Heimilisritið - 01.08.1956, Page 20
tímanum í vinnu eða tennis eða
við eitthvert áhugamál sitt, er
hann önnum kaíinn við að gera
eitthvað fyrir vini sína, því að
vináttan er honum mjög dýrmæt.
Við eigum ekki marga vini í Dan-
mörku, en þeir vinir, sem við eig-
um, eru mjög góðir vinir. Við eig-
um marga vini erlendis, og þess
vegna er það gaman að geta ferð-
ast og heimsótt alla þessa góðu
vini sína og verið með þeim.
Það er næstum ómögulegt að
valda Kurt vonbrigðum, því að
hann þýst aldrei við neinu af
nokkrum manni. Hann gleðst yfir
því, sem gert er fyrir hann, inni-
legar en flestir aðrir, einmitt
vegna þess að hann gerir sér
aldrei vonir um neitt.
Kurt er alltaf með mér þegar ég
kaupi mér fatnað, því að hann
hefur ágætan og öruggan smekk,
og ég veit, að ef honum líkar eitt-
hvað, get ég átt það lengi mér til
mikillar ánægju.
Það er honum hin mesta
ánægja, að ég skuli ekki leika
tennis, því að eins og hann segir,
að úr því að hann eyðir svo mikl-
um tíma í tennis, nær ekki nokk-
urri átt að allar frístundirnar
heima færu í það, að tala um
tennis.
ÞEIR ERU margir, sem mis-
skilja afstöðu hans til tennisleiks-
ins. Því finnst mér, að það sé
rétt, að ég geri grein fyrir henni:
Kurt leikur tennis vegna þess að
hann elskar tennis og það er
honum hreinasta skemmtun að
keppa. Þess vegna veit ég, að
hann gerir ávallt sitt bezta í hvert
skipti sem hann keppir. Ahuga-
mál hans er að verða betri og
betri í tennis, og um leið vill hann
að tennisíþróttin í Danmörku
komist á hærra stig. Hann er
reiðubúinn að fórna miklum tíma
og vinnu til þess að ná því
marki. *
— Strákurinn okkar náði i rafmagns-
vélina hans fabba sins, en ég gat stöðv-
að hann i tima.
18
HEIMILISRITIÐ