Heimilisritið - 01.02.1951, Page 47
Ur einu í annað
Ung stúlka sagði skilið við unmista
sinn vegna drykkjnskapar hans og ræf-
ildóms. I hefndarskyni hótaði hann að
sýna öllum bréf þan, sem htln hafði
skrifað honum.
,,Það máttu gjarnansagði hún. ,,Eg
hef ekkert að skammast mín fyrir —
nema utanáskriftina “
#’
Maðurinn notar öll brögð til að kom-
ast hjá þeirri erfiðu vinnu, að hugsa.
Edison.
#
— Það er voðalegur slagi t húsinu.
— Það er von. Eigandinn er veit-
ingajjjónn og byggði húsið fyrir eintóma
drykkjupeninga.
#
Ef gasleiðslur leka, má gera við þær
til bráðabngða mcð því að vefja cin-
angrunarbandi urn þann stað, senr ó-
traustur er.
#
Dómarinn (strangurý: Svo vil ég
spyrja vitnið, hvort ákœrði sé vanur að
söngla, fiegar hann er einsamall.
Vitnið: Það veit ég ftvi miður ekki.
Eg hef aldrei verið með honum, þegar
hann er einsamall.
*
Við höfum búið til heim, þar sem
tæpast nokkur maður þorir að hreyfa
sig á eigin ábyrgð. — Sir Ernest Benn.
#
— fæja, svo að þér óskið eftir að
kvanast dóttur minni. Hvernig eru
framtíðarhorfur yðar?
— Alveg prýðilegar — ef þér eyði-
leggið þær ekki!
#
Vaxblettum má ná úr húsgagnaá-
klæði með því að Iáta ffngcrðan sand
í lítinn bréfpoka, hita hann og nudda
blettinn síðan með honum.
#
— Svo að afbrýðisemi mannsins þíns
er þá ástæðulaus.
— Já, algerlega! Hann grnnar allt
annan en þann rétta.
#
Litlar sorgir lala, stórar ekki.
(Málsháttur).
#
Sölumaðurinn: Ég hngsa að ég sé
ekki með neitt i dag, sem þér hafið á-
huga á að kaupa. Það er svo að segja
ekki neitt, sem er nokkurs virði. En ef
þér cndilega viljið fá það, þá er ekki
nema velkomið að opna töskuna, ef ég
hef ekki gleymt lyklinum að segja.
*
Gulir eða brúnir skór braggast mik-
ið ef þeir eru burstaðir upp úr 6 matsk.
af undanrennu og 2 matsk. af terpen-
tínu blönduðu saman. Þcgar þeir eru
orðnir þurrir skal bera á þá gulan eða
brúnan skóáburð og þcir síðan fægð-
ir með ullartusku.
#
— Hvað notarðu við kvefi?
— Sex vasaklúta á dag.
*
Stærsti demant í heimi er Kohinoor-
steinninn, sem er 102^/2 karat að þyngd
og er virtur á hálfa miljón sterlings-
punda. Hann var upphaflega 800 karat
en fyrir klaufaskap demantskurðar-
manns brotnaði hann niður í 279 karat.
Árið 185 2 var hann skorinn á ný og
vegur nú io2ý4 karat.
HEIMILISRITIÐ
45