Heimilisritið - 01.01.1955, Síða 24
rödduð. „Það getur ekki verið al-
vara yðar. — Ég — ég hef í
engan stað að venda. Hvað á ég
að gera?“
Hún var svo örvilnuð og hjálp-
arvana að hann komst við.
„En eigið þér enga ættingja í
móðurætt?" spurði hann. „Get-
ur enginn þeirra tekið við yð-
ur?“
„Mamma átti bara eina syst-
ur, og hún hefur alltaf átt heima
á Indlandi," svaraði Linda. „Ég
hef aldrei séð hana, en hún er
eini náni ættinginn, sem ég á.“
„Það er sannarlega leitt, og við
getum aðeins vonað, að allt fari
á betri veg en útlit er fyrir,“
sagði lögfræðingurinn. „Að
minnsta kosti er tilgangslítið að
ræða þetta frekar, fyrr en við
höfum talað við erfingjann.
Hann er höfuð ættarinnar núna,
og það er mjög sennilegt, að
hann hafi einhverja nothæfa til-
lögu fram að bera. Ég kem aft-
ur eftir einn eða tvo daga, og
þá verð ég vonandi búinn að
hafa tal af honum.“
Hánn stóð upp, kvaddi hana
hæversklega og fór.
Lindu fannst dagurinn lengi
að líða, og það kvaldi hana hvað
margir komu til þess að votta
henni hluttekningu. Frú Carn-
forth spurði, hvort hún vildi
ekki koma og búa í Camforth
House, en Linda afþakkaði það.
Þegar hún var loksins orðin ein,
gekk hún hvíldarlaust um gólf
í stofunum og reyndi að venjast
tilhugsuninni um að hún þyrfti
von bráðar að flytja burt af
æskuheimilinu sínu.
Hún átti erfitt með að skilja,
að hún væri skyndilega orðin fá-
tæk, heimilislaus og einmana.
(Framhald)
Lausn á Dægradvöl á bls. 40
Þrír innfœddir
Það er auðvelt. Setjum svo, að nr. 3
segi satt. Þá hlýtur nr. 2 að vera lygari,
og nr. 1 hlaut að hafa sagt: „Eg er kyn-
blendingur". En kynblendingur hefði
ekki sagt satt . . . svo nr. 3 getur ekki
hafa sagt satt. Eina lausnin er því sú,
að nr. 3 sé lygarinn og þar með kyn-
blendingur.
Reyknum að bráð
121 vindill, og sonurinn reykti 66.
T eningarnir
Það er hægt að búa til 10 mismun-
andi teninga. 1. sex bláa fleti. 2. fimm
bláa fleti. 3. fjóra bláa fleti með rauðu
fletina andspænis hvor öðrum. 4. fjóra
bláa fleti með þá rauðu við hlið hvors
annars. 5. þrjá bláa fleti, þar af tvo and-
spænis hvor öðrum. 6. þrjá bláa fleti,
sem allir mætast í einu horni. 7—10 al-
veg eins og 1—4 nema rautt kemur í
staðinn fyrir blátt.
Smápeningar
Kr. 8,70.
22
HEIMILISRITIÐ