Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 8
31. mars 2012 LAUGARDAGUR8
Gjafabréf Icelandair gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
BROT AF HEIMINUM
Í FERMINGARGJÖF
Gjafabréf Icelandair gildir sem greiðsla upp í flugfar
til allra áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku.
Þú velur upphæðina.
+ Pantaðu fermingargjöfina á www.icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
I
C
E
5
83
51
0
2/
12
MALLORCAsólareyjan sem hefur allt!
Aparthotel Mara
caibo
75.900 kr.*á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð
með 1 svefnherbe
rgi. verð frá 89.9
00 kr
á mann m.v. 2 fu
llorðna.
Brottför: 22. maí
- 7 nætur.
Verð frá:
Flug + gisting í 7
nætur
tilbo
ð
Bókaðu núna á plúsferðir.is!
SAMKEPPNISMÁL Bankar eru í
ráðandi stöðu í 27% af 120 stærstu
fyrirtækjum landsins í byrjun
árs 2012. Þeir voru í slíkri stöðu
í 46% þeirra í byrjun árs 2011 en
á síðasta ári voru 20 stór fyrir-
tæki seld eða endurskipulögð með
þeim hætti að bankarnir hafa ekki
lengur þau ítök í rekstri fyrir-
tækjanna sem þeir höfðu áður.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Samkeppniseftirlitsins sem ber
heitið „Endurreisn fyrirtækja 2012
− aflaklær eða uppvakningar?“
Skýrslan verður birt opinberlega
á mánudag.
Í henni kemur fram að stór
íslensk fyrirtæki eru mjög skuld-
sett í alþjóðlegum samanburði.
Þar segir að „eftirtektarvert er
að skuldir fyrirtækja sem lokið
hafa endurskipulagningu eru eftir
sem áður almennt mjög miklar.
Um þriðjungur stjórnenda stærri
íslenskra fyrirtækja, sem hafa
verið seld eða gengið í gegnum
endurskipulagningu, telja að fyrir-
tækið geti ekki staðið undir nú-
verandi skuldabyrði eða að óvíst
sé að það geti staðið undir henni.“
Að mati Samkeppniseftir-
litsins stafa margvíslegar hætt-
ur af mikilli skuldsetningu fyr-
irtækja. Þau geti hvorki veitt
keppinautum aðhald né starfað
með skil virkum hætti á markaði.
Í skýrslunni segir að „hætt er við
því að slíkt fyrirtæki ákveði verð
á vöru eða þjónustu í samræmi við
slæma skuldastöðu sína sé þess
nokkur kostur. Hættan á þessu
er þeim mun meiri eftir því sem
samkeppni á þeim markaði sem
fyrir tækið starfar á er minni og
markaðs hlutdeild þess meiri“.
Samkeppniseftirlitið ætlar á
næstunni fyrst og fremst að beina
sjónum sínum að tvennu í tengslum
við eftirlit með endurskipu-
lagningu fyrirtækja. Annars vegar
eftirliti með arðsemismark miðum
fyrirtækja sem enn eru undir
yfirráðum banka og hins vegar
að tryggja að raunveruleg yfirráð
banka yfir fyrirtækjum séu uppi á
borðum. Eftirlitið hefur að undan-
förnu haft til skoðunar nokkur mál
þar sem kannað er hvort myndast
hafi yfirráð banka yfir fyrir-
tækjum samkvæmt samkeppnis-
lögum. Í skýrslunni segir að þetta
sé sérstaklega mikilvæg spurning
vegna „mikillar skuldsetningar
fyrirtækja og möguleika banka til
að hafa áhrif á rekstur skuldsettra
fyrirtækja í gegnum skilmála í
lánasamningum og gjaldfellingar-
ákvæði.“ thordur@frettabladid.is
Þriðja hvert
stórfyrirtæki
í eigu banka
Bankar réðu yfir 27% af 120 stærstu fyrirtækjum
landsins í byrjun þessa árs. Stórum fyrirtækjum
undir yfirráðum banka fækkaði um 20 í fyrra.
NÝ SKÝRSLA Með útgáfu skýrslunnar er Samkeppniseftirlitið að fylgja eftir stærri
skýrslu, „Samkeppnin eftir hrun“, sem gefin var út sumarið 2011. Páll Gunnar Pálsson
er forstjóri eftirlitsins.
Rangir hvatar eiga enn við
Skýrsla Samkeppniseftirlitsins er framhald af skýrslunni „Samkeppnin eftir
hrun“ sem birt var sumarið 2011. Þar voru meðal annars skilgreindir rangir
hvatar sem tefðu fyrir endurskipulagningu fyrirtækja. Í nýju skýrslunni segir
að hinir röngu hvatar eigi að mestu enn við. Þeir eru:
1. Umsýsluvandi: Þeir sem vinna við lausn vandamálanna hafa af því tals-
verðar tekjur og byggja lifibrauð sitt á því.
2. Stjórnunarvandi: Þeir sem stjórna fyrirtækjum í eigu banka venjast
honum sem eiganda og búa ekki við nauðsynlegan aga við ákvörðunartöku.
3. Eigendavandi: Kröfuhafar hafa hagsmuni af því að hámarka virði krafna
sinna og hætt við að þeir horfi til of skamms tíma vegna þessa.
4. Ákvörðunarvandi: Hræðsla við stöðuga gagnrýni vegna ákvarðana sem
teknar hafa verið.
5. Sanngirnisvandi: Sterk krafa um sanngirni og jafnræði við fjárhagslega
endurskipulagningu fyrirtækja.
FERÐAÞJÓNUSTA Allir sem bjóða
ferðir innanlands þurfa að útbúa
öryggisáætlun, nái nýtt frumvarp
um breytingu á
lögum um skip-
an ferðamála
fram að ganga.
Oddný
Harðar dóttir,
ráðherra ferða-
mála, greindi
frá því á aðal-
fundi SAF,
að hún byndi
miklar vonir
við þá hluta frumvarpsins sem
snúa að öryggi ferðamanna. „Í
öryggis áætlun á að koma fram
mat á áhættu viðkomandi ferðar
og lýsing á því hvernig ferða-
skipuleggjandi hyggist bregðast
við beri vá að höndum í ferðinni,“
segir í tilkynningu SAF. - óká
Breytt skipan ferðamála:
Allir verði með
öryggisáætlun
ODDNÝ
HARÐARDÓTTIR
SAMFÉLAGSMÁL „Við erum með
allan mála flokkinn til endurskoð-
unar,“ segir Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra og kveðst
taka mjög alvarlega yfirlýsingu
sem Íslensk ætt leiðing (ÍÆ) um
óvissu sem ríki um framtíð ætt-
leiðina.
Ögmundur segir ljóst að félagið
standi völtum fótum vegna bágr-
ar fjárhagsstöðu. Engin ákvörðun
hafi þó verið tekin um aukna fjár-
veitingu ríkisins til félagins.
Ögmundur segist meðvitaður
um mikilvægi félagsins og það
hlutverk sem það gegnir. Engu
að síður sé staðreynd að þrengt
hafi verið að því eins og víða í
velferðar þjónustunni. „En ég tek
þessu máli alvarlega og hef á því
fullan skilning.“
Hann hefur lagt málefni ÍÆ
fyrir ríkisstjórnina en eins og
áður sagði hefur engin ákvörðun
verið tekin um framtíð þess.
Félagið hefur lýst því yfir að
fái það ekki frekara fjármagn
frá ríkinu geti komið til þess að
lokað verði fyrir nýjar um sóknir
um ættleiðingar á þessu ári.
Framlag til ÍÆ í ár var 9,2
milljónir króna, en forsvarsmenn
telja það þurfa um 54 milljónir
króna til að geta sinnt lögbundnu
hlutverki sínu.
Hörður Svavarsson, formaður
ÍÆ, segir viðbrögð ráðherra sýna
að framtíð félagsins sé enn jafn
óljós og erfið og hún var áður.
„Það tekur auðvitað tíma
fyrir stjórnvöld að bregðast við
fréttum, en við höfum ekki heyrt
neitt frá þeim síðan þessi staða
komst í hámæli,“ segir hann. „Við
vitum að það vilja allir þessum
málaflokki voðalega vel, en það
bara gerist ekkert. Það er það sem
við höfum horft á í þrjú ár.“ - sv
Innanríkisráðherra hefur lagt málefni Íslenskrar ættleiðingar fyrir ríkisstjórnina en engin niðurstaða er komin:
Þarf að endurskoða málaflokkinn í heild
ÆTTLEIÐING Íslensk ættleiðing er eina
ættleiðingafélagið hér á landi og þurfa
því allir verðandi foreldrar ættleiddra
barna að sækja um í gegnum það.
NORDICPHOTOS/GETTY
1. Hvað heita sakborningarnir í Al
Thani málinu?
2. Hvaða verðgildi fær nýr
peninga seðill sem gefa á út?
3. Hvað söfnuðust miklir peningar
í átakinu Mottumars?
SVÖR
1. Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guð-
mundsson og Ólafur Ólafsson. 2. Tíu þúsund
krónur. 3. Næstum 30 milljónir króna.
VEISTU SVARIÐ?