Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 96

Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 96
Verkefni í Afríku Hjálparstarf kirkjunnar er með þróunarverkefni í Malaví, Úganda og Eþíópíu. Malaví Hjálparstarfið hefur í nokkur ár starfað í Malaví með innlendum ábyrgðar- og framkvæmdaaðilum, Evangelical Lutheran Development Service (ELDS), að stuðningi við sjálfsþurftarbændur. Verkefnið snýst um vatnsöflun í héraðinu Chikwawa. Unnið er í 37 þorpum með 952 fátækustu fjölskyldunum. Meginmarkmið eru fjögur: 1. Að efla þekkingu og færni fólks til að takast á við framfaraverkefni: Með því að vinna að eftirfarandi verkefnum og með námskeiðum og kynningar- heimsóknum. 2. Að kenna fólki að nýta vatn til að tryggja betur fæðuöryggi: Með því að rækta þurrkaþolnari og fjölbreyttari tegundir, nota vatn í áveitur og tað sem áburð, halda skepnur og gera fiskiræktartjarnir. 3. Að auka aðgengi að vatni og auka hreinlæti sérstak- lega fyrir heimili alnæmissjúkra og munaðarlausra barna: Með því að grafa brunna og safna vatni t.d. af húsþökum, með því að reisa kamra og handþvotta- aðstöðu og með fræðslu. 4. Að vinna að því að binda rigningarvatn betur í jarð vegi með gróðursetningu og öðrum aðgerðum þannig að vatnsból endurnýist betur. Grafnir eru brunnar og viðhaldi sinnt, trjám plantað, námskeið haldin um umhverfisvernd og sjálfbærni, matvælaræktun efld með nýjum korntegundum og skepnuhald styrkt með því að afhenda geitur og hænur sem bæta lífsafkomuna. Úganda Hjálparstarf kirkjunnar hefur um nokkurra ára skeið stutt verkefni í Úganda. Verkefnið er hluti af fjölþættu þróunarverkefni sem kirkjulegar hjálparstofnanir innan Lútherska heimssambandsins (Lutheran World Federation/World Service) reka í landinu meðal þeirra sem líða vegna alnæmis. Það er unnið í þremur héruðum: Rakaí, Lyantonde og Sembabule og snýr að því að draga úr tíðni HIV-smits og áhrifum alnæmis á samfélagið. Sá hluti sem Hjálparstarfið styður snýst um að hjálpa börnum sem misst hafa báða foreldra úr alnæmi og búa ein eða sjúka foreldra og ömmur sem hafa barnabörn á framfæri. Áhersla er á að bæta lífsskilyrði þeirra með því að reisa handa þeim íbúðarhús með grunnhúsbúnaði og eldaskála með sérhönnuðum hlóðum sem spara eldsneyti og helstu áhöldum; auka á hreinlæti á heimilum með því að gera kamra og hreinlætisaðstöðu og fræða um samband hreinlætis og smithættu. Einnig á að auka aðgang að hreinu vatni með því að koma upp safntönkum. Eþíópía Verkefni Hjálparstarfsins í Eþíópíu er í Jijiga héraði í Austur-Eþíópíu og er unnið í samstarfi við Lútherska heimssambandið og þróunarsvið lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu, Mekane Jesus. Meginmarkmið verkefnisins eru fimm: 1. Að tryggja íbúum aðgang að hreinu vatni til neyslu, ræktunar og skepnuhalds með því að byggja vatnsþrær. 2. Að styrkja landbúnað með bættum ræktunarað- ferðum og efla skepnuhald. 3. Að efla efnahagslegt öryggi og réttindi kvenna. 4. Að bæta heilbrigði íbúa með stofnun heilsugæslu- stöðvar og fræðslu um HIV/AIDS-smit. 5. Að styrkja stjórnkerfi samfélagsins og þar með þjónustu við íbúa. Efling kvenna er grunntónn í verkefninu. Mörg námskeið hafa verið haldin í tengslum við matargerð, varðveislu matar og einnig um jafnrétti kynjanna þ.á m. umræður um umskurn kvenna. Margar konur hafa í gegnum verkefnið tekið smálán til að byrja atvinnustarfsemi þar sem þær ráða yfir þeim tekjum sem aflast. Þjálfaðir hafa verið nokkurs konar dýralæknar þ.á m. fyrsta konan. Fjölmörg námskeið hafa verið haldin í tengslum við umhirðu búfjár, ræktun korns og umhverfis- vernd. Námskeið hafa verið haldin fyrir starfsfólk staðaryfirvalda til að sinna fræðslu um HIV og alnæmi. Fræðsla um hreinlæti og smitleiðir sjúkdóma hefur haft áþreifanleg áhrif og vitund aukist. Þar sem borun er erfið á svæðinu eru grafnar vatnsþrær. Vatnið sem safnast er yfirborðsvatn því hafa vatnsnefndir kynnt og bjóða efni sem bætt er út í vatnið og gerir það drykkjarhæft. Starf á Indlandi Í samvinnu við mannréttindasamtökin Social Action Movement hefur verið stutt við starf sem snýr að hinum stéttlausu þar sem reknir eru forskólar þar sem börn eru búin undir nám í almennum grunnskólum, kvöldskólar fyrir börn sem verið er að leysa úr skuldaánauð og háskólastarf. Á árinu 2O11 voru 47 börn leyst úr skuldaánauð og komið í skóla. Með Sameinuðu indversku kirkjunni (UCCI) eru starfræktir grunnskólar, iðn- og framhaldsskólar. Fósturforeldrar styðja um 4OO börn í gegnum UCCI, flest þeirra eða 324 búa á heimavist samtakanna. Þróunarverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar 1O – Margt smátt ... Vatnsþró í Eþíópíu. Fjölskylda í Úganda við vatnstankinn sinn. Brunnur í Malaví.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.