Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 10
31. mars 2012 LAUGARDAGUR10
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli,
þriðjudaginn 10. apríl nk. og hefst fundurinn kl. 19:30.
Aðalfundur VR
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Innborgun í VR varasjóð
Nýja línan frá Weber komin!
Vortilboðsdagar
á Webergrillum
og grilláhöldum
Tilboðin gilda laugardag og sunnudag
PAKISTAN, AP Osama bin Laden
bjó á fimm mismunandi stöðum í
Pakistan eftir að hann fór í felur
síðla árs 2001 og þangað til banda-
rískir sérsveitarmenn drápu hann
í maí 2011.
Á þessum árum eignaðist hann
fjögur börn. Tvö þeirra fæddust
á ríkissjúkrahúsum. Þetta kemur
fram í skjölum pakistönsku lög-
reglunnar sem hefur yfirheyrt
þrjár ekkjur bin Ladens.
Pakistanska dagblaðið Dawn
komst yfir þessi skjöl og hefur
birt úr þeim ýmsar upplýsingar.
Í framhaldi af því hafa vestrænir
fjölmiðlar skýrt frá efni skjalanna.
Mohammed Amir Khalil, lög-
maður ekknanna, segir að þeim
verði á næstu dögum birtar á kærur
fyrir að dveljast með ólöglegum
hætti í Pakistan. Þær gætu átt yfir
höfði sér allt að fimm ára fangelsi.
Yngsta ekkjan, Amal Ahmed
Abdel-Fatah al-Seda, sem er þrí-
tug og fædd í Jemen, segist hafa
flúið til Pakistans árið 2000. Þaðan
hélt hún til Afganistan þar sem
hún giftist bin Laden nokkru fyrir
árásirnar á Bandaríkin þann 11.
september.
Eftir að bandarískir sérsveitar-
menn drápu bin Laden á heimili
hans í Obottabad hefur komið í ljós
að síðan 2002 hafði hann að mestu
dvalist í Pakistan.
Samkvæmt yfirheyrsluskjölum
pakistönsku lögreglunnar segir al-
Sada að fjölskyldan hafi sundrast
fyrst eftir að bin Laden fór í felur.
Hún sjálf fór til borgarinnar
Karachi í Pakistan, en hitti bin
Laden síðar í borginni Peshawar
og þau hafi síðan flutt til Swat-
dalsins, þar sem þau bjuggu í
tveimur húsum.
Árið 2005 fluttu þau svo til
Abottabad, borgarinnar þar sem
bin Laden fannst loks eftir níu ára
leit fyrir tæpu ári.
Meðan Bandaríkjamenn gerðu
dauðaleit að bin Laden í nærri
áratug sögðust flestir bandarísk-
ir og pakistanskir ráðamenn telja
nokkuð öruggt að hann væri í
felum öðru hvoru megin við landa-
mæri Afganistans og Pakistans.
Hugsanlega í helli.
Þegar svo í ljós kom að hann
hafði verið búsettur í fjöl mennum
borgarhverfum í Pakistan, þá vakn-
aði grunur um að ráðandi öfl innan
pakistönsku leyniþjónustunnar eða
hersins hafi haldið hlífiskildi yfir
honum. Bandarískir embættismenn
hafa síðar fullyrt að ekkert hafi
fundist, sem geti staðfest þennan
grun. gudsteinn@frettabladid.is
Faldi sig í
þéttbýlinu
Yfirheyrslur yfir ekkjum hryðjuverkaleiðtogans
Osama bin Laden hafa gefið mynd af ferðum hans
og dvalarstöðum árin sem hann var í felum.
LÖGREGLUVÖRÐUR Ströng öryggisgæsla er við hús í Islamabad þar sem ekkjur
Osama bin Ladens eru taldar hafðar í haldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
OSAMA BIN LADEN Faldi sig ekki í helli.
NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Anne Sibert, sem
nýverið vék úr peningastefnu-
nefnd Seðlabankans, var mesti
haukur nefndarinnar í fyrra.
Með því er átt við að Sibert var
gjörnust nefndarmanna til að
mæla með vaxtahækkunum til að
stemma stigu við verðbólgu. Þetta
kemur fram í ársskýrslu Seðla-
bankans sem birt var á fimmtu-
dag.
Peningastefnunefndin hittist
alls átta sinnum á síðasta ári en
þá var hún skipuð þeim Má Guð-
mundssyni seðlabankastjóra,
Arnóri Sighvatssyni aðstoðarseðla-
bankastjóra, Þórarni G. Péturs syni
aðalhagfræðingi, Gylfa Zoëga,
prófessor í hagfræði, og Anne
Sibert, prófessor í hagfræði.
Í ársskýrslunni kemur fram
að viðhorf Más og Arnórs héld-
ust fullkomlega í hendur við
ákvarðanir bankans. Kaus
bankinn fimm sinnum að halda
vöxtum óbreyttum, einu sinni að
lækka þá og tvisvar að hækka.
Hins vegar var Sibert gjarnari
en aðrir nefndarmann á að mæla
með vaxtahækkunum og Gylfi
gjarnari á að mæla með vaxta-
lækkunum. Þá virðast skoðanir
Þórarins vera óútreiknanlegri en
skoðanir annarra nefndarmanna.
Samkvæmt breytingum sem
urðu á lögum um Seðlabankann
árið 2009 skal peningastefnu-
nefndin taka ákvarðanir um þróun
vaxta bankans. Skal nefndin halda
minnst átta fundi á ári og skulu
fundargerðir þeirra birtar tveimur
vikum eftir vaxta ákvörðun. Í
fundargerðum nefndarinnar
er hins vegar ekki upplýst um
hvernig einstakir nefndarmenn
vildu haga vaxtaákvörðun en þær
upplýsingar eru birtar í ársskýrslu
bankans. - mþl
Atkvæði meðlima peningastefnunefndar Seðlabankans birt í ársskýrslu bankans:
Haukurinn horfinn úr peningastefnunefnd
Skoðanir nefndarmanna
Nafn Hækkun Óbreytt Lækkun
Már 2 5 1
Arnór 2 5 1
Þórarinn 3 3 2
A. Sibert* 3 3 1
Gylfi 0 6 2**
* Var einu sinni fjarverandi
** Vildi einu sinni meiri lækkun vaxta en
aðrir
FURÐUFISKUR Í verslunarmiðstöð í
Bangkok á Taílandi stendur yfir sýning
á sérstæðum fiskum, þar á meðal
þessum sem nefndur er blómahorn.
NORDICPHOTOS/AFP