Heimilisritið - 01.07.1952, Page 13
Tilburðirnir koma upp um
Grein þessi er eftir WILLIAM B. ZIFF
og er stytt úr ameríska tímaritinu „Your Life“
FYRIR NOKKRUM árum
kom til mín útgefandi til að ræða
um bók um skaphafnargreiningu.
Ég skýrði honum frá, að fólk
kemur oft upp um eðli sitt og
afstöðu með óvitandi bendingum,
þó það haldi sjálft að það gangi
með ógegnsæja grímu.
,,Nújæja,“ sagði hann, „segið
mér þá, hvað ég hugsa núna.“
Hann sat og hallaði sér aftur
á bak í sófa og spennti greipar
um annað hnéð. Tilburðir hans
sögðu mér, að hann tæki sjónar-
miði mínu með varúð og efasemd-
um, þó að kurteisleg þögn hans
hefði getað skoðazt sem sam-
þykki. Þetta sagði ég honum, og
hann viðurkenndi, að ég hefði
rétt fyrir mér.
Er ég hélt fyrirlestur um skap-
gerðargreiningu, komst ég ekki
hjá að taka eftir háum, hraust-
legum manni meðal áheyrend-
anna. Hann sat á brúninni á
bekknum, laut áfram og studdi
höndunum á hnén. Hvers vegna
sat hann svona mikið spenntari
en aðrir ? £g hætti á að ég vissi
ástæðuna og sagði, að meðal á-
heyrendanna væri maður, sem
hefði hagnýta reýnslu í efni því,
sem ég talaði um, og sá hinn
sami væri sammála þeim niður-
JÚLÍ, 1952
11