Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 27

Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 27
þreytu. Þetta var eins og að vinna í stigmyllu, þar sem manni miðar ekkert áfram. Hann lokaði augunum og beit á jaxlinn. Hann vissi ekki sjálfur, hve lengi hann hafði verið í vatninu né hvernig það hafði atvikazt, að hann skömmu síðar stóð aftur á þilfar- inu. Sú eina, sem veitti honum athygli, var Beth, sem rétti hon- um sjóðheitt rommtoddy. „Drektu þetta," sagði hún stutt í spuna. ,,Og komdu þér svo í fötin. Nei, snertu mig ekki," bætti hún reiðilega við, þegar hann ætlaði að taka í hendina á henni. ,,Hvað er að?" spurði hann dapur. ,,Eg skil ekki ..." - ,,Nei, það skilur þú ekki!" Augu hennar skutu gneistum. ,,Þú skilur ekki, hvað það gildir að sjá þann, sem manni þykir vænt um, hverfa og eiga ef til vill aldrei afturkvæmt. Bara að þú skemmtir þér vel! Bara að þú getir sýnt, hvílíkur garpur þú ert." Nú klifraði Kay upp skipsstig- ann. Hún reif af sér sundhettuna og hristi gullið hárið hlæjandi. „Jæja, John, hvað fannst þér? Var ekki gaman?" Hann fann að Beth horfði á sig og svanjtði þreytulega: „Nei, ekki vitund." Hann leit áhuga- laust á hana og hugsaði: háa brettið, stökkið í kalt vatnið, hraði og æsing, það er hennar líf — en það er ekkert fyrir mig. Ég er upp úr því vaxinn ... Það var eins og Kay hefði lesið allar hugsanir hans. Hún hnykkti til höfðinu og sagði: „Jæja, ég ætti víst að gá að, hvað Bob aðhefst. Verið þið sæl." John andvarpaði eins og hon- um létti og sveipaði baðkápunni, sem Beth hafði lagt yfir axlir hans, að sér. Síðan sagði hann hægt: „Beth, ég skil ekki sjálfur, hvað hefur hlaupið í mig síðustu vikuna, dýfingar og kappakstur og sund að næturlagi!" Hann hristi höfuðið. „Slík og þvílíkt er ekkert fyrir mig. Ég er ekki sú manntegund. Ég er ..Hann Hann mundi eftir dálitlu, sem hún hafði sagt: „Ég er bara ósköp hversdagslegur, dálítið varkár og sérvitur maður. Veizt þú hvað?" Hún leit á hann alvarleg í bragði: „Nei." „Við tvö eigum vel saman." Hún brosti, en það voru tár í augum hennar. „Þá ert þá ekki leiðinlegur," hvíslaði húm „Þú spurðir mig fyrr í kvöld, hvort ég sæi eftir að hafa komið hingað. Ég svaraði, að ég vissi það ekki.' Hann tók hana í fangið og muldraði með varir sínar við var- ir hennar: „Veizt þú það núna, ástin mín?" Hún svarið ekki. En koss henn- ar veitt fullnægjandi svar. * ÁGÚST. 1956 25

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.