Heimilisritið - 01.09.1945, Blaðsíða 60
að vita, hvernig þessu trausta
og heiðvirða göfugmenni yrði
við, þegar hann heyrði söguna,
sem öllum í Six Ashes myndi
brátt berast til eyrna.
„Sir Harvey hefur framið
sjálfsmorð“.
„Nei, það ..— Lord Ashe
leit í kringum 'sig til þess
finna stað, til þess að leggja
klippumar á, en fann engan
sem honum líkaði — „það er
alveg ótrúlegt!“
„Já, en ég veit það“.
„Mér kemur annars í hug“,
tautaði Lord Ashe, „mér fannst
endilega ég heyra skothljóð í
nótt — eða var það í morgun?
Var það — ?“ Hann starði út í
loftið hugsandi á svip!
„Sir Harvey skaut sig ekki.
Harrn dældi prússneskri • eitur-
sýru inn í blóð sér. Við Cynth-
ia Drew komum að honum
dauðum fyrir hálftíma".
„Hann virtist vera í fullu
fjöri, þrátt fyrir þetta leiðin-
lega sl... “. Lord Ashe nudd-
aði ennið, með þeirri hendi,
sem hann hélt klippunum með.
„Getur það verið, að hann hafi
allt í einu fengið þunglyndis-
kast eða eitthvað hafi komið
fyrir hann? Eg hef sjaldan hitt
marm, sem mér hefur fundist
hafa jafnmikla — ja, hvað á
ég að segja — nautn af að lifa.
Hann minnti mig á mann, sem
var hér einu sinni að selja
bibliíur. En — héma — má
ég gerast svo djarfur að spyrja,
hvers vegna þér komið hing-
að?“
„Eg verð að ná tali af Midd-
lesworth lækni. Konan hans
sagði að hann hefði farið hing-
að“.
„Já, rétt, hann var héma. Ein
af vinnukonunum fékk veik-
indakast í nótt. En haxm er
farinn fyrir nokkra, kvaðst
þurfa að fara til Hastings".
„Hastings? Klukkan hálfsex
að morgni? Til hvers?“
Lord Ashe varð vandræðaleg-
ur.
„Þvi get ég ekki svarað, góði
minn. Middlesworth vildi ekk-
ert um það segja“.
LESLEY GRANT vaknaði
klukkan rúmlega átta um morg-
uninn.
Hver sá sem þá hefði séð
hana — en til allrar hamingju
eða óhamingju sá hana enginn
— hefði orðið meira en lítið
undrandi yfir því, hversu hreyf-
ingar hennar og fas var laumu-
legt. Hún steig varlega fram úr
rúminu, stiklaði á tánum yfir
gólfið, í hvítum silkináttkjól,
gekk að einu myndinni sem var
í herberginu og lyfti henni frá
veggnum.
Framh. í næsta hefti.
58
HEIMILISRITIÐ