Heimilisritið - 01.09.1945, Síða 61
Stjörnuspáin
Hvenær er fæðingardagur þinn? Ef
hann er á tímabilinu 23. sept.—22. okt.
(báðir dagar meðtaldir), þá ertu í heim-
inn borinn undir stjörnumerki vogar-
skálanna. Hér geturðu lesið, hvað
stjórnuspámennimir hafa að segja
þeim, sem fæðst hafa á þessum tíma
árs.
23. seplember
ÞÚ HEFUR hlotið ómetan-
lega náðargjöf, sem mun verða
þér að miklu liði í lífinu og
auðvelda þér að koma áhuga-
málum þínum fram. Þú átt
létt með að afla þér vinsælda
og auðvelt með að umgangast
samborgara þína. Það er alveg
sama á hvaða hillu þú lendir
í lífinu, þér mun vera það eig-
inlegt að ræða við kunnuga
jafnt sem ókunnuga og hafa
á'hrif á þá þér í vil. Þessir eig-
inleikar þínir munu ekki ein-
ungis hjálpa þér til að afla
þér margra vina og halda vin-
áttu þeirra, heldur einnig
hækka þig í metum sem kaup-
sýslumann eða í hverri þeirri
stöðu, sem oft krefst skjótra
úrræða og samningslipurðar. Af
þessum orsökum ættirðu að
geta verið tilvalin stjómari,
sem hefði fjölda undirmanna.
- 22. oklóber
Þegar þú hefur hug á því að
koma einhverju í framkvæmd,
ættirðu ekki að fara að ráðum.
þeirra vina þinna (hversu sem
þeir kunna að vilja þér yel),.
sem eggja þig á að nota yfir-
gang til þess að leiða málið
til lykta. Þú munt ná miklu
betri árangri með fortölum og
skynsamlegum rökum. Margir
þeir, sem hagga ekki skoðunum
sínum, þegar þeim er sýnd
frekja eða ofstopi, munu taka
tillit til röksemdaleiðslu þinn-
ar og verða á síðustu á sama
máli og þú. Þess vegna ertu til-
valinn til starfa eins og lög-
fræðistarfa, sölumennsku og‘
kennslu. Mundu bara að fara
eftir eðlisávísim þinni, þegar
erfiðleikar bera að höndum í
viðskiptum þínum við menn
sem kunna að vera í andstöðu
við þig. Ef þú reynir ekki að
HEIMILISRITIÐ
59‘