Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 69
7
Staða skólastjóra við Breiðholtsskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Breiðholtsskóla.
Breiðholtsskóli er staðsettur í Bakkahverfi í Breiðholti. Skólinn er heildstæður grunnskóli með um 460
nemendur og 78 starfsmenn.
Einkunnarorð skólans eru ábyrgð - traust – tillitssemi. Nemendur eru með fjölbreyttan bakgrunn og í skólanum
er unnið eftir kerfinu „Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun“ (PBS). Áhersla er lögð á vellíðan nemenda
og hver árgangur er ein heild þar sem nemendur vinna saman þvert á bekki. Í skólanum er litið á samstarf við
heimilin sem sjálfsagðan og eftirsóknarverðan þátt í menntun nemenda og að traust ríki milli nemenda, starfs-
fólks og foreldra.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, er með góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og
metnaðarfulla skólasýn.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðar-
stefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í
samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skóla-
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar - og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og
þróunar í skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða
framsækna skólaþróun.
• Lipurð og færni í samskiptum.
Óskað er eftir því að með umsókninni fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið.
Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar
um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2012.
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2012.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu
Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Auður Árný Stefánsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu og Valgerður
Janusdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111.
Netföng: audur.arny.stefansdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is.
Dýralæknaþjónusta í dreifðari
byggðum – Þjónustusvæði 2
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralækni til
að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu
frá og með 1. maí 2012, í samræmi við reglugerð nr. 846/2011
með síðari breytingum.
Um er að ræða þjónustusvæði 2 sem er Dalabyggð, Reykhóla-
hreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og
Bæjarhreppur.
Gerður verður þjónustusamningur við dýralækni/dýralækna-
þjónustu og með honum tryggir MAST mánaðarlega greiðslu
til að sinna dýralækna- og bráðaþjónustu á þjónustusvæðinu.
Stofnunin getur aðstoðað við að finna húsnæði innan
svæðisins, en einnig stendur til boða að leigja íbúðarhúsnæði í
eigu stofnunarinnar í Búðardal.
Nánari upplýsingar veita Halldór Runólfsson (halldor.
runolfsson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.
hannesson@mast.is) í síma 530-4800. Jafnframt er vísað til
reglugerðar nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðari
byggðum landsins. Umsóknum um þjónustusvæði skal skilað
til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum
“Dýralæknir – þjónustusvæði 2” eða með tölvupósti á starf@
mast.is en umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2012.
Dýralæknaþjónusta í dreifðari
byggðum – Þjónustusvæði 4
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralækni til
að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu í
samræmi við reglugerð nr. 846/2011 með síðari breytingum.
Um er að ræða þjónustusvæði 4 sem er Húnaþing vestra,
Blönduósbær, Skagabyggð,
Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnavatnshreppur.
Gerður verður þjónustusamningur við dýralækni/dýralækna-
þjónustu og með honum tryggir MAST mánaðarlega greiðslu
til að sinna dýralækna- og bráðaþjónustu á þjónustusvæðinu.
Stofnunin getur aðstoðað við að finna húsnæði innan
svæðisins.
Nánari upplýsingar veita Halldór Runólfsson (halldor.
runolfsson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.
hannesson@mast.is) í síma 530-4800. Jafnframt er vísað til
reglugerðar nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðari
byggðum landsins. Umsóknum um þjónustusvæði skal skilað
til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum
“Dýralæknir – þjónustusvæði 4” eða með tölvupósti á starf@
mast.is en umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2012.
Eftirlitsdýralæknir í
Norðausturumdæmi
Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni í 100%
starf á umdæmisskrifstofu stofnunarinnar á Akureyri frá og
með 1. júní 2012.
Helstu verkefni:
• Heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum
• Eftirlitsstörf á sviði dýraverndar og dýravelferðar
• Samskipti við aðrar stofnanir
• Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kann að
vera falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Dýralæknismenntun
• Æskilegt að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Jónsson, héraðsdýra-
læknir (olafur.jonsson@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson
(hafsteinn.hannesson@mast.is) í síma 530-4800. Umsóknum
ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal
skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss,
merktum “Eftirlitsdýralæknir” eða á starf@mast.is. Umsóknar-
frestur er til og með 11. apríl 2012. Öllum umsóknum verður
svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
Nýherji óskar eftir að ráða kraftmikinn og
heilsteyptan strafskraft sem vill verða hluti af
öflugu teymi fyrirtækisins. Við leitum að ein-
staklingi með drifkraft, útsjónarsemi og vilja
til að ná árangri í starfi.
Í boði er spennandi starf og mikil tækifæri fyrir
réttan aðila.
www.nyherji.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elsa Ágústsdóttir,
framkvæmdastjóri Smásölusviðs, elsa@nyherji.is.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn skal fyllt út á vef Nýherja,
www.nyherji.is. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl nk.
Nýherji hf. er samstæða framsækinna þekkingar-
fyrirtækja í upplýsingatækni með 550 starfsmenn
á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð.
VIÐ VILJUM
RÁÐA FYRIR
NORÐAN
Verslunarstjóri á Akureyri
Á næstunni opnar Nýherji nýja verslun á Akureyri með breiðu úrvali búnaðar fyrir neytenda- og
fyrirtækjamarkað. Því leitum við að traustri og reynslumikilli manneskju í nýja stöðu verslunarstjóra.
Starfslýsing: Hæfniskröfur:
Sala á vörum og þjónustu til viðskiptavina. Framhaldsmenntun er kostur.
Ábyrgð á daglegum rekstri. Góð reynsla af sölustörfum.
Pantanir á vörum og greining á söluáherslum. Brennandi áhugi á tölvum og tengdum búnaði.
Umsjón með markaðsmálum á svæðinu Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í
í samstarfi við markaðsdeild. mannlegum samskiptum.
B
ra
nd
en
bu
rg