Fréttablaðið - 31.03.2012, Side 126
31. mars 2012 LAUGARDAGUR86
➜ Gjörningar
15.00 Gjörningahátíðin Halarófa
verður haldin um miðbæ Reykjavíkur.
Um er að ræða vorhátíð, endahnút
og lokahnykk á tveimur námskeiðum
við myndlistardeild LHÍ. Hátíðin byrjar
fyrir framan Kaffistofuna, Hverfisgötu
42B þar sem upphafsgjörningar eiga
sér stað. Gestir hátíðarinnar verða
síðan leiddir um næsta nágrenni. Allir
velkomnir.
➜ Listasmiðja
13.00 Smiðja um notkun, stjórnun og
smíði róbota verður haldin í Hafnarhúsi.
Um er að ræða þriðja samstarfsverkefni
Lornalabs og Listasafns Reykjavíkur á
þessu ári. Gestafyrirlesarar eru Joseph
Timotei Foley og Stefán Freyr Stefáns-
son. Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
➜ Sýningar
15.00 Sýningin A N I M U S opnar í
002 gallerí, Þúfubarði 17, Hafnarfirði.
Um er að ræða 24 tíma sýningu þar
sem sex listamenn eru innilokaðir í
svefnherbergi Birgis Sigurðssonar, sem
breytir heimili sínu í gallerí yfir helgi.
15.00 Sýning Þórs Sigmundssonar
og Pjeturs Stefánssonar verður opnuð
í sal íslenskrar grafíkur, Hafnarhúsinu.
Aðgangur er ókeypis.
16.00 Málverkasýning myndlistar deildar
Fjölbrautaskólans í Breiðholti verður
opnuð í Gallerí Tukt, Pósthússtræti 3-5.
➜ Hátíðir
18.00 Blúshátíð Reykjavíkur hefst með
Blúsdegi í miðbænum.
➜ Umræður
14.00 Heimspekikaffihúsið verður á
Horninu, Hafnarstræti 15. Umræðuefnið
er Hvað er lífsskoðun? Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
11.00 Páskabasar verður haldinn í
Kattholti, Stangarhyl 2. Kökur, ýmsir
munir, páskaskraut og margt fleira.
Basarinn stendur til klukkan 16:00.
➜ Tónlist
17.00 Úrslitakvöld Músíktilrauna 2012
verður haldið í Austurbæ. Alls keppa 10
bönd um sigurinn og mikil fjölbreytni
er í tónlistarstefnum þeirra. Rás 2 mun
útvarpa beint frá kvöldinu. Miðaverð er
kr. 1.500.
17.00 Matthías Nardeau óbóleikari og
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó-
leikari flytja eina svítu og þrjár sónötur
fyrir óbó og píanó í Salnum, Kópavogi.
17.00 Matthías Birgir Nardeau og Anna
myndabækur hjá bóka útgáfunni
Crymogeu sem á heiðurinn af
sumum af fallegustu bókum
í heimi. Ein sú alfallegasta
er Sögustaðir – í fótspor W.G.
Collingwoods sem einmitt er eftir
fyrrnefndan Einar Fal og var í
smíðum haustið sögulega 2008.
Þrátt fyrir annir tókst ljós-
myndaranum að leggja drög að
sýningunni sem nú hangir í Lista-
safni ASÍ. Sýningin er persónu-
legt uppgjör við hrunið og gott að
hann skyldi finna tíma til að klára
verkefnið meðan efnið er enn þá
ferskt.
Yrkisefni sýningarinnar er
sunnudagurinn eða sumar leyfið
þar sem tilgang lífsins er að
finna. Þegar samfélagið er orðið
óbærilegt eru eðlileg viðbrögð að
leita á náðir einhvers ástands þar
sem tilveran er hrein og nakin.
Flóttinn verður æ áleitnara yrkis-
efni eftir því sem sljóleiki listanna
gagnvart þjóðfélagsmálum eykst:
Reistu tjald þitt fjarri heiminum,
annað svarar ekki kostnaði. Þetta
er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er
allt ógeðslegt. Skríddu í skjól, þar
er kjarni tilverunnar.
Sýningunni er skipt í þrjá hluta
og er bróðurpartur hennar til-
einkaður flóttanum, Griðastaðir í
Ásmundarsal og Skjól í Arinstofu.
Í Gryfju má hins vegar finna
ljóðrænar yfirborðs myndir af
fósturjörðinni sem ljós myndarinn
kallar Svörð. Myndirnar af
sverðinum eru yndislegar en
virka svolítið eins og uppfyll-
ingarefni í samhenginu. Rýnir
er þó ósammála þeirri gagnrýni
að GPS-hnit hefðu bætt hina hár-
beittu listrænu sýn ljósmyndar-
ans knáa. Sumir listamenn virðast
þurfa niðurnjörvaða aðferðafræði
til að ráða ferðinni og flýja þá
gjarna í skjól GPS-tækisins sem
gefur verkunum menntað yfir-
bragð á kostnað listræns gildis.
Einstaka myndir á sýningunni
eru algjört konfekt fyrir augað, til
dæmis myndin af Helga Þorgils
Friðjónssyni og Margréti konu
hans. Það er gaman að segja frá
því að í Ingólfsstræti er sýning
á skemmtilegum portrettmynd-
um eftir Helga Þorgils og þar má
finna málverk af Einari Fal og
reyndar öðrum frábærum lista-
mönnum. Ásmundur Ásmundsson
Niðurstaða: Sýningin er persónulegt
uppgjör við hrunið. Gott að ljós-
myndarinn skyldi finna tíma til þess
enda þurfa allir fyrr eða síðar að
gera upp sitt hrun. Hann leitast við
að fanga kjarna tilverunnar og finnur
hann í skjóli.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 31. mars 2012
Farfuglaheimilið Kex verður með heimilislegan sunnu-
dag á morgun. Dagskráin hefst klukkan 11 og stendur
fram eftir degi. Dagskráin hefst með bílskúrssölu þar
sem Þórunn Antonía, Kormákur Jarl, Snæfríður Sól og
fleiri taka til í skúrnum og selja varning á góðu verðu.
Þá hyggst Hálfdán Pedersen, hönnuður Kex, selja af
sér listamannaspjarirnar.
Klukkan eitt hefst svo svokallaður kósý upplestur
þar sem valdir einstaklingar lesa upp úr uppáhalds-
barnabókinni sinni. Á meðal þeirra sem lesa upp
eru Auðunn Blöndal, Oddný Sturludóttir, Nína Dögg
Filippus dóttir, Arnar Eggert Thoroddsen, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir og Nanna Kristín Magnúsdóttir.
Loks hefst brjálað barnastuð og munu Stefán Karl,
Edda Björg og fleiri flytja uppáhaldsbarnalögin sín.
Auðunn Blöndal
les fyrir börnin
LESA FYRIR BÖRNIN Auðunn Blöndal og Oddný Sturludóttir eru á meðal þeirra
sem lesa fyrir börnin.
Myndlist ★★★ ★★
Skjól
Einar Falur
Sýnt í Listasafni ASÍ til 1. apríl
Haustið 2008 er mörgum í fersku
minni. Flestir muna hvar þeir
voru staddir Glitnishelgina –
sjálfur var rýnir uppi í bústað
– og allir þegar Geir H. Haarde
ávarpaði þjóð sína grátandi í
sjónvarpssal og kvaddi hana
með hinum fleygu orðum: „Guð
blessi Ísland“ sem ásamt „ helvítis
fokking fokk“ urðu einkennisorð
hrunsins. Þessir frasar eiga enn
við og kannski aldrei betur en nú
enda er ballið bara rétt að byrja.
Hér er að sjálfsögðu átt við hið
menningarlega og andlega hrun
sem ekki sér fyrir endann á.
Allir þurfa á einn eða annan hátt
að gera upp uppáhaldshrunið sitt
en fæstir hafa getuna eða tækin
til þess og því er ekki von á góðu.
Ljósmyndarar eru oft vel tækjum
búnir og sumir þeirra kunna að
smella af á réttum tíma. Að fara
fram á frumleika er hins vegar til
of mikils mælt þegar óveðurs öflin
berja á landinu, hvað þá þegar
stormurinn er genginn yfir og
eyðimörkin blasir við.
Einar Falur Ingólfsson hefur
lengi verið í fremstu röð ljós-
myndara, bæði uppi á Mogga
og annars staðar og hefur sýnt
myndir sínar hér og þar auk
þess að vera liðtækur penni.
Hann hefur gefið út nokkrar ljós-
HRUNIÐ Í HJÁVERKUM
AGENT FRESCO
GREIFARNIR
JÓNSI OG GRETA SALÓME
Styrkt af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði
Stjórnandi Sigurður Flosason
Stórsveitin heldur áfram að fagna tuttugu
ára afmæli. Flutt verða verk sem samin
hafa verið sérstaklega fyrir sveitina á liðn-
um árum. Höfundar eru Eero Koivistonen,
Veigar Margeirsson, Daniel Nolgård og
Ólafur Gaukur Þórhallsson. Einnig verða
frumflutt ný verk eftir Stefán S. Stefánsson
og Lars Jansson.
ANNAR
Í AFMÆLI
Tónleikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni
Lyginni líkast sem Jazzhátíð Reykjavíkur
stendur fyrir í Silfurbergi, Hörpu 1. apríl.
Miðverð á staka tónleika er kr. 2.000 en
kr. 3.500 á alla tónleika dagsins.
Miðar á harpa.is og í miðasölu Hörpu.
HARPA / Silfurberg
sunnudag. 1. apríl kl. 14:00
Miðaverð kr. 2000
Styrkt af
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR 20 ÁRA