Heimilisritið - 01.01.1951, Síða 54
Sv: i. Hafðu það ávallt í huga, þcg-
ar þú ætlar að fara að naga neglumar,
hvað það er sóðalegt og óviðeigandi,
þá venst þú brátt af því.
2. Leifur, Leif, Leifi, Leifs.
3. Hún verður ágæt með æfingu.
RAUTT NEF
Sp.: Kæra Eva. Þegar ég kem úr hita
í kulda, verður nefð á mér eldrautt. Get
ég ekki gert eitthvað við þessu?
H. S.
Sv.: Einfaldasta ráðið við því er að
baða nefið upp úr heitu og köldu vatni
á víxl, nokkrum sinnum á hverju
kvöldi. Ef þú verður vör við að hár-
æðamar þola ekki þessi víxlböð, skaltu
samt hætta þeim þegar í stað. En hafi
æðar spmngið má ráða bót á því með
rafmagnsaðgerð.
FLASA — ÞURRT HÁR
Sp.: 1. Er nokkuð öniggt ráð við
flösu?
2. Hárið á mér hefur orðið svo þurrt
og strítt að undanförnu. Geturðu ráðlagt
mér eitthvað í því sambandi?
H. H.
Sv.: 1. Ég þekki ekkert ömggt ráð
við flösu, en í flestum tilfellum má
halda henni niðri með því að þvo hárið
og bursta það oft og reglulega, og nudda
hársvörðinn með góðum, styrkjandi hár-
vötnum. — Ef þú þværð hárið einu
sinni í viku, burstar það (til þess að
losa flösuna) og nuddar hársvörðinn
með naglabursta, þegar sápan er farin
að freyða vel, þá ættirðu ekki að þurfa
að kvíða mikilli flösu.
2. Reyndu að bera hárfeiti í það,
einkum áður en þú ferð út þurrviðri
og sól. Hellm nokkram dropum í lófa
þinn, nuddaðu hárburstanum yfir og
burstaðu svo hárið.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „Sillu": — Mjaðmafitan ætti að
minnka ef þú iðkar réttar leikfimiæfing-
ar. Reyndu t. d. þessa einföldu æfingu
á hverjum morgni eða oftar: Legðu
hendurnar á mjaðmirnar og beygðu þig
fram og afmr og til beggja hliða, þang-
að til þú ert farin að þreytast.
Til „Bósa": Jæja, karlinn, gerðu bara
það sem þig langar til. En „guð hjálpar
þeim, sem hjálpar sér sjálfur“, svo ég
held þú ættir að reyna að bjarga þér
sjálfur í þessum efnum, eins og allir
aðrir.
Til „Diddu": Auðvitað geturðu ekk-
ert gert í þessu máli. Áður en þú hleyp-
ir þér í annað svipað ævintýri — með
sama írafári — skaltu taka það með í
reikninginn, að sumir ungir sjómenn
láta sér ekki nægja „að eiga kæmstu í
hverri höfn“, heldur kœrustur. Auk þess
er mesta fásinni að þjóta burt af balli,
þótt „þinn sæti“ sé að dansa við ein-
hverja aðra. Afbrýðisemin ríður sjaldan
við einteyming!
Til „Simmu": — Smyrðu augnhárín
lítið eitt með feiti eða olíu, t. d. Iaxer-
olíu. Þau sýnast þá stærri og verða líka
með tímanum lengri. Örlítið krem á
augnalokin getur haft fegrandi áhrif,
þótt augnahárin verði að vísu ekki lengri
við það.
Til „Einnar með ástarj>rá": Já, þú átt
að láta hann afskiptalausan. Það er held-
ur ekki þessi eini karlmaður, sem þú
berð slíka þrá í brjósti til, heldur bara
einhver karlmaður, sem gæti verið yndi
þitt. Og viljinn dregur hálft hlass, svo
vonandi færðu þrá þína uppfyllta von
bráðar.
Eva Adams
52
HEIMILISRITIÐ