Heimilisritið - 01.08.1956, Blaðsíða 15
rakalcrust og neikvætt, og það
særir hann mest.
Eg hef aldrei heyrt Kurt gagn-
rýna nokkum eða nokkuð ón þess
að hcrfa vandlega krufið málið til
mergjar, og því finnst honum, að
hin vanhugsaða gagnrýni sé lít-
ilmannleg og lendi að ósekju á
mér, fjölskyldu hans og vinum,
og það þykir honum leitt.
KURT VINNUR hvem dag frá
klukkan 8—16, og þar sem hann
þarf að æfa sig minnst hálfa aðra
klukkustund á dag, er augljóst að
hann hefur ekki mikin tíma af-
gangs til heimilislífsins. Heimili
okkar, vinnustaður hans og fé-
lagsheimilið hans em í þríhym-
ingi, og það em tólf kílómetrar á
milli hornanna í þeim þríhymingi.
Það tekur því langan tíma fyrir
hann að komast á milli þessara
staða. Af þessum ástæðum hefur
ókkur bæði langað til þess að
eignast bíl til þess að leysa þetta
samgönguvandamál, eða þá að
fá íbúð nær bænum, svo að vand-
inn leysist á þann hátt. Þetta
hljómar ef til vill undarlega þeg-
ar maður veit, hvað Kurt ferðast
mikið og hvað hann er mikið er-
lendis, en sannleikurinn er sá, að
Kurt er mikið fyrir að vera heima.
Honum líður hvergi betur en
heima í dagstofunni okkar, ann-
að hvort þegar við emm ein
heima, eða einhverjir vinir koma
í heimsókn. Kurt kærir sig ekki
um stórar veizlur, og hann kann
ekki sérlega vel við sig í þessum
sífelldu móttökuathöfnum og
veizlum, sem haldnar eru í sam-
bandi við öll tennismót. Hann vill
miklu fremur vera heima hjá sér
í hópi vina. Vináttan hefur alltaf
verið honum mikilvæg, og við eig-
um fáa, en góða vini.
Ég veit ekki hvað það væri, sem
Kurt vildi ekki gera fyrir vini sína
ef þeir lentu í vandræðum.
KURT HEFUR mörg áhugamál,
sem hann sinnir kappsamlega
bæði heima og á ferðalögum sín-
um. Eitt mesta áhugamál hans er
jazz-músík og á ferðum sínum er-
lendis hefur hann fengið tækifæri
til þess að koma sér upp tiltölu-
lega stóru safni af grammófón-
plötum, og einnig að hlusta á
plötur.
Þegar Kurt er gagnrýndur í
blöðunum, er það næstum alltaf
vegna framkomu hasn, og ég vtl
í því sambandi slá því föstu, að
ekkert er fjarstæðukenndara en
að halda því fram, að hcmn hafi
slæma framkomu. Áður en ég
nefni nokkur dæmi, vil ég minn-
ast á atburð, sem gerðist á með-
an á mótinu stóð í Orange í New
Jersey fyrir nokkrum vikum. Mér
hafði verið boðið að ferðast með
ÁGIJST. 1956
%
13