Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 23

Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 23
þaut ofsalega fyrir eyrum hans nokkrar óendalegar sekúndur, á meðan hann hrapaði og hrapaði, • svo lenti hann á vatninu með dunum og dynkjum, eins og hann hefði sprengt hljóðhimnurnar og sökk í grænt, freyðandi vatnið. Þegar hann kom upp aftur, blind- aður og hálfdrukknaður, var hún rétt við hliðina ó. honum. „Duglegur drengur," sagði hún hlæjandi. „Þér mynduð tæplega fá gullpening á Olympíumótinu, en var það ekki gaman?" —- Hann var of móður til að geta svarað. En þó að vatnið væri kalt, var honum heitt og hann var léttur í skapi, næstum því sigri hrósandi. Þegar hann kom í land, var hún horfin. ... Hann dreymdi um hana alla nóttina, og þegar hann vaknaði næsta morgun, fannst honum hann vera uppgefinn á sál og líkama. En hann varð að sjá Kay aftur. Þegar hann var búinn að borða, fór hann í sundskýlu og settist í strandsólinn fyrir neðan brettið. Hitinn gerði hann syfjað- anh og hann lokaði augunum. JOHN VAKNAÐI við að skuggi féll yfir hann og hann leit inn í dökk, brosandi stúlkuaugu. Hann stökk ringlaður á fætur. „Beth! Ert það virkilega þú?" Hann roðnaði, þegar honum datt í hug, að hann hafði næstum því gleymt því, að hún ætlaði að koma. Hann hafði verið svo upp- tekinn af Kay. Beth hló ánægð. „Ég ætla þó að vona, að þú hafir saknað mín dálítið? En hvað þú ert dásam- lega hraustlegur! En sá litur, sem maður fær hér ..Hún settist við hlið hans og fór að segja frá því, hvernig allt gengi heima í New York. John hlustaði með kurteis- legri athygli, en dálítið annars hugar. Hann meira skynjaði en sá eitthvað hvítt og gullið nálgast frá hlið, og hjarta hans tók skyndilega að slá hraðar. Hann leit við. „Þarna kemur Ung stúlka, sem ég hitti í gær," sagði hann glað- lega. „Við stukkum satt að segja af háa brettinu saman." „Gerðir þú það?" sagði Beth undrandi. „Hvers vegna?" Hún stóð upp. „Nú já .. Útlit Kay veitti fullnægjandi svar. John kynnti þær tauga- óstyrkur, og stúlkumar tvær mældu hvor aðra með augunum. „Velkomnar til dans pálmanna og grape-aldinsins," sagði Kay. „Þar sem ég er næstum því inn- fædd, ætti ég kannske að gerast leiðsögumaður yðar, en ég held satt að segja, að uppáhaldsnæt- urklúbbarnir mínir séu ekkert fyrir yður. Þar er hóflegur gleð- ÁGÚST. 1956 21

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.