Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 39

Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 39
ÞETTA var sem sagt byrjunin . . . framhaldið sá Farwot Ritley um. Hann veitti fyrst glæsilegan kvöldverð til heiðurs Marina Murina, því næst dansleik, sherryboÖ og nokkra hádegis- verði. Þau syntu saman á hverj- um degi og skrautbíll Ritleys stóð henni ætíð til boöa. Jeff horfði á þetta allt örviln- aður í hjarta. En hann var heiÖ- arlegur maður, svo hann lét ekki einkatilfinningar ráða gerÖum sínum, og hélt áfram. Dag einn hafði hann komiÖ sér fyrir niðri í fjörunni hæfilega nærri litlum, digrum manni. ,,En hvað hún er töfrandi!“ sagði Jeff og horfði út á sjóinn, þar sem Marina synti með löng- um, fallegum sundtökum. Hann sagði þetta svo hátt, að litli maS- urinn heyrði það. ,,Fremur snotur,“ svaraði hann. ,,SegiS ekki, að þér sjáiS ekki, aS hún er nokkuð fram yfir það venjulega,“ sagði Jeff brosandi. ,,Það undrar mig hreint ekki, að ég sá yður fylgja henni með aug- unum áðan, þegar hún stakk sér út af brettinu. Ef þér hafið ekki auga fyrir kvenlegri fegurð, hver ætti þá að hafa það ?“ ,,Hver haldið þér eiginlega, aS / * *v « • eg se ? „Þér skylduð víst ekki vera Jakobs kvikmyndastjóri,“ sagði Jeff og hló. ,,Ekki opinberlega,” sagði hann. ,,£g er í fríi, og ég vil helzt vera hér óþekktur. Nafn yð- ar, ungi maður ?“ ,,Jeff Taylor. . . .“ ,,Sælir. Þér gætuð gert mér þann greiða, að segja engum hver ég er ... ég vil helzt vera í friði. ,,Það er nú víst bara nokkuÖ, sem þér reynið að telja mér trú um,“ sagði Jeff. ,,Þér eruð að reyna að ná í Marina Murina.“ „Marina . . .“ ,,Já, sem syndir þarna. En lát- ið yður ekki til hugar koma, að þér fáið hana til að láta yÖur filma sig. Hún hefur gert það nokkrum sinnum, en svarið að gera það aldrei framar. Nú vill hún ekki koma fram annars stað- ar en á leiksviðinu. Og þaðan fáið þér hana ekki einu sinni!“ ,,0 — þaS er nú ekki séð !“ sagði Jacobs móSgaÖur. ,,Hafi ég einsett mér eitthvað, tekst líka aS koma því fram.“ , ,Ekki ef þér hafið hugsað yð- ur að ráða Marina Murina í kvik- myndaleik.“ ,,Við sjáum nú til meS þaS!“ ,,Ég vil gjarnan hjálpa yður á einhvern hátt, ef ég get,“ sagði Jeff sakleysislega. ,,Ég hefði líka gaman af að lægja þrjózkuna í JÚLÍ, 1952 37

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.