Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 19
um aðförum, og það er stutt síð-
an það gerðist.
Viðkomandi blað heíur um
margra ára skeði fylgzt með Kurt
og gagnrýnt hann og flutt upp-
lognar sögur um hann, en Kurt
lét þetta ekki á sig fá þar til fyrir
skömmu, að blaðið réðist á hann
og erlenda tennis-félaga hans
með rakalausum lygum og þvætt-
ingi. Þá var Kurt nóg boðið.
Kurt skrifar fastan dálk í eitt
blaðið og í þeim dálki svaraði
hann árásinni og sýndi fram á
það með einföldum staðreyndum,
að greinin í blaðinu var byggð á
því, að grein í erlendu blaði hafði
verið misskilin.
En nú skyldi enginn halda, að
viðkomandi blað hafi beðið hann
afsökunar. Nei, svar hans var
hundsað með þögninni einni sam-
an.
1 HJÓNABANDI okkctr leggur
Kurt áherzlu á að við bæði eign-
umst eins hamingjusamt samlíf
og hægt er, og ég get með sanni
sagt, að það hefur honum tekizt.
Hann hefur gefið mér heimili, sem
mér þykir vænt um, og hann
reynir stöðugt að gera það að fal-
legra og betra heimili fyrir mig,
þegar við höfum einhver auraráð,
eða þegar við getum keypt eitt-
hvað skemmtilegt erlendis og tek-
ið heim með okkur.
Þegar við erum heima, líður
vinnudagur hans eins og hjá öll-
um öðrum, en hann sér til þess
að ég þurfi ekki að láta mér leið-
ast hversdagslega — með því að
koma mér alltaf á óvart á einn
eða annan hátt.
Þar sem hann eyðir svo mikl-
um tíma í vinnu sína og tennis-
leik, veit hann, að það er ekki
sérlega skemmtilegt fyrir mig að
sitja alltaf ein heima, og þess
vegná reynir hann sitt ýtrasta til
þess að ljúka öllu sínu af á dag-
inn, svo að hann hafi nægan tíma
til að sinna mér eins og venja er
hjá öðru fólki.
Honum finnst að við verðum að
ferðast eins mikið saman og við
getum, úr því að við erum barn-
laus og eigum heimangengt, og
því tekur hann mig með í ferða-
lög eins oft og hann fær því kom-
ið við. Eftir að við giftum okkur
hef ég ferðast með honum í brúð-
kaupsferðalagið til Parísar, New
York, Florida, Jamaica og Puerto
Rico, og eftir það hef ég oft fprið
með honum til Frakklands, Eng-
lands, Þýzkalands, Svíþjóðar,
Noregs, Italíu, Grikklands, og
Austurríkis, og þegar ég skrifa
þetta, er ég stödd í Bandaríkjun-
um. Þetta hafa allt verið dásam-
leg ferðalög.
ÞEGAR KURT þarf ekki að eyða
ÁGÚST. 1956
17