Heimilisritið - 01.09.1945, Page 58

Heimilisritið - 01.09.1945, Page 58
og opnaði hann. Svo klóraði hann sig yfir gluggakistuna og lét sig falla niður á glerbrotin á gólfinu. Hin sterka lykt ætlaði í fyrstu næstum að kæfa hann. Með erfiðismunum komst hann að manninum í stólnum og snerti 'hann. Dick þekkti óð- ara að þetta yar Sir Harvey Gilman og hann vissi jafnframt að hann hafði ekki verið dauð- ur nema í örfáar mínútur, því líkið var lítið farið að kólna. Dick varð litið til dyranna, sem vissu út að forstofunni. Hann gekk hröðum skrefum að dyrunum og skoðaði þær. Lyklinum hafði verið snúið í skránni að innanverðu. „Jæja“, sagði Dick upphátt við sjálfan sig, „hann sagði að það gæti alls ekki komið fyrir hann!“ SVO TÓK DICK eftir ein- hverju, sem lá á gólfinu við hliðina á hægindastólmun: lít- illi handdælu, eins og þær sem læknar nota er þeir dæla lyfj- um inn í æðar manna. Hún hafði dottið á gólfið, niður með stólnum og komið niður á odd- inn, eins og hún hefði fallið úr hendi mannsins, á meðan hann var á lífi. Á gólfdúknum, hinum megin við stólinn lá lítil krukka á 56 hliðinni og úr henni höfðu olt- ið nokkrir smáprjónar. Dick tók krukkuna og prjón- ana upp, ýtti einum þeirra laus- lega á fingurgóminn og hugs- aði með sér, að slíkur prjóim myndi hafa gert sama gagn og dælan, sem var miklu óhand- hægari. En hann hugsaði ekki frekar út í það. Allt í einu heyrði hann hávaða hjá glugg- anum. Cynthia hafði klöngrast inn um gluggan og komið nið- ur á fætuma, liðug eins og köttur. Það kvað hátt við þegar hún lenti á rúðubrotunum. „Farðu að símanum“, sagði hann, til þess að þurfa ekki að svara öllum þeim spumingum, sem hann vissi að hún vildi fá svarað. „Nei, bíddu annars“. Hann minntist þess, að sím- inn var í forstofunni. Hann opn- aði hinar tvílæstu dyr, gekk fram og lokaði á eftir sér. Hann hringdi til Middlesworth, og datt í hug um leið, að það hlyti að vera hryllilegt fyrir Cynthiu að bíða í næsta herbergi. Sím- inn hringdi lengi áður en ans- að var. Það var mjög syfjuleg kvenmannsrödd, sem kom f símann. „Afsakið að ég ónáða yður frú Middlesworth, en —“ „Læknirinn er ekki heima“r muldraði frúin, og reyndi að vera kurteis. „Hann er heima HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.