Heimilisritið - 01.09.1945, Blaðsíða 30
Töfraveigar ástarinnar breyta
jarðnesku umhverfi voru í ódá-
inslund.
Elinor Glyn.
Tárin eru kveðjubros kær-
leikans.
Stenda'hl.
Hin stórlátasta kona krýpur
dularmætti kærleikans í auð-
mýkt.
M. Autrim.
Kærleikurinn er göfgasta
kend sálarinnar og æðsta tak-
mark mannlegrar tilveru.
Lacordaire.
Áhættulaus leikur að ástum
er léleg dægradvöl.
Priscilla Craven.
Konurnar eru blóm, sem yl-
geislar ástarinnar vekja til lífs
í skrúðgarði tilverunnar.
Terentio.
Ótryggð í hjónabandi sprettur
af forvitniskendri löngun til
þess að vita með hvaða hætti
aðrir elska.
Plutark.
Ef kona elskar þig fyrirgefur
hún þér allt — jafnvel mis-
gjörðir þínar. Elski hún þig
ekki getur hún ekki fyrirgefið
þér neitt — ekki einu sinni
dyggðir þínar.
Balzac.
Ungri stúlku, sem ástin hef-
ur aldrei snortið, fer líkt og
fögru blómi, sem yisnar a
stönglinum, vegna þess að eng-
inn hefur lesið það og lagt að
hjarta sínu.
Mme. Cecile G.... N....
Flestar konur kjósa fremur
harðleikni en blíðu í ástum, og.
karlmaðurinn bíður áreiðanlega
fleiri ósigra á þeim vettvangi
vegna linkindar sinnar, heldur
en fyrir þá sök að siðgæði forði
konunni frá að gefa upp vörn.
Ninon de Lenclos.
Sá er mestur munur ástar og
vináttu, að ástin þróast bezt
við öfgar og andstæður, en vin-
áttan krefst rólegs jafnvægis.
Mme, de Maintenon.
Kærleikurinn er óendanlegur
ylgjafi, sem viðheldur æsku
manna, glæðir vonir þeirra og
léttir þeim leið til æðri þroska.
Hrein ást beinir huga mannsins
að öllu sem fagurt er, rétt, al-
vöruþrungið og göfugt.
Sénancourt.
Karlmaðurinn elskar ekki
alltaf þá sem hann virðir, en
hinsvegar virðir konan aðeins
þann sem hún elskar.
Saniel Dubay.
Sé gagnkvæm ást að vakna
eða deyja með karli og konu,
28
HEIMILISRITIÐ