Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 49
r
Hvað dreymdi þig
í nótt?
Ýtarlegar draumaráðningar
PENINGAR. — Að dreyma gulljpeninga boðar mótlæti og fals, silfurpen-
inga þunglyndi, koparpeninga peningatap, en peningascðlar eru fyrir
óvæntri auðlcgð, einkum ef þeir eru velktir. Týna peningum: hcppni
í ástamálum. Telja penmga: barnalán og ágóði. Sjá peninga en ekki
fá þá né snerta: verða fyrir svikum. Gcfa peninga: nukið og óvænt
happ. Eyða penmgum: Tjón. Finna pcninga: Snögg breyting af
völdunr starfs cða hjúskapar.
PENINGAPYNGJA. — Ef þig dreymir að þó finnir peningavcski eða
buddu, fulla af peningum, táknar það hamingju, einkum í ástunr.
Að týna henni merkir hinsvegar veikindi, eða skaða í sambandi við
ástvini þína. Dreymi þig að þú eigir mikið af peningum í veski þínu,
merkir það áhyggjur og andblástur eða fátækt. Sé veskið tónrt cr
draumurinn gæfumerki.
PENINGASKÁPUR. — Dreynri þig peningaskáp og álítir að þú cigir
verðmæti í honum, skaltu vera á varðbergi, einkum varðandi rauð-
hærðan mann cða konu í sanrbandi við peninga eða vcrðbréf.
PENINGSHÚS. — Sjá Gripahús.
PENNI. — Góður penni í draunri táknar góðar fréttir, en sé hann vondur
máttu búast við slæmum fréttum.
PERA. — Að dreyma þennan ávöxt merkir, að þú munt fá betri stöðu
innan skamms, og líf þitt mun fá meira gildi en áður, einkum ef
þig dreymir grænar pcrur. Séu perurnar fullþroskaðar drcgur það
dálítið úr.
PERLA táknar oft erfiðleika og fjárskort.. Ef þig dreymir perlur skaltu
vantreysta þeim sem þú umgengst, því að ólán þitt mun stafa frá
þeim. Finna perlur: svik. Fá perlur að gjöf: sorg. Að bera perlur í
draumi segja sumir að sé fyrir bónorði. Margir telja líka drauma
um perlur vcra fyrir því, að þú munt af cigin rammleik komast áfrarn
í lífinu. (Sjá Skartgripur, Demantar o. fl.)
\________________________________________________________1
JÚLÍ, 1952
47