Fréttablaðið - 31.03.2012, Síða 34

Fréttablaðið - 31.03.2012, Síða 34
31. mars 2012 LAUGARDAGUR34 H ún mætir t i l fundar við blaða- mann beint úr tíma í Háskóla Íslands, þar sem hún kennir verk- lega lífeðlisfræði og kúrsinn „Íþróttir og lyf“ í lyfjafræðideild. Hann fjallar um áhrif lyfja sem eru á bannlista. Þar sameinast ein- mitt tvö af áhugamálum Ásdísar, íþróttir og áhrif lyfja á líkamann. „Ég fór ekki í lyfjafræði til þess að ná mér í einhverja háskóla- gráðu. Ég hef ofboðslega mikinn áhuga á lífeðlisfræði og öllu því sem á sér stað í líkamanum. Ég var alveg búin að ákveða að fara í lyfjafræði áður en ég fór í mennta- skóla,“ segir Ásdís og klykkir út með setningu sem margir vildu geta sagt sjálfir. „Ég hef aldrei upplifað þetta „oh, ég veit ekkert hvað ég á að gera í lífinu“ sem svo margir þekkja.” Allir geta það sem þeir vilja Ásdís útskrifaðist nú í febrúar með meistaragráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands, fékk hæstu einkunn sem gefin hefur verið og 10 fyrir lokaritgerðina sína. Samt var hún ekki með námið í fyrsta sæti, heldur lét æfingarnar alltaf hafa forgang. „Metnaður í námi og metnaður í íþróttum fara oft saman. Ég held að það sé keppnis- skapið sem stjórnar því. Reyndar hef ég séð nokkuð mörg frávik frá þessari reglu, til dæmis á meðal fótboltastráka, en það er önnur saga,“ segir Ásdís og glottir. „Þetta er allt spurning um tíma- stjórnun og vinnu. Maður getur gert allt sem maður vill. Það er bara spurning um að vilja það nógu mikið. Ég hef alltaf haft metnað fyrir því að gera vel í skólanum.“ Lengi stefnt á Ólympíuleika Frá barnsaldri hefur Ásdís vitað vel hvað hún vill og hvert hún stefnir. Hún var ekki nema þrettán ára þegar hún setti sér það mark- mið að fara á Ólympíuleikana. „Þá var ég að kasta kringlu og var ekki að kasta nema um 30 metra, sem er langt frá Ólympíulágmarkinu, sem er um 60 metrar. Ég efaðist samt ekki í eitt sekúndubrot um að ég ætti eftir að fara á Ólympíu- leika. Ég var ekkert undrabarn í íþróttum, þetta var hörkuvinna og ég fór ekki á Ólympíuleika fyrr en 10 árum seinna, í Peking árið 2008.“ Þótt hún hafi ekki efast um það sjálf að hún kæmist á Ólympíu- leikana segir hún aðra stundum hafa reynt að draga úr sér. „Auð- vitað hef ég kynnst fólki í gegnum tíðina sem hefur efast um mig. En það skiptir engu máli hvað fólk heldur. Það eina sem skiptir máli er hverju þú trúir sjálfur. Ef maður tekur gagnrýni inn á sig fer maður að efast og ef maður trúir ekki á sig sjálfur getur maður ekkert. „Hvort sem þú heldur að þú getir það eða að þú getir það ekki, þá hefur þú rétt fyrir þér“ er frábært orðatiltæki.” Glímukóngurinn Hjálmur Einn af helstu stuðningsmönnum Ásdísar frá barnsaldri var faðir hennar, Hjálmur Sigurðsson, glímumaður með meiru. „Pabbi minn var glímukóngur árið 1974, en hann var sérstaklega þekktur fyrir það í glímuheiminum hvað hann glímdi fallega. Hann fékk oft fegurðarverðlaun fyrir það,“ segir Ásdís. Hjálmur hafði óþrjótandi áhuga á íþróttum og studdi þétt við bakið á Ásdísi strax þegar hún byrjaði að æfa íþróttir á barnsaldri. „Hann var aðdáandi minn númer 1,2 og 3. Þegar ég var lítil fór pabbi oft með mér út á kastvöll og fylgdist með mér æfa mig.“ Hún er með það á hreinu að stuðningurinn hafi skipt sköpum fyrir hana á leið hennar til afreka. „Pabbi á stóran þátt í þessu, því hann gaf mér tækifæri. Hann ýtti mér aldrei áfram en gerði allt sem hann gat til að gera æfingarnar sem auðveldastar fyrir mig. Þannig hjálpaði hann mér að verða góður íþróttamaður.“ Mesta áfall lífsins Hjálmur fyrirfór sér 2. mars árið 2006, eftir áralanga baráttu við þunglyndi. Fráfall hans varð Ásdísi gríðarlegt áfall, enda voru þau feðgin náin. „Mamma og pabbi skildu árið 2001, þegar ég var að byrja í menntaskóla. Þá flutti ég með pabba,“ útskýrir hún. Hún var sextán ára á þessum tíma, en eldri systkini hennar þrjú voru öll komin á fullorðinsár og höfðu hafið sitt eigið líf fjarri foreldrahúsum. Árið 2004 fékk Hjálmur starf sem tómstunda- og æskulýðsfulltrúi á Skagaströnd og fluttist þangað, en fram að því bjuggu þau feðgin tvö saman. „Við pabbi vorum mjög náin, en veikindi hans voru ekki alltaf uppi á borðinu. Ég vissi ekki af þeim fyrr en á unglingsárum. Þegar við bjuggum saman reyndi ég að gera það sem ég gat til að hjálpa honum, en hann vildi ekki hjálp,“ segir Ásdís. Henni þykir mikilvægt að tala um pabba sinn og veikindi hans. „Ég vil tala sem mest um hann. Mér finnst ofboðs- lega leiðinlegt að vera búin að missa pabba minn, að hann skuli vera farinn. En ég vil alls ekki að hann gleymist. Margir eru tví- stígandi í kringum mig í sambandi við að ræða um hann, en ég vil ekki að þetta verði tabú í kringum mig. Ég vil að börnin mín, sem ég vonandi eignast í framtíðinni, viti allt um hann afa sinn. Pabbi var þunglyndur, átti ofboðslega erfitt, en vildi ekki leita sér hjálpar. Mig langar að sýna öðrum að það er þess virði að gera það, því að hlutirnir geta farið svona.“ Þrjú erfið ár Árið 2006 var því Ásdísi gríðar- lega erfiður tími. „Þetta ár fór algjörlega í vaskinn hjá mér. Ég átti mjög erfitt. Ég hafði líka meiðst árið 2005, fékk álagsbrot í ökklann, sem læknar sögðu mér að væri ekki víst að myndi nokkurn tímann gróa. Ég stóð því frammi fyrir því að ferli mínum gæti verið lokið. Ég var að jafna mig á þessu þegar pabbi dó. Árið 2007 þurfti ég svo að fara í stóra aðgerð á oln- boga, þannig að þessi ár, 2005, 6 og 7 voru virkilega erfið. En svo náði ég mér á strik árið 2008, náði lág- markinu á Ólympíuleikana en svo tóku olnbogameiðslin sig upp aftur skömmu fyrir leika. Á þeim tíma- punkti hefði ég getað sest niður og gefist upp. Mig langaði dálítið til þess. En það sem ég notaði til að hvetja mig áfram var allt það sem pabbi hafði gert til að auð- velda mér að komast þangað sem ég var komin. Það hefði allt verið til einskis. Hann hefði viljað að ég héldi áfram. Sem er auðvitað alveg rétt, því ég er bara rétt að byrja.” Uppreisnarseggur í laumi Fyrir um ári síðan bættist góður liðsstyrkur við stuðningsmanna- hóp Ásdísar, þegar nuddarinn, íþróttafræðingurinn og einka- þjálfarinn Víðir Þór kom inn í líf hennar. Þau eiga vel saman, lifa og hrærast bæði tvö í heimi íþróttanna. Hvorugt reykja þau heldur né drekka. Þá reglu brýtur Ásdís bara í september, sem er eini mánuður ársins sem Ásdís smakkar hugsanlega áfengi. „Í þeim mánuði er ég hvorki að æfa né keppa svo ég leyfi mér aðeins að lifa eðlilegu lífi,” útskýrir hún. „Annars á þessi áfengislausi lífs- stíll svo vel við íþróttirnar. Það er bara þannig.” Í henni blundar sennilega samt lítill uppreisnarseggur, því á meðan hún talar glittir í gulan pinna inni í munninum á Ásdísi. Þega líður á samtalið stenst blaða- maður ekki mátið að spyrja. Ertu með gat í tungunni? „Já, ég var í 10. bekk þegar þessi kom. Ég er reyndar líka með þrjú tattú og gat í naflanum,” uppljóstrar hún. „Ég hef oft verið spurð af hverju ég tek hann ekki úr mér. Það er eigin- lega bara vegna þess að kannski, mögulega, mun mig einhvern tím- ann aftur langa til að hafa pinna í tungunni. Og það er ekki mögu- leiki að ég muni nokkurn tímann láta einhvern stinga nál í gegnum tunguna á mér aftur. Það er alveg á kristaltæru!” Vill vinna gegn mæðradauða Ásdís sér fyrir sér að hún eigi að minnsta kosti tíu góð ár eftir í spjótkastinu og ætlar ekki að láta Ólympíuleikana í sumar verða sína síðustu. Í þessum skrifuðu orðum er hún í 19. sæti á lista yfir bestu spjótkastara heims og hún ætlar sér að klifra áfram. Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki að hún ætli að láta sér nægja að stunda æfingar, heldur ætlar hún að „dúlla sér“ í doktorsnámi, sem hún hyggst hefja strax næsta haust. Hana langar að halda áfram með efni meistara- verkefnis sins. „Ég hef verið að gera tilraunir á rottum við þróun á lyfi sem hefur áhrif á samdrátt í legi. Þetta tengist beint blæðingum úr legi eftir fæðingu, sem er algengasta dánarorsök kvenna eftir fæðingu,” útskýrir Ásdís af ákafa og augljóst að efnið er henni hjartans mál. „Yfirleitt þegar talað er um að kona deyi af barns förum er það þetta sem gerist, henni beinlínis blæðir út. Hugmyndin er að þróa lyfjaform sem væri hag- kvæmt að nota í þróunarlöndunum, þar sem mæðradauði er enn tals- vert algengur. Þetta yrði líklegast nefúði sem ekki þarf að geyma í kæli og hver sem er getur gefið,“ segir Ásdís og lýsir því að hingað til hafi einungis þjálfað heilbrigðis- starfsfólk getað gefið sambærilegt lyf í sprautuformi og það þurfi að geyma í kæli, sem sé sjaldnast fyrir hendi í þróunarlöndunum. „Það yrði að sjálfsögðu algjör draumur ef þetta gengur allt upp og lyfjaformið kæmist í notkun. Ég gæti þá að minnsta kosti verið sátt við að vita að ég hafi lagt eitthvað af mörkum við að gera heiminn að pínulítið betri stað.“ Þetta er bara spurning um vilja Stífar æfingar fyrir Ólympíuleika komu ekki í veg fyrir að Ásdís Hjálmsdóttir útskrifaðist með hæstu einkunn sem gefin hefur verið úr lyfjafræði og uppskar 10 fyrir meistaraverkefni sitt. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að því að spjótkastarinn á sér fleiri háleita drauma, svo sem þann að þróa lyf sem gæti bjargað fjölda kvenna í þróunarlöndum frá því að látast af barnsförum. VEIT HVAÐ HÚN VILL Ásdís var 13 ára þegar hún setti sér það markmið að fara á Ólympíuleikana. Það varð að veruleika tíu árum seinna. Hún tekur þátt í Ólympíuleikunum í annað sinn í sumar og stefnir hærra. Í dag er hún í nítjánda sæti á lista bestu spjótkastara heims. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við pabbi vorum mjög náin, en veikindi hans voru ekki alltaf uppi á borðinu. Ég vissi ekki af þeim fyrr en á ung- lingsárum. Þegar við bjuggum saman reyndi ég að gera það sem ég gat til að hjálpa honum, en hann vildi ekki hjálp.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.