Heimilisritið - 01.08.1956, Blaðsíða 59
DAUÐINN A
SJÚKRAHÚSINU
Stutt, spennandi framhaldssaga
eftir PATRICK QUENTIN,
,,Að sjálfsögðu. Það hefði vald-
ið mörgum vonbrigðum." Það var
greinilegt, að þessi spuming hafði
sært dr. Broderick. „En það var
ekki ætlun konu minnar, að gefa
þessa peninga til okkar eigin
nota. Þeir áttu einungis að notast
í þágu sjúkrahússins."
,,En dr. Krudsen var andvígur
gjöfinni," sagði Jim. „Það má með
sanni segja, að hann hafi staðið
á milli nokkurra manna og mik-
illa fjármuna, er það ekki rétt?
Við skulum taka Lord sem dæmi.
Hann starfaði í deild dr. Knud-
sens og vissi, að yfirlæknirinn
hafði í hyggju að gera sitt ýtrasta
til þess að koma í veg fyrir, að
hann fengi þennan styrk. Það er
ekki sennilegt, að slíkt hafi skap-
að neitt vinarþel hjá honum í gahð
yfirlæknisins, eða finnst yður
það?"
Rona kreppti hnefana og beið
eftir svari forstjórans.
„Ég geri ráð fyrir, að afstaða
dr. Knudsens hafi skapað jafn
mikla andúð hjá Lord í garð
yfirlæknisins og hjá okkur hin-
um," svaraði forstjórinn kulda-
lega. „En ég get bætt því við, að
sjúkrahússstjórnin vissi mætavel
um skoðanir mágs míns á pen-
ingamálum. Með tilliti til þess, að
hann var einn um þessa afstöðu
í stjórninni, hefði honum aldrei
tekizt að fá hina ellefu meðlimi
stjórnarinnar til þess að fallast á
sín sjónarmið."
„Þér eigið þá við, að dr. Knud-
ÁGÚST. 1956
57