Heimilisritið - 01.09.1945, Blaðsíða 53
Framhaldssaga, sem byrjaði í júli—
heftinu, eftir JOHN DICKSON CARR
Þar
til
DAUDINN
aðskilur
okkur
» PERSÓNUR
sem hingað til hafa komið við sögu.
Richard Markham (Dick), ungur
rithöfundur.
Lesley Grant, unnusta hans, nú
grunuð um að hafa byrlað þremur
mönnum inn eitur.
Price, maður sem hefur skot-
æfingatjald.
Middlesworth, læknir í Six Ashes.
Sir Harvey Gilman, sakamála-
sérfræðingur, dulbúinn sem forlaga-
spámaður, að því er sagt er.
Gideon Fell, frægur lögreglulækn-
ir.
Cynthia Drew, vinstúlka Mark-
hams, sem er ástfangin af Jionum.
Skýrt hefur verið frá því, að Sir
Harvey fullyrðir við þá Markham og
Middlesworth, að hann þekki Lesley
og að hún sé sami kvenmaðurinn
er drepið hafi þrjá menn á eitri,
án þess að hægt hafi verið að
sanna sekt hennar. Hún kemur
heim til Markhams sama kvöldið.
Þau eru að tala saman.
„Og heldurðu að þeir fari með
þetta í blöðin? Verður nafnið
mitt birt?“
„Það getur verið, Lesley —
er þér eitthvað sérstaklega illa
við það?“
„Nei, nei. Það bara spillir
hátíðblænum á trúlofun okkar“,
„Þú átt við — kvöldið á morg-
un, hina sameiginlegu ktöld-
máltíð okkar?“
„Já, ekki sízt“.
„Eg vil ekki fyrir nokkurn
mun missa af því“.
„Mig langar til að þá verði
allt í lagi. Eg þarf nefnilega
að segja þér dálítið áríðandi, og
ég er að hugsa um að segja þér
frá því annað kvöld þegar við
verðum tvö ein heima“.
Hún hafði varla sleppt síð-
asta orðinu, þegav barið var
harkalega á útidyrnar. Dick var
fegin trufluninni, flýtti sér til
dyra og horfði undrandi á-
komumann.
Lord Ashe var á sextugs aldri,.
meðalmaður á hæð, þrekvax-
inn með stálgrá augu, fræði-
mannslegan svip og fölleitur.
Hann sást sjaldan úti við. Álit-
ið var að hann væri að semja
sögu ættar sinnar. Hann var
alltaf fremur tötralegur til fara,.
sem ekki var óeðlilegt, ef tekið
var tillit til þes^, hversu háa
skatta hann þurfti að greiða,
Hann gat verið skemmtilegur í.
HEIMILISRITIÐ
511