Heimilisritið - 01.08.1956, Page 14
Samt sem áður gladdi það mig
mjög, þegar ég var beðin um að
skrifa þessa grein um hann, því
að það veitir mér tækifæri til þess
að segja almenningi frá því,
hvernig hann er, en ekki eins og
dagblöðin halda fram að hann sé.
Eftir þessu tækifæri hef ég beðið
i mörg ár.
VEGNA AFREKA hans sem
tennisleikari, er hann þekktur
meðal almennings, og þar sem
þau afrek hafa orðið til þess að
ég hef verið beðin um að skrifa
þessa grein, er ekki fjarri lagi að
byrja á því að tala trm þau afrek.
Ástæðan til þess að Kurt varð
tennisleikari er sú, að faðir hans,
W. E. Nielsen verkfræðingur —
sem lék í landsliði Danmerkur í
knattspymu í þrettán ár — óskaði
eftir því, að Kurt gerðist tennis-
leikari. Enda þótt faðir hans hefði
mikið dálæti á knattspymunni og
vildi gjaman að sonur hans fet-
aði í fótspor hans á knattspymu-
vellinum, hafði faðir hans enn
meira dálæti á tennisleik, og hafði
verið mikill áhugamaður um
tennis árum saman. Faðir hans
vildi því að Kurt lærði tennis, og
það var kjörorð hans, að ef mað-
ur byrjaði að læra eitthvað, yrði
maður að læra það til fyllstu hlít-
ar. Þess vegna veitti hann Kurt
öll hugsanleg tækifæri til þess að
verða fyrsta ílokks tennisleikari.
Fyrst í stað lék hann sjálfur á
móti Kurt, en síðar meir sá hann
um að Kurt fékk að leika við aðra,
og árangurinn af þessari viðleitni
hans varð sá, að Kurt varð bezti
tennisleikari Danmerkur.
Enda þótt faðir hans gæti ekki
lengur æft með Kurt, hélt hann
áfram að fylgjast með honum og
aðstoða hann, og niðurstaðan
varð sú, að Kurt varð bezti tennis-
leikari, sem Danmörk hefur
nokkru sinni alið.
ÞEGAR VIÐ tökum tillit til þess
mikla erfiðis, sem hggur að baki
þessu, er auðvelt að skilja það,
að líf Kurts, og þá einnig mitt líf,
hefur snúizt mestmegnis um tenn-
is, sem Kurt elskar. I fyrsta lagi
hefur Kurt nú náð þeirri aðstöðu
í íþrótt sinni, sem hann vill ógjam-
an missa, og í öðru lagi vill hann
verða ennþá betri, ef það er hægt.
Ég held að allri þeirri gagnrýni,
sem getur beinzt gegn miklum
íþróttamanni, hafi verið beint
gegn honum fyrr og síðar, og ég
er einnig þeirrar skoðunar, að
næstum öll sú gagnrýni hafi ekki
verið á rökum reist.
Ef við lítum yfir það, sem Kurt
hefur verið gagnrýndur fyrir, kom-
umst við fljótt að þeirri niðurstöðu,
að mest af því er vanhugsað,
12
HEIMILISRITIÐ