Heimilisritið - 01.02.1958, Blaðsíða 58
freyja ein urðu að berjast við
tímann til þess að ná saman.
Þau töluðu fyrst saman er flug-
vélin hóf sig á loft á leið yfir
Atlantshafið. Þegar flugvélin var
hálfnuð yfir hafið, stundi Tony
upp bónorðinu. Þegar þau komu
til Lundúna fengu þau sérstakt
leyfisbréf og voru gift þar á
staðnum. Tveimur dögum seinna
hittu þau vini sína í New York
og héldu þá brúðkaupsveizluna
sína með þeim.
Svo var piltur einn í Wales,
sem gerði sér ekki grein fyrir því,
að örin úr boga Amors getur far-
ið með eldingarhraða. Hann var
búinn að vera með sömu stúlk-
unni í fimm ár. Svo rifust þau
og þá var hann með annarri
stúlku í fjögur ár. Þegar kastað-
ist í kekki á milli þeirra, kynntist
hann þriðju stúlkunni og þau
voru saman í þrjú ár. Loks kynnt-
ist hann ungri og fallegri ekkju.
Hann bað hennar eftir þrjár
vikur, þau giftu sig þremur mán-
uðum seinna! *
Churchill — slagorðafúskari
Churchill hcfur vcrið ásakaður fyrir að vcra lítt frumlcgur í
slagorðum þeim, scm tíðast eru cftir honum höfð. Hér cru nokkur
dæmi:
Eftir hinar áköfu loftárásir á London, sagði hann þessi frægu
orð: „Alclrci hafa jafn margir átt jafn fáum jafn mikið að þakka.“
En í skáldsögunni „Flóttamennirnir" eftir Conan Doyie stendur:
„Aldrci hcfur jafn lítill her varið jafn stórt andsvæði jafn lcngi.“
Líkingin cr ábcrandi.
„Ég gct aðeins lofað blóði, striti, svita og tárum,“ sagði Churc-
hill í stríðinu.
Áður hafði frelsishetjan Garibaldi sagt: „Ég get aðeins lofað
ykkur þjáningu, hungri og óskinni um að deyja.“
Churchill sagði: „Það er spurt, hver stefna mín sé. Ég svara:
að heyja stríð.“
Clcmencau var eitt sinn spurður hins sama, og hann svaraði:
„Að fara í stríð."
„Við munum berjast á ökrunum, götunum og í fjöilunum."
(Churchill).
„Við munum bcrjast fyrir framan París, inni í París.“ (Clcmen-
cau).
Churchill hcfur aidrci tilgreint heimildir sínar, en hins vegar
má kannske segja, að hann hafi endurbœtt slagorðin.
56
HEIMILISRITIÐ