Heimilisritið - 01.02.1951, Blaðsíða 18
Madame de Pompadour fór
strax á fund drottningarinnar,
eftir að hún hafði kvatt kon-
unginn. Það var henni veruleg
eldraun. Allar hirðmeyjarnar
voru samankomnar í stórum,
spegilsettum sal, uppljómuðum
af skínandi kristals-kertum —
allar klæddar samskonar hirð-
búningum. Um leið og Madame
de Pompadour gekk inn í sal-
inn, heilsaði hún með hnébeyg-
ingu; hún heilsaði öðru sinni
með hnébeygingu, þegar hún
var um það bil í miðjum saln-
um; og þeirri þriðju, þegar hún
var komin upp að hásæti drottn-
ingarinnar. Svo beygði hún sig
niður eftir þeirrar tíðar sið-
venju, eins og til að taka
fald drottningarinnar og kyssa.
Drottningin veifaði lítillega
viftu sinni til merkis um að
henni væri heimilt að sleppa
þessum þætti viðhafnarinnar,
eins og vani hennar var undir
slíkum kringumstæðum. Síðan
var venja að drottningin yrti á
viðkomandi. Allir höfðu búizt
við að hún myndi verða kulda-
leg í viðmóti og stutt í spuna
við þetta tækifæri, en drottn-
ingin var mjög viðmótsþýð og
áfram um að geðjast eigin-
manni sínum, konunginum, í
hvívetna. Þess vegna var hún
blíðleg við Madame Pompadour
og spurði hana um fjarskyldan
ættingja, aðalsfrú nokkra, sem
hún þekkti. Madame de Popma-
dour varð gagntekin og gat að-
eins stunið upp: „Ég hef ein-
læga löngun til að þóknast yð-
ur, Madame.“ Síðan kvaddi hún
drottninguna og fór.
Með þessu hóf Madame de
Pompadour 19 ára feril sinn
sem „Vinstrihandardrottning“.
Eyðslusemi hennar og óhóf var
ægilegt. Og það var óhófsemi,
sem aðeins sérstaklega fjölhæf
og dugleg kona hefði komizt
upp með, jafnvel við hirð Lúð-
víks XV. Madame Pompadour,
sem lengi hafði gegnt forustu-
hlutverki á sviði tízkunnar,
gerðist ekki ómerkur verndari
lista og bókmennta. T. d. var
Voltaire einn af hinum mörgu
andans áhrifamönnum, sem um-
gengust hana mikið. Einnig tók
hún virkan þátt í að móta
franska utanríkispólitík, og
stjórnmál landsins yfirleitt,
enda yar það raunverulega hún,
sem stjórnaði Frakklandi um
miðbik æviára Lúðvíks XV.
Jeanne Antoinette Poisson,
sem beinlínis hafði verið alin
upp með það fyrir augum að
verða ástmey Frakklandskon-
ungs, dó 42 ára gömul, södd
lífdaga og á hátindi frægðar
sinnar.
EXDIR
16
HEIMILISRITIÐ