Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 4

Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 4
gæti verið svona ,,drottning** nema því aðeins að hún hefði marga og volduga verndara, eða þá næga fegurð og greind. Si- mone hafði þetta allt. Fegurð hennar var óumdeild allt frá síða hárinu niður fallega skapaða fótleggina. Rödd hennar var mjúk og syngjandi alveg þangað til ein- hver keppinautur reyndi að ná af henni viðskiptavini, þá gat Si- mone notað óheflaðan og rudda- legan munnsöfnuð. Hún var gamansöm og full af fjöri, og hún var skemmtilegur félagi í mörgum kabarettum, en þar fékk hún viðurnefnið Annik- la-Blonde. Fólkið í Pigalle-hverf- inu hefur næstum allt eitthvert viðurnefni og flest af því hefur komizt í kast við lögregluna hvað eftir annað. Annik var með nefið niðri í öllu og mætti oft á leynifundum. — Njósnarar frönsku lögreglunnar — aðallega þjónar og blaðasalar — sendu skýrslu um Annik, en það var ekkert hægt að sanna á hana annað en það, að hún stundaði vændi og viðskiptavinir hennar voru ríkir ferðamenn eða franskir utanbæjarmenn. Svo virtist sem engan hefði grunað það, að Simone Molter hafði verið ,,drottning“ áður en hún kom til Parísar. Hún var þekkt í lögregluskýrslum sem ,.drottning undankomunnar'*. — Það hefði átt að vera mönnum ábending þegar Annik kom frá hárgreiðslukonunni sinni og var búin að lita hárið á sér rautt. En kvenfólk var alltaf að skipta um háralit og það var ekert merki- legt þó að Annik gerði það líka. Menn bjuggust við að hún myndi láta lita á sér hárið aftur ein- hvern næstu daga, svo að viður- nefninu var ekki breytt. Hún hét áfram Annik-la-Blonde. Simone breytti um háralit 7. marz 1950 þegar hún las það í blaði, að Louise Bayonne, vin- kona hennar, hefði verið dæmd í fimm ára fangelsi. Það hafði komið fram í réttin- um, að hinn rétti sökudólgur héti Simone Molter og það hefði ver- ið hún, sem hafði lagt á ráðin um að gera árás á 72 ára gamla konu og hefði verið með Bay- onne vinkonu sinni í að fremja ofbeldisvérkið. Það var harmleik- urinn í þessu, að fórnarlambið var stjúpmóðir Bayonne. Stúlk- urnar tvær höfðu viljað ná í eitt- hvað af peningum með lítilli fyr- irhöfn, og Simone hafði talið vin- konu sína á að ná í þá heima hjá sjálfri sér. Dómarinn tók til greina sekt Simone Molter og dæmdi hana í 20 ára fangelsi 2 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.