Heimilisritið - 01.08.1956, Blaðsíða 61
„Og enginn kom inn allan þann
tíma, sem þér voruð á skrifstofu-
unni?"
„Enginn. Við vorum ein. Ja,
ungfrú Heath kom að vísu til þess
að segja Thegn frá því, að sjúkl-
ingurinn biði á skurðarborðinu.
Hvers vegna eruð þér að spyrja
svona í þaula?"
Caroline Broderick leit á hann,
æst í skapi, og allt í einu rann
npp fyrir henni ljós og hún leit
reiðilega til Ronu. „Nú skil ég,
hvað þér eruð að reyna að
sanna. Ungfrú Heath hefur sagt
yður frá því, að við Thegn vorum
að rífast. Yður — yður grunar,
að ég hafi myrt bróður minn •—
minn eigin bróður. Þetta er hlá-
legt." Hún sveiflaði handleggnum
í áttina að manni sínum. „George,
þetta er til háborinar skammar."
Dr. Broderick var ókyrr í sæti
sínu, en sagði ekki orð.
„Um hvað deilduð þið, bróðir
yðar og þér, frú Broderick?"
spurði Jim.
Hún hikaði andartak áður en
hún svaraði. Ronu fannst sem
óttaglampa brygði fyrir í augna-
ráði hennar, og þegar Caroline
svaraði, komu orðin eitt og eitt á
stangli. „Við ræddum um gjöfina,
sem ég ætlaði að gefa sjúkrahsú-
inu. Maðurinn minn hefur sagt
yður frá henni og um þessar
heimskulegu mótbárur bróðurs
míns."
„Er það nú öruggt, að þið haf-
ið ekki talað um neitt annað, frú
Broderick? Eg vil leyfa mér að
benda yður á það, að tvö vitni
hafa borið það, að hafa heyrt yð-
ur nota orðið íjárkúgun."
„Fjárkúgun!" Caroline vætti
purpurarauðar varir sínar með
tungunni. „Það getur verið, að ég
hafi notað þetta orð, ég man það
ekki," Hún flýtti sér að bæta við.
„A sinn hátt er það fjárkúgun,
þegar læknar tæla peninga út úr
ríkum kvenmanni í þessi sjúkra-
hús sín. Það er alls ekki svo
auðvelt að neita slíku. Þeir setja
manni stólinn fyrir dymar, — já,
það gera þeir." Hún kinkaði kolli
til áherzlu rétt eins og henni
hefði hlotnazt góð röksemda-
færsla með þessu. „Þetta er mín
skoðun. Á sinn hátt hefur þetta fé
verið kúgað út úr mér."
,,Og það sögðuð þér bróður yð-
ar?"
„Já, svo sannarlega."
„Var það þá eina ástæðan fyrir
neitun hans, að peningarnir komu
frá Clint-félaginu?"
„Já, það er rétt. Það var hið
eina, sem hann hafði út á þetta
að setja."
Jim ákvað að þreifa fyrir sér
í blindni. „Frú Broderick, viljið þér
ÁGÚST. 1956
59