Heimilisritið - 01.08.1956, Síða 36
ég byrjaði að stunda skólann.
Hún kom oft í bæheimska veit-
ingahúsið með pilti, sem hún var
með. Eg var þá tuttugu og tveggia
ára og Elinóra töluvert yngri. Hún
var falleg og viðfelldin, og mér
varð ætíð svo einkennilega inn-
anbrjósts, þegar ég leit á hana.
Ég hafði verið of önnum kafinn
og of fátækur til að skipta mér
nokkuð af stúlkum, en ég gat ekki
gert að mér að veita Elinóru at-
hygli.
Kvöld eitt fór kunningi hennar
fram að hringja, og ég spurði
hana um símanúmer hennar.
Næsta sunnudagskvöld fórum við
saman í bíó. Eftir það hélt Elinóra
áfram að koma í veitingahúsið,
en ekki með piltum. Hvenær sem
ég átti frí, fórum við út að dansa,
renna okkur á skautum, eða bara
ganga um skemmtigarðinn. Eftir
um það þrjá mánuði vorum við
trúlofuð, þó ég sæi ekki nein ráð
til þess, að ég gæti gifzt, einkum
stúlku eins og Elinóru, sem var
af efnuðu fólki og hafði ætíð haft
allt til alls.
Að lokum gat hún fengið mig
til að tala við frænda hennar, sem
var verkfræðingur hjá olíufélagi.
Eftir hans ráði fór ég til Hampton
í Texas, og fékk vinnu í olíustöð.
Eftir þrjá mánuði var ég fluttur
upp eitt þrep og fékk hækkað
kaup. Þá tók ég mér viku frí og
fór heim til Kansas og kvæntist
Elinóru. Við settumst að í Hamp-
ton og vorum aíar hamingjusöm.
Elinóra hafði margt, sem mig
skorti. Hún var mannblendin, vel
liðin af öllum, og vildi öllum
hjálpa. Og þegar hún þurfti á að
halda, gat hún þegið hjálp af öðr-
um. En ég hafði alltaf barizt
einn, og hversu miklir, sem eríið-
leikarnir urðu, var mér ómögulegt
að leita hjálpar annarra. Maður-
inn varð að treysta á eigin mátt
og megin — það var mín lífs-
regla.
Ég veit ekki, hvers vegna Eli-
nóra elskaði mig. Sjálfum fannst
mér það dálítið kynlegt. En Eli-
nóru þótti eitthvað hetjulegt við
baráttu mína og metnað.
Við komumst vel af, einkum
eftir að ég hafði enn verið hækk-
aður í starfi og fengið bætt laun.
Ég vann af miklum dugnaði, og
Elinóra eignaðist fjölda vina og
kunningja meðal alls konar fólks.
Við spöruðum peninga Elinóru
til seinni tíma. „Við eignumst
stóra fjölskyldu, elskan," sagði
hún ákveðin. „Ég vil eignast börn,
ekki bara eitt eða tvö, heldur
mörg."
SARA fæddist tíu mánuðum eft-
ir að við giftumst. Þegar tvíbur-
arnir fæddust, tveim árum seinna,
var ég orðinn rafvirki. lana kom
34
HEIMILISRITIÐ