Heimilisritið - 01.08.1956, Page 43

Heimilisritið - 01.08.1956, Page 43
hingað til að útbúa morgunverð." En ég vissi, að Jói ■ fór alltaf á fætur klukkan fjögur til að fiska, og það bróst ekki, að Lolla tæki til morgunverð fyrir hann. Þau myndu vita, hvað Goldy hefði gert og þykkjast af því, einkum af því Barba vissi um það. Þegar ég sá Lollu Camdall daginn eftir, vissi ég, að það versta hafði skeð, og að þau myndu aldrei gleyma því, sem Goldy hafði gert, eftir að þau höfðu boðið henni að gista hjá þeim. Crandallhjónin höfðu verið góðir vinir mínir mjög lengi, og Lolla hafði verið bezta vinkona Elinóru. En eftir þetta myndi aldrei verða um nána vináttu að ræða. Eg veit nú, að það hefði verið bstra að kvænast Goldy strax, hvað sem fólk hefði sagt, því það hefði aldrei getað sagt meira, en það gerði nú þegar. Elinóra dó í janúar, en þegar leið á sumarið, vissi ég, að það gerði einungis illt verra að fresta brúðkaupinu. Eg sagði sjálfum mér, að allt myndi verða í bezta lagi, þegar við værum einu sinni giít, þegar Goldy ætti mann til að scfa hjá hverja nótt. MÓÐIR Goldy var nú gift fjórða - manni sínum, að nafni Rondell. Þau komu til okkar og buðu öll- um vinum mínum og fjölmörgum vinum Goldy í ýmsum borgum, þar sem hún hafði verið. Ég stríddi henni á því, að hún bauð svo mörgum karlmönnum, en hún svaraði hreykin: „Ég vil gjarnan, að þeir viti allir, að ég hef fundið mann, senvelskar mig, og ætla í raun og veru að gift- ast mér." Og hún kyssti mig svo blíðlega, að ég hugsaði ekki meira um þetta einkennilega svar hennar. Hjónavígslan fór fram með mikilli viðhöfn í kirkjunni þcmg- að sem börnin fóru í sunnudags- skóla. Goldy vildi endilega hafa mikilfenglegt kirkjubrúðkaup. Sara og tvíburarnir voru okkur til aðstoðar, og Jana trítlaði inn gólf- ið með frú Gates í sæti á fremsta bekk. Kirkjan var full af vinum okkar, vinum Elinóru — fólki, sem mundi vel, að það hafði komið hingað fyrir aðeins tíu mánuðum til að fylgja Elinóru til grafar. Svo sá ég Goldy koma inn kirkjugólfið í fallegum ljósbláum kjól, ljómandi af hamingju. Ég fann til auðmýkt- ar og þakklætis gagnvart henni — það gladdi mig, að brúðkaup okkar skyldi vera svo mikilvægt fyrir hana. Ég hugsaði, hve dá- samleg hún væri að vera svona ásfangin af manni, sem var tíu árum eldri en hún. Rondellhjónin höfðu leigt dans- sal gistihússins fyrir veizluna og ÁGÚST. 1956 41

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.