Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 58

Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 58
KYNNING − AUGLÝSINGFerðahýsi LAUGARDAGUR 31. MARS 20126 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is s. 512 5429. Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Víkurverk býður eitt mesta úrval hjólhýsa og húsabíla á landinu. Fyrirtækið selur líka tjaldvagna, fellihýsi, fellihjól- hýsi og í raun allt sem til þarf í úti- leguna, eins og Arnar Barðdal, framkvæmdastjóri Víkurverks, bendir á. „Hobby er rótgróið 50 ára gamalt fyrirtæki, sem er í fararbroddi á sínu sviði. Langvinsælast í Evrópu og hér heima. Fyrirtækið hefur selt yfir hálfa milljón hjólhýsa frá upphafi, þau eru mest seldu hjólhýsin hér á landi og kaupa þrír af hverjum fjór- um Hobby-hjól- hýsi,“ segir hann. Vinsældir Hobby rekur Arnar meðal annars til gæða, góðs verðs og framúrskarandi og glæsilegrar hönnunar. „Hobby húsin eru þekkt fyrir glæsilegar innréttingar og fal- leg áklæði. Þau eru falleg að innan sem utan, rúmgóð og búin öllum þeim helstu þægindum sem hugs- ast getur, svo sem stórum ísskáp í þægilegri vinnuhæð, góðu skápa- og borðplássi, þægilegri lýsingu, góðum dýnum, fallegum og snyrti- legum baðinnréttingum ásamt sturtu og u-laga endasófa. Hægt er að velja á milli 20 mismunandi gerða eftir því hvað hentar hverj- um og einum, hvort það eru kósí- heit fyrir hjón eða alla fjölskylduna. Innréttingarnar eru það glæsilegar að fólk verður agndofa þegar inn í þau er komið og standast önnur hús ekki samanburð.“ Framúrskarandi hönnun segir hann jafnframt birtast í útsjónarsemi og hámarks nýtingu á plássi. „Óhætt er að segja að hver sentimetri sé nýttur til hins ýtrasta.“ Að sögn Arnars er Hobby í farar- broddi í helstu nýjungum og þróun á hjólhýsamarkaðinum. „Fyrirtæk- ið var það fyrsta sem tók stóran og mjóan ísskáp í notkun, galvaníser- aðan undirvagn og fann upp safn- kassa í salerni sem er útdraganlegur utan frá, svo dæmi séu tekin. Ending- artími þeirra er langur og bilana- tíðni er lág sem er merki um mikil gæði. Þrátt fyrir það er verðið á þeim mjög gott og eru kaup á Hobby-hjól- hýsum hagstæðustu kaupin í dag þar sem þú færð mest fyrir pen- inginn án þess að það komi niður á gæðum eða útliti. Þess vegna er Hobby eftirsóttasta merkið bæði í Evrópu og hér heima.“ Arnar nefnir sérstaklega til sög- unnar eina gerð af hjólhýsi, Hobby Premium. „Fyrirtækið hefur feng- ið mörg verðlaun gegnum árin en í fyrra hlaut Premium-vagninn hin virtu nýsköpunarverðlaun Evrópu fyrir framúrskarandi hönnun á út- liti hjólhýsa. Premium hefur sleg- ið í gegn í Evrópu og leggur línurn- ar í hjólhýsaframleiðslu framtíðar- innar.“ Þá segir Arnar fyrirtækið bjóða tvær gerðir Hobby-húsbíla sem og Hobby Landhouse, sem er stórt hjólhýsi og hentar afar vel til kyrrsetningar á sumarhúsalóðum. Víkurverk býður einnig upp á fjölda annarra virtra vörumerkja. Arnar hvetur sem flesta til að koma og skoða fjölbreytt úrval í glæsi- legum 1.300 fermetra sýningarsal í húsnæði fyrirtækisins að Víkur- hvarfi 6. „Við tökum vel á móti þér með bros á vör!“ Víkurverk - allt í ferðalagið Gæði, glæsileiki og gott verð er aðalsmerki hjólhýsa og húsbíla frá Hobby. Víkurverk að Víkurhvarfi 6 í Kópavogi selur Hobby í miklu úrvali og fjölda annarra viðurkenndra merkja að auki. Vinsældir Hobby rekur Arnar meðal annars til gæða, góðs verðs og glæsilegrar hönnunar. Hægt er að skoða úrvalið í húsnæði Víkurverks að Víkurhvarfi 6 í Kópavogi. MYND/VILHELM Þau eru alveg ótrúlega vinsæl og kannski ekki síst vegna þess hversu vel þau henta við íslenskar aðstæður. Það sést meðal annars af því hvað þau eru létt, eða aðeins 780 kíló, og auðvelt er að draga þau aftan í hvaða bíl sem er. Sáraeinfalt er að reisa þau upp en það tekur aðeins eina til tvær mínútur,“ segir Arnar Barð- dal, framkvæmdastjóri Víkur- verks. Með þeim orðum lýsir hann fellihjólhýsum sem eru nú loks- ins fáanleg á Íslandi eftir nokkurt hlé. „Þau nutu mikilla vinsælda hér á árum áður eða fyrir svona fimmtán til tuttugu árum. Vegna minnkandi eftirspurnar í Evrópu á þeim tíma fór franski framleið- andinn að framleiða húsbíla og framleiðslu fellhjólhýsanna var tímabundið hætt eða þar til nú. Í dag eru það spænska fyrirtæk- ið Esterella og hið breska Pennine sem framleiða þau og þeir hafa vart undan að anna eftirspurn.“ Víkurverk býður f imm út- færslur af fellihjólhýsum, eina frá Pennine og fjórar frá Esterellu. „Esterella húsin eru öll jafn stór en Pennine er stærra en þau. Skipu- lagið að innan er mismunandi á milli húsa og eru sum búin hjóna- rúmum og salernum og önnur borðum og bekkjum sem má breyta í rúm. Allir ættu að finna hús við sitt hæfi,“ segir Arnar og getur þess að húsin hafi að geyma ríkulegan staðalbúnað eins og ís- skáp, eldavél og fleira sem fylgir hverju og einu. Sjá vikurverk.is. Esterella komin aftur Víkurverk selur fellihjólhýsi frá Pennine og Esterella sem njóta mikilla vinsælda á Íslandi um þessar mundir. Esterella-fellihjólhýsin njóta mikilla vinsælda, meðal annars vegna glæsileika og vegna þess hversu þægileg í uppsetningu þau þykja. YND/(VILHELM 2 ALLT Í FERÐALAGIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.