Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 22

Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 22
þjóta gegnum loftið eins og lýs- andi ör. Löðrið steig upp eins og glitrandi- fossfall um leið og hún rauf yfirborðið og hvarf undir vatnið. Andartaki síðar skaut henni upp aftur og hún synti með sterkum, rólegum sundtökum að bakkanum. Hún hristi höfuðið þóttalega. Þetta var í fyrsta sinn, sem hann hafði séð aðra en bað- verði gistihússins stökkva af háa brettinu, sem aðeins var notað við sýningar, og það hafði verið eitthvað bíræfið við fífldirfsku ungu stúlkunnar — eitthvað, sem kom honum til að finnast hann gamall, þó hann væri ekki nema tuttugu og fimm ára. Stúlkan skellti upp úr, þegar hún sá undrunarsvipinn á andliti Johns og gekk frjálsmannlega í áttina til hans. ,,Það skemmtileg- asta, sem ég veit, er að stinga mér í kalt vatnið," sagði hún, og hann sá nú, að hún var mjög fögur í nærsýn. „Viljið þér ekki reyna? Komið þér með!" Hann kynnti sig dálítið óframfærinn. „Nafn mitt er John Cummings. Lögfræðingur.'' „Ég heiti Kay Baines," svaraði hún. „Ég bý ekki hér á gistihús- inu. Ég leigði mér bara klefa til þess að reyna stökkbrettið." „Þá eruð þér ef til vill dóttir Everet Baines?" spurði John. Baines var þekktur húsameistari, 20 sem byggt hafði heilmörg há- nýtízkuleg milljónera-lystihús við Palm Beach. Hann var einnig kunnur fyrir sinn taumlausa skapofsa, konur sínar, sem allar voru yngri en hann og tilhneig- ingu sína til áfengisdrykkju. Hún kinkaði stuttarlega kolli og hélt áfram: „En þér lítið bara alls ekki út fyrir að vera lögfræð- ingur. Það er eitthvað við það, hvernig eyrun á yður sitja, sem segir mér, að þér hljótið að hafa annaðhvort listamanns- eða æfin- týrablóð í æðunum." John hló. Þetta var þó glettin stúlka! Þau fóru að rabba saman og það endaði með því, að Kay gat narrað hann alla leið upp á brettið. Það var ennþá hærra en hann hafði haldið. Hann hélt sér dauðahaldi í veikbyggða rimlana og þorði varla að líta niður. Ósjálfrátt rétti hann út hendina til þess að halda aftur af Kay, en hún var þegar stokkin. Löðrið reis upp eins og gosbrunnur, þegar hún snerti vatnsflötinn. Skömmu seinna skaut hún upp kollinum á ný og veifaði til hans. „Jæja, komið þér nú!" John fann sjálfur, að hann var aumlegur ásýndum. An þess að gera sér fyrirætlanir sínar ljósar, dró hann djúpt inn andann og kastaði sér út í tómið í bága við alla heilbrigða skynsemi. Það HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.