Fréttablaðið - 31.03.2012, Qupperneq 46
31. mars 2012 LAUGARDAGUR46
E
ftir 25 ára dvöl sem
hjartalæknir í Banda-
ríkjunum er óhætt að
segja að Helgi Júl-
íus Óskarsson hafi
komið með krafti inn
í íslenskt tónlistarlíf. Um það
bera þrjár plötur á jafnmörgum
árum vitni, en Helgi gaf út sína
fyrstu plötu, Sun For A Lifetime,
árið 2010 og árið eftir fylgdi
breiðskífan Haustlauf. Rólegt
og þjóðlagaskotið popp er fyrir-
ferðarmikið á báðum plötunum.
Sú nýjasta, reggí-platan Kominn
heim sem kom út í janúar síðast-
liðnum, hefur hlotið fyrirtaks
dóma og lagið Stöndum saman,
sem Valdimar Guðmundsson
syngur, er eitt allra vinsælasta
lag landsins það sem af er árinu.
Betri lög á plötunni
Koma þessar vinsældir lagsins
Stöndum saman þér á óvart?
„Já, svo sannarlega. Ég bjóst
aldrei við þessari velgengni, en
líklega hjálpast margt að við að
gera lagið vinsælt. Textinn sam-
ræmist ástandinu í þjóðfélag-
inu, þessum miklu umræðum
um kreppuna, hrunið og fleira
í þeim dúr. En að mínu mati og
margra annarra eru jafnvel enn
betri lög á plötunni sem verður
svo að koma í ljós hvort falli í
kramið hjá fólki. Ég gæti trúað
að lögin Þú ert mín og Mig lang-
ar til höfðuðu til margra, enda
hafa ýmsir nefnt þau sem sín
eftirlætislög á plötunni. Titil-
lagið, Kominn heim sem Valdi-
mar Guðmundsson syngur eins
og mörg lög á plötunni, er líka í
miklu uppáhaldi hjá mér. Vinur
minn samdi við það skemmtileg-
an texta sem er eins konar kveðja
til Bandaríkjanna þar sem ég bjó
í aldarfjórðung.“
Afdrifaríkur draumur um KK
Tónlistarmaðurinn og læknir-
inn er fæddur árið 1958 og var
því kominn yfir fimmtugt þegar
fyrsta platan hans kom út, sem
verður að teljast býsna óvenju-
legt. Hversu lengi hefur hann
verið að stússast í tónlist?
„Ég er fæddur og uppalinn í
Reykjavík og fyrstu árin bjó ég
á Hjarðarhaganum í Vesturbæn-
um. Ég var svo heppinn að búa
í sama húsi og Róbert Abraham
Ottósson, þáverandi stjórnandi
Sinfóníunnar, sem var gyðingur
sem flúði til Íslands á stríðsár-
unum og mjög merkilegur maður.
Róbert leyfði mér að glamra
á hljóðfærin sín þegar ég var
krakki, stærðarinnar flygil og
orgel, en þegar ég hugsa til baka
finnst mér ótrúlegt að hann hafi
leyft mér þetta. Róbert skrifaði
líka niður nóturnar við fyrsta
lagið sem ég samdi, þegar ég var
sjö ára gamall í söngtíma í skól-
anum. Ég á þessar nótur enn þá
og varðveiti vel. Síðar lærði ég á
gítar í tvö ár hjá Jóni Páli Bjarna-
syni djassgítarleikara. Ég hætti
þó að læra á gítar þegar ég var
tíu ára en tók hljóðfærið aftur
upp í gagnfræðaskóla, en þar
lærðist manni fljótt að gítarleik-
ur þótti dálítið „kúl“. Þá spilaði
ég bara eftir eyranu og þannig
hefur það verið síðan. Lengi vel
dútlaði ég mér við tónlist fyrst og
fremst til að róa mig eftir erfiða
daga í námi eða vinnu og samdi
ekkert kerfisbundið.“
Hvernig komu þá plöturnar
þrjár til?
F y r i r þremur
árum datt mér
skyndilega í hug að
kaupa mér upptöku-
tæki til að auðvelda
mér að muna mel-
ódíurnar sem eiga
til að gleymast ef
þær eru ekki skrif-
aðar niður, og fór
að semja lög. Svo
breyttust hjá mér
aðstæður og vegna
heilsubrests var mér
ráðlagt að minnka
við mig vinnu og
álag. Ég hafði unnið
eins og brjálæðing-
ur öll þessi ár, en
stundum finnst mér
eins og margir geri
sér ekki grein fyrir
því hversu gríð-
arlegt álag fylgir
því að vera læknir.
Í Bandaríkjunum
þykir eðlilegt að
vinna tólf til fjór-
tán tíma á dag og
svo næturvaktir ofan á, svo lítið
er um frí. Auk þess hefur maður
áhyggjur af erfiðustu tilfellun-
um þegar maður er kominn heim.
Þetta tekur allan þinn tíma og
nánast ekkert er eftir. Þess vegna
opnaðist í raun fyrir mér ný ver-
öld þegar ég fékk skyndilega frí
og félagslíf. Frændi minn, klarin-
ettuleikari, heyrði upptökurnar
mínar og hvatti mig til að gefa
þær út en ég hélt að hann væri að
gera grín að mér. Svo gerðist það
eina nóttina að mig dreymdi að
ég og KK, sem ég þekkti ekkert
persónulega, værum að syngja
og spila saman lögin mín. Konan
mín, sem er mikil áhugamann-
eskja um drauma, sagði mér að
þetta þýddi hrein-
lega að ég ætti að
tala við KK. Til að
byrja með hló ég
að henni, en hún
spurði mig ítrekað
og á endanum sendi
ég honum tölvupóst
og í kjölfarið disk
með upptökunum
mínum.“
Hvernig tók KK í
erindið?
„Hann var afar
hjálplegur, sagði
mér að lögin væru
vel þess virði að
gefa út og hvatti
mig til að gera það
vel en ekki kasta til
höndum. KK kom
mér í samband við
tónlistarmanninn
Svavar Knút Krist-
insson, sem er yndis-
legur maður og frá-
bær tónlistarmaður,
og hann tók að sér
að vinna með mér
fyrstu tvær plöturn-
ar. Það var geysilega jákvæð og
skemmtileg reynsla sem gerði
mig fárveikan af tónlistarbakerí-
unni. Þegar ég var við upptökur í
Hljóðrita í Hafnarfirði hjá Kidda
Hjálmi [Guðmundi Kristni Jóns-
syni] leyfði ég honum og Sigurði
Guðmundssyni, en þeir eru með-
limir í Hljómsveitinni Hjálmum,
að hlusta á nokkur reggílög sem
Ný veröld opnaðist fyrir mér
Helgi Júlíus Óskarsson bjó í Bandaríkjunum í 25 ár og starfaði sem hjartalæknir. Hann gaf út sína fyrstu plötu 52 ára árið 2010,
flutti til Íslands og gerði tvær plötur til viðbótar og á nú eitt vinsælasta lag landsins. Kjartan Guðmundsson ræddi við Helga.
KOMINN HEIM Vinsældir lags Helga Júlíusar Óskarssonar, Stöndum saman, sem Valdimar Guðmundsson syngur koma höfundinum nokkuð á óvart. „Ég bjóst aldrei við þessari velgengni, en líklega hjálpast margt að við
að gera lagið vinsælt. Textinn samræmist ástandinu í þjóðfélaginu, þessum miklu umræðum um kreppuna, hrunið og fleira í þeim dúr.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lengi vel dútl-
aði ég mér við
tónlist fyrst og
fremst til að róa
mig eftir erfiða
daga í námi eða
vinnu og samdi
ekkert kerfis-
bundið.