Heimilisritið - 01.06.1957, Page 36
-verið Malaji, Kínverji eða Jap-
ani, hin skásettu augu hennar
benda til þess. Sömuleiðis gul-
brún húð hennar. Hún er rauð-
hærð, en litar hár sitt kolsvart.
Mesta vandamál lífs hennar er
að hún er hvorki brún eða hvít.
Hún hefur kynnzt kynþáttahatri
betur en flestir aðrir, og það hef-
ur ekki alltaf verið kynþáttahat-
ur hvítra manna, sem hefur
valdið henni mestri sorg. Þegar
hún var barn að aldri vildu
blökkumennirnir aldrei telja
'hana í sínum hóp. Frændi henn-
ar vísaði móður hennar og litlu
stúlkunum hennar á dyr, er þær
komu á leiðarenda eftir gönguna
á hinum langa, dimma og ryk-
uga vegi.
„Ég vil ekki sjá þessa gulu
stelpu í mínum húsum!“ hróp-
aði hann.
„Gula stelpan.“ Alla bernsku
sína var Eartha „Gula stelpan".
Hún segir frá því, að eitt sinn
hafi blökkumannabörn bundið
hana við tré, lamið hana, og gert
hróp að henni:
„Gulastelpa — gulastelpa —
gulastelpa.“
Hún hefur átt erfitt uppdrátt-
ar í lífinu og er orðin hörð og
bitur.
BARN að aldri vann hún á
baðmullarökrunum. Seinna fór
hún til New York, og loks fékk
hún vinnu við hinn fræga ball-
ettflokk Katherine Dunham. —
Hún ferðaðist til Mexico og víða
um Bandaríkin, og síðan til
Evrópu. í París sagði hún skilið
við ballettinn og fékk vinnu í
Carrolls-næturklúbbnum á Rue
de Panthéon. Hún keypti sér
mjallhvítan kvöldkjól og stóð
skjálfandi af hræðslu í búnings-
herbergi sínu skömmu áður en
hún átti að koma fram í fyrsta
skipti. Þá kom inn franska kon-
an, sem var forstjóri nætur-
klúbbsins.
„Hvað er eiginlega að sjá þig?“
sagði hún, beygði sig niður og
þreif í sauminn á hvíta engla-
kyrtlinum. f einum rikk reif hún
stórt stykki úr kjólnum nokkuð
upp fyrir hné. Nokkrum augna-
blikum síðar stóð Eartha á svið-
inu. Tæpum fimm mínútum síð-
ar hafði hún unnið sigur.
EARTHA KITT hefur kallað
æviminningar sínar Fimmtu-
dagsbarn, því að í Ameríku er
talið að barn, sem fætt er á
fimmtudegi verði jafn óham-
ingjusamt, og sunnudagsbarn
verður hamingjusamt.
Hún hefur farið víða á lista-
braut sinni. Hún hefur leikið á
Broadway og hlotið ágæta dóma.
Hún hefur leikið í kvikmyndum
34
HEIMILISRITIÐ