bæði er að tekjuafgangur hefur minnkað og gjöld og verð hafa hækkað. Mikil aukning hefur orðið á beiðnum um stuðning vegna lyfjakostnaðar. Lyf & heilsa hefur stutt myndarlega við Hjálparstarf kirkjunnar og stofnað sjóð sem veitt er úr til lyfjakaupa. Önnur lyfjafyrirtæki hafa einnig veitt stuðning. Ekki hvaða lyf sem er Strangar reglur gilda um hvaða lyf er hægt að greiða. Til dæmis er ekki veittur stuðningur vegna lyfja sem er hægt að selja á götunni, lyfja sem fólk er með lyfjakort fyrir og lyf sem fólk notar að staðaldri. Hjálparstarfið getur, fjárhagsins vegna, aðeins greitt lyf sem fólk þarf óvænt á að halda vegna skyndilegrar uppákomu. Að vera sendur heim af spítala og geta svo ekki keypt þau lyf sem þarf er staða sem margir þekkja, því miður. Í slíkri neyð er gott að geta fengið stuðning ekki síst á þetta við þegar börn eiga í hlut og aldraðir. Fyrstu merki um efnahagsbata hljóta að vera að allir eigi fyrir lyfjum Fyrstu merki þess að úr sé að rætast í efnahagsmálum Íslands hljóta að vera að enginn þurfi að upplifa að eiga ekki fyrir lyfjum. Það hlýtur að vera eitt af forgangs- verkefnum yfirvalda að koma þessum málum í lag. Að segja að ástandið sé að batna, að tökum hafi verið náð á vandanum, en leysa ekki úr þessum málum er ótrúverðugt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.