Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 6

Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 6
ÞAÐ ERU gerðar ótrúlega háar siðferðiskröíur til ungs læknis, og það er tæpast neitt, sem hann gerir, sem ekki veldur hneikslun. Hann má ekki fara út með tveimur stúlkum sama mánuð- inn, því að annars er slúðrað um það, að „hann sé á eftir öllum ungum stúlkum í borginni." Hann má heldur ekki láta sjá sig mjög oft á veitingastöðum bæjarins, því að þá er undir eins sagt að hann drekki eins og svampur, þó að hann hafi ekki fengið sér nema eitt ölglas. Hann má ekki ganga almenn- ingsgarðinn með ungri stúlku fyrr en þau eru búin að setja upp hringana, því að öðrum kosti myndu allir kalla hann hrein- asta kvennabósa. Þegar læknir giftir sig, velur hann næstum alltaf konu, sem hæfir stöðu hans í þjóðfélaginu. Það er varla hægt að segja að þetta sé „rómantískt", en það er staðreynd, að flestir rmgir læknar myndu ekki láta sér til hugar koma að giftast ungri stúlku, sem hefur ekki áhuga á öðru en skemmtanalífinu og vill helzt fara út að skemmta sér á hverju kvöldi. Eðlisávísun hans segir honum, ctð hann verður að kjósa sér unga stúlku með heilbrigða skynsemi og skapgerð. Hann verður að velja sér stúlku, sem ekki verður óð og uppvæg þótt hringt sé um miðja nótt og sagt að læknirinn verði að koma til sjúklings, sem sé að deyja — jafnvel þó að í ljós komi, að sjúkdómstilfellið sé í rauninni hreint ekki svo alvar- legt. Hann verður að velja sér konuu, sem er hæf til þess að vera eiginkona læknis. Það er ófrávíkjanleg krafa vegna stöðu hans. f smábæ lendir ungur læknir oft í einstökum vandræðum, þeg- ar hann verður ástfanginn. Ef hann er eini læknirinn í bænum, hlýtur sú stúlka, sem hann fellir hug til, einnig að vera einn af sjúklingum hans. Og þá verður hann að vera alveg einstaklega varkár. Áður en hann lætur sér detta í hug að fara á fjörumar við hana, verður hann að vera viss um það fyrirfram, að hún endur- gjaldi tilfinningar hans. Hann má ekki gera sér von um að vinna ástir hennar með því að biðla sterkt og lengi til hennar. Sá læknir, sem reyndi að ná ástum ungrar stúlku, sem hvorki vill sjá hann eða heyra, er nálægt því að ramba á barmi glötunar. Jafnvel þó að hann njóti trausts og trúnaðar kvensjúklings, er læknirinn samt sem áður á mjög hálum ís. Það getur hver og einn 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.