Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 104
31. mars 2012 LAUGARDAGUR64
Æ
t l i stærsta
breytingin
sé ekki sú að
núna förum
við hjónin að
geta komist
á hestbak aftur. Á sínum tíma
stofnuðum við Íshesta til að geta
verið í hestamennsku, en stundum
okkar með hestunum hefur fækkað
afar mikið síðustu tíu árin eða svo.
Við erum bæði við góða heilsu og
hlökkum til að ríða út í sumar og
ferðast um landið okkar. Margir
hafa spurt okkur hvers vegna við
ákváðum að selja fyrirtækið á upp-
gangstímum eins og nú, en ég spyr
á móti hvort ekki sé rétt að njóta
lífsins meðan maður enn getur.
Við höfum áður fengið tilboð sem
við höfum ekki haft áhuga á, en
stundum koma tilboð sem ekki er
hægt að hafna,“ segir Einar Bolla-
son sem nýlega lét af starfi fram-
kvæmdastjóra Íshesta, frum-
kvöðlafyrirtækis í hestatengdri
ferðaþjónustu, en Íshestar fögnuðu
þrjátíu ára afmæli sínu í gær með
pompi og prakt.
Nýr framkvæmdastjóri Íshesta,
Fannar Ólafsson, fór fyrir litlum
hópi fjárfesta sem keyptu fyrir-
tækið í haust af 25 hluthöfum, þar
á meðal Einari og Sigrúnu Ingólfs-
dóttur eiginkonu hans sem áttu um
þriðjungshlut. Einar hefur þó ekki
skilið alveg við starfsemi Íshesta
því að ósk nýrra eigenda gegnir
hann starfi stjórnarformanns
næstu tvö árin og er við loðandi
fyrirtækið sem hann stofnaði
ásamt fleirum árið 1982.
„Ég þarf ekki að mæta í vinnuna
á hverjum degi en er í þónokkru
starfi við að halda í hendina á
Fannari,“ segir Einar og bætir
við að honum lítist mjög vel á
nýja eigendur og að skiptin fari
vel í hann. „Fannar uppfyllti öll
skil yrðin. Hann er alinn upp í
sveit, hestamaður af guðs náð,
mikill stjórnandi og ekki síst var
hann miðherji og fyrirliði hjá KR
í körfuboltanum. Reyndar heldur
hann ekki með Boston Celtics í
NBA heldur einhverju furðulegu
liði sem ég man ekki hvert er. Ef
hann væri Los Angeles Lakers-
maður hefði þetta ekki komið
til greina,“ segir Einar og hlær,
en hann er sem kunnugt er einn
harðasti stuðningsmaður KR og
Boston Celtics sem sögur fara af.
Tilviljun réði för
Einar segist stoltur af því að hafa
átt hlut í að ryðja brautina fyrir
hestatengda ferðaþjónustu hér
á landi með stofnun Íshesta, en
fyrirtækið var fyrst sinnar teg-
undar til að bjóða upp á skipu-
lagðar hestaferðir með fyrir fram
ákveðnum dagsetningum sem aug-
lýstar voru í bæklingum og víðar.
Það var þó fyrir einskæra tilviljun
að fyrirtækið komst á laggirnar.
„Helgi Ágústsson vinur minn,
sem lengi var sendiherra í Eng-
landi, Bandaríkjunum og víðar,
spurði mig hvort ég og Sigrún
konan mín gætum ekki farið
með sendiherra Bandaríkjanna á
Íslandi, aðmírálinn á Keflavíkur-
flugvelli og fleira fólk í stutta
hestaferð um Suðurland. Ég hafði
samband við Guðmund Birki Þor-
kelsson, körfuknattleiksmann sem
ég hafði þjálfað hjá HSK, sem jafn-
framt var bóndi í Miðdal og saman
söfnuðum við saman öllum okkar
hestum og fórum í þriggja daga
ferð. Fólkið var svo ánægt að það
spurði hvort við vildum ekki fara
með þau yfir Kjöl sumarið eftir.
Við vorum bara kennararæflar
sem höfðum í raun varla efni á að
standa í hestamennsku og slógum
til, þótti það fín leið til að afla
peninga til að fjármagna áhuga-
málið. Árni Björgvinsson og Jenný
Sigmundsdóttir vinafólk okkar
komu inn í þetta með okkur, en í
fyrstu ferðinni yfir Kjöl voru átta
farþegar og tuttugu starfsmenn,
svo það varð skiljanlega ekki
mikill afgangur. En við héldum
áfram og í dag eru það um 25.000
manns sem nýta sér einhvern anga
af þjónustu okkar á ári,“ segir
Einar, en blað þótti brotið í sögu
ferðamála hér á landi þegar Hesta-
miðstöð Íshesta í Hafnarfirði var
opnuð árið 2000. Icelandair, dóttur-
félög þess og fleiri aðilar komu að
þeim framkvæmdum og breyttust
Íshestar þá í raun úr frumherja-
fyrirtæki yfir í hlutafélag.
Einar segir fyrirtækið ávallt
hafa lagt mikla áherslu á
umhverfis mál og var hann til að
mynda formaður umhverfisnefnd-
ar Samtaka ferðaþjónustunnar um
árabil. Meðal annars vegna þess
og gæðastefnu fyrirtækisins hafa
Íshestar getið sér gott orð á erlend-
um vettvangi, sem Einar segir öllu
skipta þegar kemur að árangri á
sviði ferðaþjónustu. „Það skiptir
engu máli hversu mikið við aug-
lýsum eða í hve mörgum sýningum
við tökum þátt. Einn óánægður við-
skiptavinur getur hæglega eyðilagt
margra ára og margra milljóna
markaðsstarf. Viðskipta vinurinn
hefur alltaf rétt fyrir sér og ef
eitthvað kemur upp þá kippum
við því bara í liðinn. Þessu verða
aðilar í íslenskri ferðaþjónustu að
gera sér grein fyrir, en í heildina
held ég að við Íslendingar getum
verið stolt af okkar ferðaþjónustu.
Svartasti bletturinn á henni í dag
eru öll þessi leyfislausu fyrir-
tæki og svarta atvinnustarfsemin
sem er gífurleg, hvort sem hún er
meiri í ferðaþjónustu en í öðrum
atvinnugreinum eða ekki. Á aðal-
fundi Samtaka ferðaþjónustunnar
fyrir tveimur vikum kom fram að
samtökin hafa eytt fleiri milljón-
um og ráðið sérstakt starfsfólk til
að leita þessi fyrirtæki uppi. Það
er ótrúlegt að atvinnuvegasamtök
þurfi að standa í svona nokkru sem
ætti að vera hlutverk stjórnvalda,
en þó gott að einhver geri þetta því
þetta er risavandamál.“
KR-ingur en þykir vænt um Val
Framkvæmdastjórinn fyrrverandi
er borinn og barnfæddur vestur-
bæingur, fæddur á Vesturgötu 38
þar sem hann bjó ásamt foreldrum
sínum, sem skildu þegar Einar var
fimm ára, í annarri af tveimur
íbúðum á efri hæð hússins. Í hinni
bjó afi Einars, en á neðri hæðinni
Páll Einarsson, hæstaréttardómari
og fyrsti borgarstjóri Reykja víkur.
Síðar festu hjónin Jón Baldvin
Hannibalsson og Bryndís Schram
kaup á húsinu og enn síðar tónlist-
arkonan Björk Guðmundsdóttir.
KR-ingurinn hóf íþróttaf erilinn
í ÍR því enginn körfuknatt leikur
var stundaður í Vestur bænum
á þeim tíma. „Með ÍR varð ég
Íslandsmeistari árið 1959, en sá
titill var í raun ólöglegur því ég
var bara sextán ára í þriðja flokki
og í þá daga mátti ekki spila upp
fyrir sig. Það hvarflaði bara ekki
að nokkrum manni að spyrja því
ég var svo stór,“ rifjar Einar upp.
Í kjölfarið fylgdu nærri tuttugu
titlar sem leikmaður og þjálfari.
Lengst af var hann hjá KR en var
einnig viðloðandi Þór Akureyri,
Hauka og fleiri félög, auk þess sem
hann lék með landsliði Íslands og
þjálfaði liðið með hléum á árunum
1974 til 1987.
Við síðustu aldamót var Einar
svo valinn sem leikmaður í
lið aldarinnar og sem þjálfari
aldarinnar af nefnd skipaðri val-
inkunnum körfuboltaspekingum.
Svo skemmtilega vill til að Sigrún,
eiginkona Einars, var einnig valin
í lið aldarinnar í handknattleik,
Hef meiri tíma með hestunum
Einar Bollason er einn stofnenda ferðaþjónustufyrirtækisins Íshesta sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu í gær. Hann lét nýlega
af starfi framkvæmdastjóra og sagði Kjartani Guðmundssyni frá áformum sínum, ferlinum í körfunni og erfiðri einangrunarvist.
HJÓNIN Einar og eiginkonan Sigrún Ingólfsdóttir, „fjármálaráðherra Íshesta“ til margra ára eins og Einar orðar það, eiga fimm börn og fjórtán barnabörn og búa í Garðabænum. „Án Sigrúnar væri þetta fyrirtæki ekki til,“
segir Einar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA