Heimilisritið - 01.08.1956, Blaðsíða 56
ára að aldri hafði hún gifst
verzlunarmanninum John Sal-
mons. Nokkrum árum seinna
höfðu þau sk.ilið, Síðar flutti Elsie
til Mount Airy, lítillar borgar í
Norður-Karólínu og þar fékk hún
atvinnu sem aðstoðarstúlka H. R.
Hege læknis, eins af tannlæknum
borgarinnar. Fyrir einu ári hafði
hún hitt verzlunarmanninn Curry
Thomas hjá William bróður sín-
um í Cape Charles. Það varð ást
við fyrstu sýn. Hálfu ári seinna,
31. maí, sagði Elsie upp stöðu
sinni hjá Hege lækni og 11. júní
giftist hún Thomas.
Leynilögreglumönnunum þótti
það ekki ósennilegt að Salmons,
fyrri maður Elsie Thomas, stæði
bak við tilræðið. Það kom þó
brátt í ljós, að hann hafði hvorki
tilefni né tækifæri til þess að
fremja hinn svívirðilega glæp.
Síðan fundust fimm menn í við-
bót, sem beðið höfðu hinnar
fögru Elsie, en frá upphafi komu
fjórir þeirra alls ekki til' greina.
Eftir var aðeins einn — tannlækn-
irinn.
Leynilögreglumönnunum tókst
að komast á snoðir um að Hege
læknir hafði skrifað brennandi
ástarbréf til aðstoðarstúlku sinn-
ar, þegar hún var í heimsókn hjá
bróður sínum um jólin. Hún hafði
fengið margar verðmætar gjafir
frá honum og það fréttist einnig,
að hann hafði verið algjörlega
örvinglaður út af því, að hún
hafði trúlofað sig.
EINN leynilögreglumannanna,
Sentman að nafni, fór til Mount
Airy. til þess að yfirheyra tann-
lækninn. Hege læknir var há-
vaxinn ag grannur maður með
sérstaklegt amerískt útlit. Hann
játaði fúslega, að hann hefði
verið hrifinn af sinni fögru að-
stoðarstúlku, en að sjálfsögðu
hefði hann ekki haft neina ástæðu
til þess að sitja um líf hennar.
,,Eg skil," sagðii Sentman. ,,Það
er líka aðeins fyrir siðasakir að
ég spyr yður, hvað þér höfðuð
fyrir stafni 21 og 22 júlí."
,,Þann 21. fór ég að heiman
frá mér með vini mínum Banner
klukkan sex um morguninn,"
mælti tannlæknirinn. ,,Við höfðum
ráðgert að fara í tveggja daga
veiðiför."
„Komuð þið í nágrenni Rich-
mond?"
,,Nei. Við ókum yfir Hillsville
og milli klukkan 3 og 4 síðdegis
komum við að veiðimannakofa
Bill Farmers. Þar gistum við, og
snemma næsta morgun fórum við
að veiða. Klukkan ellefu um
kvöldið vorum við komnir aftur
til Mount Airy."
54
HEIMILISRITIÐ