Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 132
31. mars 2012 LAUGARDAGUR92
Söngvarinn Elton John segir að
það hefði auðveldlega getað farið
eins fyrir honum og Whitney
Houston, sem lést í febrúar langt
fyrir aldur fram. Það hefði gerst
ef honum hefði ekki tekist að
verða allsgáður árið 1990.
„Ég hefði auðveldlega getað
lent í því sama og Whitney
Houston. Það er kraftaverk
vegna þess að ég er viss um að
ég notaði alveg jafnmikið kókaín
og hún,“ sagði söngvarinn. Hann
á núna fjórtán mánaða son með
manni sínum David Furnish og
þakkar það vímuefnaleysinu.
John hefði
líka dáið
Madonna hefur sett á sölu glæsi-
villu sem hún keypti með fyrrum
eiginmanni sínum Guy Ritchie í
Beverly Hills
árið 2003. Vill-
an kostaði um
1,6 milljarða
króna og er 540
fermetrar með
þrjú svefnher-
bergi og fimm
baðherbergi.
Allt var endur-
innréttað þegar
Madonna og
Ritchie fluttu inn. Einnig er á
lóðinni stór sundlaug og tennis-
völlur.
Eftir að Madonna skildi við
Ritchie árið 2008 flutti hún til
New York. Hún er núna að undir-
búa stórt tónleikaferðalag um
heiminn til að kynna sína nýjustu
plötu.
Losar sig við
glæsivillu
Staðfest hefur verið að Liam Neeson leiki í nýjustu
Batman-myndinni, The Dark Knight Rises, sem
kemur út í sumar. Hinn 59 ára leikari mun endur-
taka hlutverk sitt sem Ra’s al Ghul í myndinni en
hann lék sömu persónu í Batman Begins.
Aðeins verður um lítið hlutverk að ræða, enda var
persónan drepin í Batman Begins. „Ég veit ekkert
um hvað myndin er og ég veit ekki einu sinni hvort
ég verð í henni. Þetta er lítið hlutverk og ég verð
þarna ef ég verð ekki klipptur út,“ sagði Neeson við
CNN.
Josh Spence mun leika persónu Neeson sem ungan
mann í myndinni. Christian Bale verður áfram í
hlutverki Batman, auk þess sem Tom Hardy og Anne
Hathaway verða í stórum hlutverkum.
Snýr aftur í Batman
AFTUR Í BATMAN
Liam Neeson leikur
í nýju Batman-
myndinni The Dark
Knight Rises.
Fyrstu tónleikar í tónleikaröðinni
Stopover Series verða í Hörpu
17. apríl. Þar koma fram banda-
ríska jaðarrokksveitin This Will
Destroy You frá Texas og Kimono.
Stopover Series er sett saman
og studd af Kimi Records, Kex
Hostel, Icelandair, Hörpu, Gogo-
yoko og Reyka. Tónleikaröðin
hefur það markmið að bjóða upp
á tónleika með reglulegu millibili
með spennandi jaðarhljóm sveitum
af erlendum uppruna. Fyrirkomu-
laginu er þannig háttað að hljóm-
sveitir nýta sér kosti leiðar kerfis
Icelandair og stoppa hér á leið
sinni yfir Atlantshafið og nýta
hér tímann til tónleikahalds og
hvíldar.
This Will Destroy You gaf út
sína aðra plötu, Tunnel Blanket,
á síðasta ári sem hlaut góðar við-
tökur. Sveitin hefur átt fjölmörg lög
í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
undanfarin ár og á hún til að mynda
lag í myndinni Moneyball.
Rokksveitin Kimono fagnar
tíu ára afmæli sínu um þessar
mundir með ýmsum hætti, meðal
annars með útgáfu á tónleikaupp-
tökum sem og tónleikahaldi ýmiss
konar. Miðasala á tónleikana hefst
þriðjudaginn 3. apríl og fer fram á
Harpa.is og Midi.is.
This Will Destroy You
spilar í Hörpu í apríl
TIL ÍSLANDS Bandaríska rokksveitin This Will Destroy You kemur til landsins í apríl.
John Primer spilar á Blúshá-
tíð í Reykjavík um páskana.
Hann spilaði með goð-
sögninni Muddy Waters á
sínum yngri árum.
Bandaríski blústónlistarmaður-
inn John Primer spilar á Blúshá-
tíð í Reykjavík um páskana. Hann
hlakkar til að koma til landsins og
ætlar að dvelja hér í fjóra daga.
„Þetta verður gaman,“ segir
Primer, sem spilar með The Blue
Ice Band á Hótel Nordica 4. apríl.
Primer fæddist í Mississippi
1945 en fluttist til Chicago 1963
og spilar því hinn svokallaða Chi-
cago blús. Hann hóf feril sinn í
hljóm sveitinni The Maintainers
sem blandaði saman sálar- og blús-
tónlist. Primer kynntist Sammy
Lawhorn sem hafði spilað með goð-
sögninni Muddy Waters og fékk þar
góða leiðsögn. Þegar annar þekktur
blúsari, Willie Dixon, safnaði
mönnum saman í All Stars-hljóm-
sveit árið 1979 réð hann Primer
sem gítarleikara. Árið eftir fékk
Muddy Waters Primer til að spila í
hljómsveit sinni og þar lék hann þar
til Waters lést árið 1983. „Það var
frábært að spila með Muddy. Það
var einn skemmti legasti tími ævi
minnar. Þeir verða ekki stærri en
hann,“ segir Primer með sterkum
Mississippi-hreim. „Þetta var mjög
gott tækifæri fyrir mig og mikil
reynsla. Muddy var frábær náungi.“
Primer gekk næst til liðs við
Magic Slim og hljómsveit hans
Teardroppers. Samstarfið entist
í rúman áratug og að því loknu
ákvað Primer að einbeita sér að
sólóferli sínum og fór að gefa út
eigin plötur. Hann er einmitt að
taka upp nýja plötu um þessar
mundir en ætlar ekki að spila efni
af henni í Reykjavík, heldur ein-
beita sér að eldra efni.
Primer var tilnefndur til
Grammy-verðlaunanna árið 2009
ásamt fleiri blúsurum fyrir tvö-
földu plötuna Chicago Blues: A
Living History. Árið eftir var
hann tilnefndur í fjórgang til
bandarísku blúsverðlaunanna en
tókst ekki að bera sigur úr býtum.
Í ár hefur hann einnig verið til-
nefndur til sömu verðlauna en
þau verða afhent í maí. Aðspurður
hvaða þýðingu þessar til nefningar
hafa fyrir hann segir Primer:
„Þær þýða það að maður verður
bara að halda áfram að spila blús-
inn og ekki hætta fyrr en maður
hefur unnið einhver verðlaun,“
segir hann og hlær. „Bara halda
áfram og gefast ekki upp.“
En hvað er það við blúsinn sem er
svona heillandi? „Blús er til finning
sem lætur mér líða vel. Hann er
hluti af mínu lífi og læknar öll mín
vandamál.“ freyr@frettabladid.is
BLÚS LÆKNAR
ÖLL VANDAMÁL
TIL ÍSLANDS Bandaríski blústónlistarmaðurinn John Primer spilar á Blúshátíð í
Reykjavík um páskana.
Blús er tilfinning sem lætur mér líða vel. Hann er hluti
af mínu lífi og læknar öll mín vandamál.
MADONNA
Í tilefni af kaupum okkar á Árhúsum þá bjóðum við sérstakt
tilboð nú um páskana, 2 fyrir 1
Þú borgar fyrir eina nótt í smáhúsunum okkar en gistir í tvær,
eða þú borgar fyrir 2 nætur en gistir í fjórar nætur.
Þeir sem nýta sér þetta einstæða tilboð fá síðan
10% afslátt af veitingum í Café Árhús.
Kynnið ykkur þetta frábæra tilboð
- verðið kemur ykkur á óvart
Árhús Hellu Sími 487 5577
arhus@arhus.is - www.arhus.is
Á laugardagskvöldið verður lifandi tónlist frá kl. 22 - 24
Á páskadag verður farið í ratleik með börnin (glæsilegir vinningar)