Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 61

Heimilisritið - 01.07.1952, Síða 61
inn vegginn í bókaherberginu, þar sem hann hafði komið inn, og hann hafði einnig skilið eftir einhvern neista af lífi í Paul Jones, sem hann hafði skilið við á kjallaragólfinu, að því er hann hélt, dauðan. Þessi neisti af lífi hafði glæðzt og gert Paul kleift að skríða upp kjallarastigann, og nú stóð hann hörkulegur á svip í leynidyrunum og athugaði kringumstæðurnar. Þegar hann sá að Annabelle var án nokk- urrar verndar í höndum vitfirr- ingsins, og að vörðurinn miðaði með byssu, missti hann alla stjórn á sér af reiði. Hann hefði ráðizt á tuttugu menn samtímis. Hann gerði sér ekki grein fyrir því, með hvorum vörðurinn yrði, eða í hvernig aðstöðu hann var. Honum fannst þeir báðir ógna Annabelle. Með reiðiöskri réðst hann á skrímshð. „Þú þarna, hjálpaðu mér, vörður“, kallaði hann um leið og han hóf árásina. An þess að hika eitt augna- bh’k, snerist vörðurinn á hæli og þaut aftur upp stigann. Bardaginn var nú jafnari. Paul vissi nú betur, hvernig andstæðingur hans barðist og hvað hann myndi reyna að gera. Hvað sem öðru leið, varð hann nú að verja hálsinn. Hann ætl- aði sér að halda andstæðingnum í armlengd frá sér og koma högg- um á viðkvæma staði. Hinn reyndi Iiins vegar eins og áður að ná glímutökum á Paul. Þeg- ar það tókst ekki strax, fór liann líka að nota hnefana. Þeir fóru margar umferðir um herbergið og ruddu um stólum og borðum. Það háði skrímslismanninum, að' liann var í þykkum yfirfrakka og Paul notaði sér það til hins ýtrasta. Allt í einu skeði nokk- uð merkilegt. Paul hafði verið að reyna að koma vinstrihand- arhöggi á kjálka andstæðingsins, en eitt af höggum hans lenti of- arlega á hægri kinn hans. Högg- ið sló augað úr honum, svo það datt á gólfið. Paul varð svo hissa að hann gleymdi að verja sig og leit al- veg af andstæðingnum. Ein- eygða villidýrið, sem virtist sjá betur með einu auga en tveim- ur, notaði sér hikið. Með hægri handar sveiflu upp á við, alveg neðan af gólfi, kom hann höggi á höfuð Pauls. Ef það hefði lent á kjálkanum, hefði Paul verið úr sögunni, að minnsta kosti í heila viku. Höggið hafði næst- um kastað honum niður í stig- ann í leynigöngunum. Annabelle hafði raknað svo við, að hún var farin að fylgjast með bardagan- um, en þar sem hún gat enga hjálp veitt, rak hún upp hljóð, JÚLÍ, 1952 59

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.