Heimilisritið - 01.08.1956, Page 28

Heimilisritið - 01.08.1956, Page 28
TVEIR ÍTALIR Tveir Italir sátu hvor á móti öðrum við borð í veitingahúsi í Sviss. Annar þeirra gat horft út um glugga, en hinn sncri baki að sama glugga. Sá, sem sneri baki að glugganum var bróðir þess, sem á móti honum sat og horfði út um gluggann. En sá, sem horfði út um gluggann var ekki bróðir þess, sem á móti honum sat og sneri baki að glugg- anum. Hvernig gat það verið? * SPILASTOKKUR I spilastokk eru 26 rauð spil og 26 svört. Hvað þarf maður að draga mörg spil úr stokknum til þess að vera örugg- ur um að hafa annað hvort 2 rauð eða 2 svört spii. Við gerum auðvitað ráð fyrir, að spilin liggi á grúfu, svo að við sjáum aðeins bökin á þeim. * AÐALSMENN OG ÞRÆLAR Þetta skeði á dögum þrælahaldsins. Þrír aðalsmenn og þrír þrælar voni á ferðalagi og komu þá að fljóti, sem þeir þurftu að komast yfir. Þeir fundu þar pramma, sem aðeins bar tvo menn. Þetta hefði nú allt verið gott og bless- að, ef aðalsmcnnirnir hefðu ekki ótt- azt þrælana. Þeir vissu nefnilcga, að þrælarnir höfðu ákveðið að myrða þá, ef þcir yrðti einhverntíma liðfleiri en að- alsménnirnir. Hvernig áttu nú aðals- mennirnir að koma sér og þrælunum yfir fljótið á prammanum og verða þó aldrei færri en þrælarnir á hvoiugum bakka fljótsins? Við þurfum ekki að reikna með þeim möguleika að þrælarn- ír strjúki, þó að þeir verði einir á öðr- um hvorum bakkanum. * BORGARNÖFN Sum ykkar hafa cflaust heyrt gátuna: ,,Hvaða maður er í miðju Vcsturlandi" og svarið er: Sturla (veSTURLAnd). I eftirfarandi setningum er á sarna hátt falin borgarnöfn, eitt í hvcrri. 1. Börnin komust í ró með það sama. 2. Hann skapar íslenzk ljóð. 3. Það er ljótt að snupra greyin. 4. Sumum finnst, að napurt bros loði við hann. 5. Hvar sjáum við leikritið bezt? 6. Hann man illa, það sem hann lærir. 7. A er hérna, cn vciztu hvar B er núna? 8. Heyrðirðu brestinn, sem kom rétt áðan? 9. „Það er ckki cftir ncma rníla, Nonni minn.“ 10. Þú skalt ckki stela,“ 6. viðvömnin hljóðar þannig. Sv'úr á bls. 6j. 26 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.