Heimilisritið - 01.07.1952, Page 54

Heimilisritið - 01.07.1952, Page 54
Ijóskerin vörpuðu daufum bjarma á göturnar. — LeiS mín lá yfir löngu brúna, sem þá virtist mannlaus. En þegar ég kom út á brúna miðja, sá ég hvar stúlka gekk á undan mér. Hún nam staÖar og leit í kringum sig, en hefur víst ekki greint mig frá brúarstólp- anum, þar. eð ég bar við hann. Mér til mikillar undrunar sá ég, að hún lyfti öðrum fætinum og tyllti honum á brúarhandriÖiÖ. Eg varð gagntekinn skelfingu og leit niður á svart og niðandi fljótiS. GuS minn góður, stúlkan ætlar að fyrirfara sér ! Eg tók undir mig stökk, hljóp til hennar og dró hana frá hand- riÖinu. Eg var svo heppinn að einmitt í sömu svifum kom bíll, sem staðnæmdist eftir bendingu minni og ók okkur heim til mín. Þegar upp í leiguherbergi mitt kom, lagaði ég kaffi handa okkur og smurÖi brauð, sem við borð- uðum með beztu lyst. Ég sá, mér til mikillar ánægju, að stúlkan var fríð og bauð af sér góðan þokka. Þetta voru fyrstu kynni okkar. AS þremur mánuðum liðnum opinberuðum við og giftum okk- ur stuttu síðar.“ Brown fyllir aftur í glösin og þeir skála. Svo tekur hann aftur til máls: ,,En nú kemur það einkenni- legasta í frásögn minni. — Eg forðaðist lengi vel að minnast á fyrsta kvöldið okkar við hana. Eg vildi ekki vekja upp daprar minningar hjá henni. En þegar við vorum í brúðkaupsför okkar í Vínarborg og gengum yfir eina af Dónárbrúnum, barst tal okkar ósjálfrátt að brúnni heima. Þá spurði ég hana, hvers vegna hún hafði ætlað að fyrirfara sér kvöld- ið forÖum. Hún svaraði mér á þessa leiÖ: ,,Eg ætlaði alls ekki að fyrir- fara mér, heldur aðeins að smella spennunni á skónum mínum. Mér brá, þegar þú dróst mig frá hand- riÖinu og inn í bílinn, elskan mín. Eg gat aldrei komið mér að því að segja þér sannleikann í málinu, en nú er ég fegin að því er lokiÖ. Geturðu fyrirgefiS mér ?“ Eg fyrirgaf henni af öllu hjarta og var fegin því, aS það var bara skórinn, sem hún hafði veriÖ að hugsa um, en ekki sjálfsmorð eins og ég hafði haldiÖ.“ * ★ Skrítlur — Hvað gera Skotarnir við notnð rakvélablöð? — Raka sig með þeim. * A.UGLÝ$ING: Stúlka óskast í vist í vetur, verður að jera siðlát, aðeins til páska. 52 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.