Heimilisritið - 01.08.1956, Blaðsíða 17

Heimilisritið - 01.08.1956, Blaðsíða 17
legt að lenda í rifrildi við hann, því að honum finnst það rangt að rífast. Þetta kemur mér stund- um úr jafnvægi þegar ég hef reiðst illa, en mér tekst ekki að fá hann til þess að standa í ill- deilum, og niðurstaðan er sú, að við rífumst aldrei heima. KURT HEFUR breytt fyrirætlun- um sínum um framtíðina frá því að við kynntumst fyrst. Hann var þá byrjaður að lesa undir verk- fræðipróf, en þar sem hann eyddi öllum stundum í tennisleik og ein- beitti sér ekki að námi, ákvað hann að hætta náminu og fékk sér atvinnu. Honum líkar ágæt- lega við vinnu sína, því að hún veitir honum tækifæri til þess að afla sér lífsviðurværis, tækifæri til þess að ferðast og iðka tennis, og tækifæri til þess að kynnast verzl- un og viðskiptum. Það kann að vera, að hann sé ekki nógu oft við í fyrirtækinu til þess að það hafði nógu mikið gagn af honura, en ég get sagt með sanni, að hann gerir sitt ýtrasta til þess að eiga kaup sitt skilið. Við megum ekki gleyma því, að allan þann tíma, sem aðrir ungir menn nota til þess að búa sig undir embættis- próf eða fagpróf, hefur Kurt notað til þess að gera sig færari í tennis- leik, og því verður ekki neitað, að hann heíur af þeim sökum ekki haft nægilega mikinn tíma til þess að mennta sig. Hann lætur þetta sig þó engu skipta, því að hann segir sjálfur, að allt, sem hann hafi lært á ferð- um sínum erlendis, hafi hann aldrei getað iært í Danmörku. Auk þess var hann bráðþroska og það gerði honum auðveldara en mörgum öðrum, að vera fljót- ur að læra, og að skilningur hans og ábyrgðartilfinning er ríkari hjá honum en flestum öðrum. Kurt talar ensku ágæta vel, þýzku og frönsku sæmilega, og hann er vanur að tala þessi tungumál við útlendinga. Hann lítur sjálfur svo á, að það sé mjög mikilvægt í viðskiptaheiminum nú á dögum. Hann er vanur að tala við fólk úr öllum stéttum, hann á hægt með að halda ræður, og hann reynir að læra sem mest hann getur af umhverfi sínu. ÞAÐ HEFUR oft verið sagt, að Kurt væri mesti montrass, en ég get með góðri samvizku sagt', að það er ósatt. Það er enginn jafn lítillátur og minna upp með sér af sigrum sínum en einmitt hann. Þeir eru margir, sem kalla það mont hjá Kurt, sem er ekki annað en sjálfsöryggi. Hann er þeirrar skoðunar, að ef hann vinni nógu einbeittur að því að leysa eitt- hvert verkefni, þá muni honum ÁGÚST. 1956 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.