Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 20
20 31. mars 2012 LAUGARDAGUR
Fá mál hafa reynt jafn mikið á þjóðina á undanförnum ára-
tugum eins og ágreiningurinn
um hvar skuli virkjað og hvar
verndað. Bæði sjónarmiðin eiga
rétt á sér; landið okkar býr yfir
miklum orkuauðlindum sem má
umbreyta í uppbyggingu og störf.
En það felast ekki síður verð-
mæti í einstakri og óspilltri nátt-
úru Íslands sem okkur er treyst
til að standa vörð um fyrir kom-
andi kynslóðir. Auk þess hefur
þeim sjónarmiðum verulega
vaxið ásmegin að náttúruvernd
sé mikil vægur grundvöllur
ferðaþjónustunnar sem vaxandi
atvinnugreinar.
Í gær var þingsályktunartillaga
um Rammaáætlun kynnt en hún
verður síðan lögð fram á Alþingi
til umfjöllunar og afgreiðslu.
Í áætluninni er hugsan legum
virkjunar kostum raðað í orkunýt-
ingarflokk, verndarflokk eða bið-
flokk og er markmiðið að skapa
framtíðarsýn í verndunar- og
virkjana málum og ná almennri
sátt í þjóðfélaginu um þennan
mikilvæga málaflokk.
Vinna við Rammaáætlun hefur
staðið yfir allt frá árinu 1999 en að
henni hafa komið fremstu vísinda-
menn þjóðarinnar á ótal sviðum.
Í ágústmánuði sl. voru drög að
þingsályktunartillögu lögð fram í
12 vikna opið umsagnar- og sam-
ráðsferli þar sem bárust vel yfir
200 umsagnir. Allar umsagnirnar
voru metnar og á grundvelli þeirra
gerðar breytingar á drögunum
sem lögð voru fram til kynningar.
Um er að ræða breytingar þar sem
svæði eru færð úr nýtingarflokki í
biðflokk; annars vegar virkjunar-
kostir í neðri hluta Þjórsár
(Urriða fossvirkjun, Holtavirkjun
og Hvamms virkjun) og hins vegar
kostir á há lendinu (Hágönguvirkj-
anir I og II og Skrokk ölduvirkjun).
Í öllum tilvikum eru rökin þau
að vegna nýrra upplýsinga sem
komu fram í samráðsferlinu beri
að rannsaka tiltekna þætti betur
áður en endanleg ákvörðun um
nýtingu eða vernd verður tekin.
Á grundvelli laga nr. 48/2011 um
verndar- og orkunýtingar áætlun,
eru hér svokölluð varúðar-
sjónarmið höfð til hlið sjónar;
ef um vafa er að ræða þá beri
að kanna hann til hlítar áður en
endanleg ákvörðun er tekin. Það
kemur síðan í hlut nýrrar verk-
efnisstjórnar rammaáætlunar,
sem skipuð verður í kjölfar sam-
þykktar Alþingis, að hrinda í
framkvæmd nauðsynlegri rann-
sóknarvinnu vegna umræddra
virkjunarkosta og lögð er
áhersla á að tillaga um endanlega
flokkun liggi fyrir svo fljótt sem
auðið er eftir að nauðsynlegar
upp lýsingar liggja fyrir.
Þegar ólík sjónarmið takast
á ríður á að finna jafnvægi sem
breið samstaða getur náðst um.
Náttúruverndarsamtök hafa
lýst þeim sjónarmiðum sínum
að mun fleiri virkjunarkostir
eigi að falla í verndarflokk. Og
frá þeim sem vilja ganga lengra
í orkunýtingu heyrast öndverðar
skoðanir.
Rammaáætlun verður rædd á
Alþingi á komandi mánuðum og
endanlega afgreidd þaðan. Nú
sér loks fyrir endann á löngu,
flóknu og metnaðarfullu ferli um
þetta stóra mál þar sem brýnt er
að byggja hvert skref á yfirveg-
un og málefnalegri afstöðu.
Nú sér loks fyrir endann á löngu, flóknu
og metnaðarfullu ferli um þetta stóra
mál þar sem brýnt er að byggja hvert
skref á yfirvegun og málefnalegri niðurstöðu.
Virkjum af skynsemi
– verndum af skynsemi!
Aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins var haldið
áfram á ríkjaráðstefnu í Brussel
föstudaginn 30. mars. Á þessum
fundi hófust viðræður um fjóra
samningskafla til við bótar þeim 11
sem hafa þegar verið opnaðir. Um
var að ræða mikilvæga málaflokka
þ.e.a.s. samkeppnismál, orkumál,
neytendamál og heilsuvernd, og
utanríkis-, öryggis- og varnarmál.
Viðræðum lauk samdægurs um
neytendamál og heilsuvernd, og
um utanríkis-, öryggis- og varnar-
mál. Þetta þýðir að nú þegar níu
mánuðir eru liðnir frá því að efnis-
legar samningaviðræður hófust
eru viðræður hafnar um 15 samn-
ingskafla af 33, og er þegar lokið
um 11 þeirra. Við ræðunum vindur
fram jafnt og þétt.
Evrópa og utanríkismálin
Utanríkis-, öryggis- og varnar-
málin eru samningssvið sem eru
að öllu leyti utan EES-samningsins
og Schengen og því hefði mátt ætla
að viðræður um það myndu taka
tíma. Engu að síður var kaflanum
lokað samdægurs og búið er að
ganga frá þeim texta sem fer inn
í aðildar samninginn. Þetta endur-
speglar þá staðreynd að Ísland á
samleið í þessum málaflokki með
Evrópusambandsríkjunum. Í fyrsta
lagi er Ísland banda maður flestra
ESB-ríkja en 21 af 27 aðildar-
ríkjum ESB eiga aðild að NATO.
Í öðru lagi hefur Ísland allt frá
gildis töku EES-samningsins átt
utanríkispólitískt samráð við ESB
og styðja íslensk stjórnvöld mikinn
meirihluta yfirlýsinga Evrópusam-
bandsins á alþjóðavettvangi, rétt
eins og Ísland gerir yfirleitt á vett-
vangi norrænnar samvinnu en þrjú
Norðurlandanna eiga sem kunnugt
er aðild að ESB. Síðast en ekki síst
þá deilum við grunngildum með
ESB sem felast m.a. í virðingu
fyrir mannréttindum og áherslu á
friðsamlega lausn deilumála. Í við-
ræðunum við ESB lagði samninga-
nefndin þunga áherslu á herleysi
Íslands. Evrópusambandsríkin
viðurkenna að fullu þessa sérstöðu
sem birtist í sérstakri yfirlýsingu
sem verður hluti af aðildarsamn-
ingi. Þótt utanríkis-, öryggis- og
varnarmálin séu vissulega að fullu
á forræði aðildar ríkjanna er þessi
yfirlýsing mikilvæg og undir-
strikar þá einstöku stöðu sem
Ísland hefur að þessu leyti.
Orkumál, samkeppni
og neytendamál
Viðræður hófust einnig um
samnings kafla 15 um orkumál.
Regluverk þess kafla er nú þegar
að mestu leyti hluti af íslenskri
löggjöf í gegnum EES- samninginn
en þó þarf að semja um ákveðin
atriði sem ekki voru hluti af
honum og varða t.a.m. orkunýtni
bygginga og lágmarksbirgðir af
olíu sem eiga að vera til í öllum
aðildarríkjum ESB. Ísland leggur
áherslu á að aðild hafi ekki áhrif
á fyrirkomulag á Íslandi varðandi
eignarhald á orkuauðlindum en ein
af grundvallarreglum í orkustefnu
Evrópusambandsins er að virða
beri sjálfsákvörðunarrétt aðildar-
ríkja þegar kemur að nýtingu og
eignarhaldi orkuauðlinda. Það
gildir líka um olíuauðlindir sem
kunna að finnast við Ísland. Aðild
myndi þannig ekki hafa áhrif á
sjálfsákvörðunarrétt Íslendinga
þegar kemur að nýtingu olíuauð-
linda í eigu landsins við inngöngu í
ESB, sbr. 2. mgr. 194. gr. Lissabon
sáttmálans.
Samkeppnismálin mun einnig
taka ákveðinn tíma að semja
um þrátt fyrir að sá samnings-
kafli sé nú þegar hluti af EES-
samningnum og Ísland framfylgi
að langmestu leyti samkeppnis-
löggjöf Evrópusambandsins. Í
samnings afstöðu okkar kemur
fram að Ísland hyggst viðhalda
og tryggja áfram tilvist félags-
legs íbúðalánasjóðs til að fylgja
eftir félagslegri stefnu stjórn-
valda í húsnæðismálum og tryggja
jafnvægi í framboði á lánsfé til
íbúðar kaupa milli dreifbýlis og
þéttbýlis. Þá hyggst Ísland við-
halda nú verandi fyrirkomulagi á
ÁTVR rétt eins og Svíar sömdu
um á sínum tíma. Samningum um
neytenda- og heilsuvernd var hins
vegar lokið samdægurs. Það er
einnig mikilvægur mála flokkur
því löggjöf í honum miðar að því
að tryggja öryggi vöru sem er
framleidd og seld innan ESB, og
tryggja neytendum margvísleg
réttindi í viðskiptum s.s. í fjarsölu
og neytendalánum, auk þess sem
villandi auglýsingar eru bannaðar.
Einhugur um hagsmuni Íslands
Framundan er að hefja við ræður
um hinn helming samnings-
kaflanna. Þar á meðal eru við-
ræður um veigamikla málaflokka
sem varða hagsmuni Íslands
miklu, s.s. sjávarútveg, landbúnað,
byggðamál og myntsamstarf. Stefnt
er að því að viðræður um þessa
kafla hefjist síðar á árinu. Mikil
vinna hefur farið fram af Íslands
hálfu og undir búningur gengur vel.
Fulltrúar í viðkomandi samninga-
hópum hafa unnið hörðum höndum
við að undirbyggja samningsaf-
stöðu Íslands og í samningaliðinu
ríkir góður andi og einhugur um að
halda fast á hagsmunum Íslands.
Samhliða samningavinnunni
sjálfri er það mat okkar að efla
þurfi umræðu um inntak við-
ræðnanna sjálfra. Við þurfum að
hafa þrek til að ræða saman um
Evrópumálin - málefnalega, for-
dómalaust og af virðingu fyrir
ólíkum skoðunum á þeim. Aðild
að Evrópusambandinu er stórt
mál fyrir sérhverja þjóð og miklu
varðar að vel takist til um niður-
stöðuna. Þess vegna er jákvætt að
umræða og umfjöllun fjölmiðla fari
vaxandi. Við bendum á að öll hlut-
aðeigandi gögn og upplýsingar um
samningaviðræðurnar má nálgast
á heimasíðunni vidraedur.is. Loks
skal sérstaklega getið samráðs-
hópsins um ESB-viðræðurnar sem
nýverið tók til starfa en í honum
sitja 23 einstaklingar af landinu
öllu, karlar og konur, yngra fólk
og eldra, og síðast en ekki síst fólk
sem hefur mismunandi skoðanir á
Evrópusambandinu.
Jafnt og þétt
Rammaáætlun
Oddný G.
Harðardóttir
iðnaðarráðherra
Svandís
Svavarsdóttir
umhverfisráðherra
ESB-aðild
Stefán Haukur
Jóhannesson
formaður
saminganefndar Íslands
Björg Thorarensen
varaformaður
samninganefndar
Íslands
Þorsteinn
Gunnarsson
varaformaður
samninganefndar
Íslands
AF NETINU
Varla dautt mál
Stundum skilur maður ekki hamfarirnar í þingsölum. Það er eins og himinn
og jörð séu að farast. Í kvöld var þar allt vitlaust vegna atkvæðagreiðslu um
tillögur Stjórnlagaráðs sem sumir vildu halda samhliða kosningum. Það var
eins og málið væri barasta dautt ef þetta tækist ekki. En svo er auðvitað
ekki. Ef ríkisstjórninni og stjórnarliðum er einhver alvara með þessu er þeim
í lófa lagið að halda þessa atkvæðagreiðslu síðsumars og í haust – og nota
tímann þangað til að tryggja að málið fái eins góða kynningu og auðið er.
Og í leiðinni hlýtur maður að spyrja: Hvers vegna er tillagan sem var deilt
um í kvöld svo seint á ferðinni, hví þessi tímaþröng?
http://silfuregils.eyjan.is
Egill Helgason
Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040
w w w . h i r z l a n . i s
Ti
lbo
ð
Ti
lbo
ð
Húsgögn fyrir hagsýna
Support
kr. 39.700,-
Tilboð 23.120,-
Fullt verð 28.900,-
Tilboð 15.500,-
Fullt verð 20.300,-
CD - og bókahillur
í úrvali
Hornskifborð
kr. 36.400,-
kr. 26.900,-
kr. 39.900,-
Stofnuð 1993 og hefur
aldrei farið á hausinn!