Fréttablaðið - 31.03.2012, Síða 122
31. mars 2012 LAUGARDAGUR82
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. klastur, 6. komast, 8. skýra frá,
9. frændbálkur, 11. belti, 12. lítið glas,
14. aðfall, 16. ólæti, 17. gerast,
18. tímabil, 20. stöðug hreyfing,
21. nöldra.
LÓÐRÉTT
1. hvæs, 3. stefna, 4. vaðsekkur,
5. matjurt, 7. tala, 10. skítur, 13. suss,
15. skapi, 16. sigað, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fúsk, 6. ná, 8. tjá, 9. ætt,
11. ól, 12. staup, 14. aðsog, 16. at,
17. ske, 18. tíð, 20. ið, 21. tuða.
LÓÐRÉTT: 1. fnæs, 3. út, 4. sjópoki,
5. kál, 7. áttatíu, 10. tað, 13. uss,
15. geði, 16. att, 19. ðð.
Segðu mér, ert
þú ekki með
honum Jóa? Já,
þekkir
þú
hann?
Þekki og þekki? Ég hef
ekki hitt hann lengi en
þekkti hann svona smá
einu sinni, ef þú veist
hvað ég meina?
Flottur foli!
Heppin!
Þú varst ekki búin
að segja mér þetta,
leikmaður Selfoss
braut báða ökklana í
leiknum á móti Hetti
í gær!
Já...
hann var
óhepp-
inn!
Sástu framan
í Palla?
Já! hvað
gerðist?
Hann segist
hafa verið
stunginn af
býflugu.
Í ALVÖRU?
Ég ætla að
byrja að rækta
býflugur.
Ég líka. Ég verð
að fá svona
varir.
Ótr
úle
g
fra
mþ
róu
n
í þ
ráð
lau
sri
tæ
kni
Ég held að ég
sé búinn að
stækka meira,
pabbi!
Ókei.
Svona.
Ha! ég er
næstum
því jafn
stór og þú!
Strákurinn er með
rosalegar tær.
INNKÖLLUN Á
VATNSVÉLUM
Kæru viðskiptavinir.
BYKO hefur ákveðið að innkalla tvær gerðir af vatns-
vélum. Er þetta gert af öryggisástæðum, en komið
hefur í ljós að við ákveðnar aðstæður geta vélarnar
ofhitnað og skapað hættu.
BYKO biður þá sem hafa keypt slíkar vatnsvélar
hjá okkur að skila þeim í næstu verslun BYKO gegn
endurgreiðslu. Eins og áður segir er þetta gert til að
fyrirbyggja það að hætta skapist af notkun vélanna.
Vnr. 65105790
Borðvatnsvél.
Vnr. 65105795
Vatnsvél.
alla sunnudaga
klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur
Í apríl 2006 birtust mínir fyrstu Bak-þankar hér í blaðinu. Síðan hefur margt
breyst til hins betra í lífi mínu. Það eina,
sem ég man í svipinn eftir að breyst hafi á
verri veg, er tilfinning mín í garð þessara
skrifa. Lengst af hlakkaði ég til að færa
vangaveltur mínar í letur og koma þeim á
framfæri í svo víðlesnum fjölmiðli. Upp á
síðkastið hefur þetta aftur á móti orðið að
hálfgerðri kvöð og núorðið er ekki laust við
að ég finni fyrir vægri kvíðaröskun í hvert
skipti sem ég sest við tölvuna.
„HVERNIG verður þetta nú rangtúlkað,
snúið út úr því og það lagt út á versta veg?“
„Hvaða mannvonska, níðingsháttur eða
jafnvel kynferðislega óeðli verður lesið inn
í þessa hugleiðingu?“ Í seinni tíð hef ég ein-
hvern veginn ekki getað komist hjá því að
velta þessu fyrir mér í hvert sinn sem ég
ýti á „senda“.
ÉG finn nefnilega í síauknum mæli
fyrir því að þeir, sem verða
fyrir gagnrýni eða aðfinnslum,
taka því sem persónu legri
árás. Ef mér finnst femínistar
ganga of langt er ég kynferðis-
lega brenglaður hórkarl. Ef ég
fíla ekki ungan tónlistarmann
er ég haturs fullur karlfauskur.
Ef mér finnst of dökk mynd
dregin upp er ég veruleika-
firrtur skýja glópur. Auðvitað væri auðvelt
að komast hjá þessu með því að gæta þess
að segja aldrei neitt sem mögulega gæti
komið illa við einhvern. En þá er líka alveg
eins gott að þegja bara, því þá segir maður
ekki neitt sem ástæða er til að hafa orð á.
Lífið er of stutt til að eyða því í tilgangs-
lausan vaðal.
ÉG hef fengið vinnu sem felur það í sér að
vera með ókunnugu fólki á við kvæmum
augnablikum auk þess að annast kristilegt
barna- og unglingastarf. Ég hef metnað
fyrir því. Ég hef engan metnað fyrir því
að vera helsti „bátaruggarinn“ eða „enfant
terrible“ í opinberri umræðu á Íslandi,
kyndilberi pólitískrar rang hugsunar. Ég
nenni því ekki.
ÞEGAR aukavinna, sem ég hef lítinn metn-
að fyrir, fer að há mér í því, sem ég hef
köllun til að gera, er valið því auðvelt. Ég
get ekki vænst þess að vera aufúsugestur
í sorgarhúsi eða vera treyst fyrir ungum
börnum ef ég á sama tíma sit undir því frá
leiðtoga stjórnmálaflokks, sem skjólstæð-
ingar mínir kynnu jafnvel að tilheyra, að
vera kynferðislega brenglaður nauðgara-
vinur, hættulegur jafnrétti og flestum
góðum samfélagsgildum.
ÞETTA eru því mínir síðustu Bakþankar.
Ég þakka lesendum sex ára samfylgd.
Takk fyrir mig