Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 136

Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 136
31. mars 2012 LAUGARDAGUR96 sport@frettabladid.is JÓN ARNÓR STEFÁNSSON hefur skrifað undir nýjan samning við spænska úrvalsdeildarfélagið CAI Zaragoza sem gildir til næstu tveggja ára. Hann hefur spilað vel með liðinu í vetur en það er sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar. Hann hefur verið á Spáni síðan 2009 en deildin þar telst ein sú sterkasta í Evrópu. Allt um leiki gærkvöldsins er að fi nna á FÓTBOLTI Það hefur verið mikil umræða um heilsuvernd knatt- spyrnumanna í kjölfar þess að Fabrice Muamba, leikmaður Bolton, fékk hjartaáfall í leik gegn Tottenham. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist á undanförnum árum. Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvernig eftirliti með ástandi íslenskra knattspyrnumanna væri háttað. „Almenn læknisskoðun leik- manna er krafa samkvæmt leyfis- kerfi KSÍ en leikmenn liða sem taka þátt í Evrópukeppnum þurfa að gangast undir ítarlegri lækn- isskoðun. Þar á meðal þurfa þeir leikmenn að fara í hjartaóm- skoðun,“ sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, en stendur til að gera betur í þessum málum? „Það er hægt að gera betur í öllum þessum málum og verið að ræða ýmislegt. Það er svo síðan spurning um kostnaðar- liðinn sem getur orðið hár.“ Það hefur einnig verið rætt víða hvort ekki ætti að skylda þjálfara liða í yngri flokkum að fara reglulega á skyndihjálparnámskeið. Ef eitt- hvað kæmi upp á í leik væri alltaf tryggt að einhver á staðnum kynni að bregðast rétt við. „Skyndihjálpin er hluti af okkar námsefni að ég held en það er spurning um hversu reglulega þjálfarar ættu að fara á slík nám- skeið. Það væri mjög æskilegt að þjálfarar myndu sækja slík nám- skeið reglulega.“ Dæmin eru til staðar hér á landi rétt eins og erlendis. Ætlar KSÍ að breyta einhverju í sínu kerfi í þessum málum? „UEFA og FIFA eru að vinna á þessum vettvangi og við höfum fylgt þeirra reglum vel eftir. Við höfum samt ekki enn gert það að skyldu að leikmenn í efstu deildum fari í hjartaskoðun enda snýst það um talsverðan kostnað.“ - hbg KSÍ segist fylgja reglum UEFA og FIFA í hvívetna er kemur að heilsuvernd knattspyrnumanna: Hjartaskoðun aðeins hjá liðum í Evrópukeppni FABRICE MUAMBA Knattspyrnuheimurinn er enn að jafna sig eftir áfallið sem Muamba fékk. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Stilian Petrov, fyrirliði Aston Villa og búlgarskur lands- liðsmaður, hefur greinst með bráðahvítblæði en félagið greindi frá því í gær. Fram kom í yfir- lýsingu félagsins að Petrov hafi fengið hita eftir leik liðsins gegn Arsenal um síðustu helgi og hann hafi síðan gengist undir læknis- skoðanir. Niðurstaða þeirra var staðfest í gær. Petrov hefur verið á mála hjá Villa síðan 2006 og er í miklu uppáhaldi hjá stuðnings mönnum þess. Við tekur erfið meðferð og biðja fulltrúar félagsins um að Petrov og fjölskyldu hans verði gefið næði á þessum erfiðu tímum. - esá Fyrirliði Aston Villa: Greindist með bráðahvítblæði STILIAN PETROV Hefur verið fastamaður í liði Aston Villa undanfarin ár. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 15. ágúst næstkomandi. Fyrsti leikur Íslands í undankeppninni er gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli þann 7. september. - hbg Vináttulandsleikur í ágúst: Færeyingar koma í Dalinn LAGERBÄCK Landsliðsþjálfarinn undirbýr liðið fyrir undankeppni HM. MYND/VILHELM Leikir helgarinnar Laugardagur: 14.00 Man. City - Sunderl. Sport 2 & HD 14.00 QPR - Arsenal Sport 3 14.00 Aston Villa - Chelsea Sport 4 14.00 Wolves - Bolton Sport 5 14.00 Everton - WBA Sport 6 14.00 Fulham - Norwich 14.00 Wigan - Stoke Sunnudagur: 12.30 Newc. - Liverpool Sport 2 & HD 15.00 Tottenh. - Swansea Sport 2 & HD FÓTBOLTI Manchester City getur endurheimt toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar um stundar- sakir að minnsta kosti með sigri á Sunderland í dag. Helsti keppinautur liðsins um titilinn, Manchester United, spilar ekki fyrr en á mánudagskvöldið. Arsenal er í góðri stöðu í þriðja sæti deildarinnar með þriggja stiga forystu á Tottenham sem er í fjórða sæti. Arsenal mætir QPR á útivelli í dag en Tottenham leik- ur gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea á morgun. Chelsea og Newcastle eru svo fimm stigum á eftir Tottenham og binda enn vonir við að komast í hóp fjögurra efstu liða deildar- innar og öðlast þar með þátt- tökurétt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Þá er einnig mikil spenna á hinum enda töflunnar en aðeins þrjú stig skilja að liðin í 16.-19. sæti deildarinnar. - esá Enski boltinn um helgina: City getur kom- ist á toppinn ARGENTÍNUMENNIRNIR Carlos Tevez gæti spilað með City í dag en Sergio Agüero er þó frá vegna dularfullra meiðsla. Ekki hefur fengist uppgefið hvernig meiðslin komu til. NORDIC PHOTOS/GETTY HANDBOLTI Lokaumferð N1- deildar kvenna fer fram í dag og þá ræðst hvernig liðin raða sér inn í úrslitakeppnina. Valskonur þurfa stig á móti KA/Þór fyrir norðan til að tryggja sér deildar- meistaratitilinn en Akureyrar- liðið er í baráttunni við Gróttu um sjötta og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Til þess að komast inn í úrslita- keppnina þarf KA/Þór að vinna sinn leik og treysta á það að Grótta taki ekki stig á útivelli á móti Stjörnunni. Stjörnukonur keppa við HK um 4. sætið. Liðin eru jöfn að stigum en Stjarnan stendur betur í innbyrðisviður- eignum. HK heimsækir FH en Stjarnan tekur á móti Gróttu. Allir leikirnir hefjast klukkan 16.00. - óój N1-deild kvenna í handbolta: Valur þarf stig fyrir norðan DAGNÝ SKÚLADÓTTIR Getur orðið deildarmeistari í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI KR-ingurinn Skúli Jón Frið- geirsson gekk í gær frá fjögurra ára samningi við sænska úrvalsdeildar- liðið IF Elfsborg. Þessi 22 ára gamli kappi sem getur spilað bæði sem miðvörður og bakvörður átti frá- bært ár með KR í fyrra en er nú til- búinn í næsta skref á ferlinum. „Ég er virkilega ánægður með þetta. Þetta er stór klúbbur og mjög gott skref fyrir mig á ferlinum held ég. Þeir sýndu mér mikinn áhuga og þjálfarinn sannfærði mig um það að þetta væri rétt skrefið fyrir mig. Hann sagði að hér fengi ég tæki- færi til að spila og sanna mig,“ sagði Skúli en samninga viðræðurnar gengu mjög fljótt fyrir sig enda hann orðinn leikmaður liðsins innan við sólarhring eftir að þeir höfðu fyrst samband. Vilja vera í toppbaráttu Elfsborg hefur verið meðal efstu liða síðustu ár frá því að liðið varð meistari 2006. „Þetta er stór klúbbur sem vill vera í toppbaráttu og því er ég vanur og vill halda áfram að gera. Það hefur alltaf vantað aðeins upp á hjá þeim síðustu ár. Þeim hefur alltaf verið spáð sigri eða alveg við toppinn. Þeir eru mikið búnir að vera í öðru og þriðja sæti síðustu ár og ég held að markmiðið hjá þessu félagi sé alltaf að vinna titilinn,“ segir Skúli. Jörgen Lennartsson tók við Elfs- borg fyrir þetta tímabil en hann þjálfaði áður íslenska leikmenn hjá norska liðinu Stabæk. „Hann hefur bæði þjálfað Íslendinga og fylgst mikið með Íslendingum. Hann þekkir íslenska markaðinn og ég var líka búinn að kanna hann í gegnum þá Íslend- inga sem hafa verið hjá honum. Hann vissi ótrúlega mikið. Hann var búinn að þjálfa 21 árs liðið hjá Svíum og það var kannski þess vegna sem hann þekkti svona mikið til manns,“ segir Skúli. Ekki margar mínútur KR var búið að samþykkja tilboð norska liðsins Sogndal í Skúla Jón en samningaviðræðurnar gengu hægt. En stálu Svíarnir Skúla af Norðmönnunum? „Ég vona ekki því það var eigin- lega ekki þannig. Ég var búinn að segja nei við Sogndal þegar þeir hringdu. Það voru samt ekki margar mínútur sem liðu frá því að ég sagði nei við Sogndal og Elfsborg hringdi. Ég vona að þeir fyrirgefi mér,“ sagði Skúli en það er í það minnsta ljóst að þetta var eitt dramatískasta kvöldið á hans ævi. „Viðræðurnar við Sogndal gengu mjög hægt. Við reyndum að ná saman en það gekk ekki og endan- um sögðum við bara að við værum á leiðinni heim og ég myndi bara spila með KR á næsta ári. Ég var varla búinn að sleppa setningunni þegar síminn hringdi,“ segir Skúli. Skúli var í landsliðshópi Lars Lagerbäck á dögunum og íslenski landsliðsþjálfarinn talaði vel um Skúla á heimasíðu Elfsborg í gær. „Ég hef ekki hitt Skúla mikið en í þau skipti sem ég hef hitt hann þá kom hann mjög vel fyrir bæði sem leikmaður og persóna. Hann er góður og fjölhæfur leikmaður sem hefur tækifæri til að verða betri. Ég tel að þetta séu mjög góð kaup hjá IF Elfsborg,“ sagði Lagerbäck. Skúli Jón hjálpaði KR-liðinu að verða bæði Íslands- og bikar- meistari síðasta sumar og er þrátt fyrir ungan aldur búinn að spila yfir hundrað leiki með liðinu í efstu deild. Góður tími til að fara frá KR „Þetta er frábær tími til að fara út. Það hefði verið erfitt að fara frá KR án þess að hafa orðið Íslandsmeist- ari. Þetta er mjög góður tímapunkt- ur og ég skil við KR í mjög góðu. Ég held að þeir geti plumað sig ágætlega án mín því þeir eru í góðum höndum hjá Rúnari,“ segir Skúli. Hann missir af fyrsta leik tíma- bilsins en Elfsborg tekur á móti Djurgården í fyrstu umferðinni í dag. „Ég hitti strákana í liðinu ekki fyrr en eftir leikinn á morgun (í dag). Ég kom náttúrulega það seint að ég náði ekki að kíkja á æfingu. Það verður gaman að sjá liðið spila og fá að fylgjast með stemningunni á leiknum. Það er mjög gott að fá aðeins að sjá þetta að utan áður en dembir sér inn í þetta. Það er pressa hérna og þetta er stórt lið. Nú er um að gera að standa sig og ég hef fulla trú á því að ég geti það,“ sagði Skúli Jón að lokum. ooj@frettabladid.is Svíarnir stálu mér ekki Skúli Jón Friðgeirsson er nýjasti íslenski atvinnumaðurinn í fótboltanum en hann gekk í gær frá fjögurra ára samningi við sænska liðið IF Elfsborg. „Mjög góð kaup hjá IF Elfsborg,“ segir íslenski landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck. FER FRÁ KR SEM TVÖFALDUR MEISTARI Skúli Jón Friðgeirsson hefur verið í stóru hlut- verki hjá KR síðan 2007. Hér er hann í leik í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Ég var búinn að segja nei við Sogndal þegar þeir hringdu. Það voru samt ekki margar mínútur sem liðu frá því að ég sagði nei við Sogndal og Elfsborg hringdi. Ég vona að þeir fyrirgefi mér. SKÚLI JÓN FRIÐGEIRSSON NÝR LEIKMAÐUR ELFSBORG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.